Helgarpósturinn - 25.02.1988, Síða 8

Helgarpósturinn - 25.02.1988, Síða 8
LOGREGLUSTJORI A Onákvæmni lögreglustjóra Málið til ríkissaksóknara i dag RLR hefur sent lögreglustjóra upplýsingar frá byrjun Aðfaranótt laugardagsins 13. febrúar henti það ungan mann á gangi í Reykjavík að slangra utan í bíl. Afleiðing- in var handtaka og tvíbrotinn handleggur. Fyrir því stóðu feðgar, starfandi lögreglumenn í Reykjavík, en í för með þeim voru aðrir félagar í lögreglunni. Til þess að flytja manninn var notuð bifreið lögreglunnar í Reykjavík og iíkamsmeiðingarnar fóru fram í fangageymslu lögregl- unnar. Ekkert hefur enn komið fram annað en að hand- takan hafi verið ólögleg. Hins vegar liðu sjö dagar frá at- burðinum þar til feðgunum var vísað úr starfi og þá var það gert eftir fyrirmælum dómsmálaráðherra sjálfs. Lög- reglustjórinn í Reykjavík, Böðvar Bragason, hefur því orðið ber að ósannindum þar sem hann hefur ítrekað haldið því fram að hann hafi einn tekið þessa ákvörðun, án nokkurra tilmæla ofan frá, auk þess sem hann hefur haldið þannig á málum að spurningar hljóta að vakna. EFTIR PÁL HANNESSON Hinn ólánsami Eskfirðingur, sem lenti svo óþyrmilega í höndum lög- reglunnar aðfaranótt laugardags og hlaut beinbrot af, kærði atburðinn til Rannsóknarlögreglu ríkisins strax á laugardag. Samkvæmt upp- lýsingum Boga Nílssonar rannsókn- arlögreglustjóra bárust RLR skýrsl- ur frá yfirmönnum Lögreglunnar í Reykjavík strax sama dag. Eins sagði Bogi, að Böðvari Bragasyni, lögreglustjóra í Reykjavík, hefðu verið sendar upplýsingar um gang málsins „að minnsta kosti frá byrjun vinnuvikunnar, þ.e. á mánudag". Hafi yfirmenn lögreglunnar í Reykjavík ekki haldið upplýsing- um um málið frá lögreglustjóra þeg- ar skýrslur voru sendar til RLR á laugardag, sem er ástæðulaust að ætla í jafnalvarlegu máli og þessu, ætti Böðvar að hafa haft upplýsing- ar um málið frá laugardegi eða a.m.k. frá mánudegi. A grundvelli þessara skýrslna vísar RLR málinu síðan til ríkissaksóknara í dag. Því verður að álykta sem svo að Böðvar Bragason hafi haft nægar upplýs- ingar til að geta tekið ákvörðun um að vísa mönnunum tímabundið frá starfi meðan málið væri í rannsókn, annaðhvort sjö dögum áður en sú ákvörðun var tekin eða þá a.m.k. fimm dögum fyrr. Það er því eðlilegt að spyrja: Hvað tafði Böðvar í að taka þessa eðlilegu ákvörðun? SKRÖKVAR LÖGREGLU- STJÓRI VÍSVITANDI? I viðtali við HP sagði Böðvar að hann hefði haldið nokkra fundi um málið með yfirmönnum og farið yfir Mynd Magnús Reynir Jón Sigurðsson dómsmálaráðherra: „Þennan blett á heiðri lögreglunnar veröur aö afmá. fyrirliggjandi skýrslur. Hann minnti að lögreglan hefði haft þessar skýrslur í þrjá daga og er þá væntan- iega að tala um skýrslur frá RLR sem hann fékk afrit af „senni- lega á mánudag eða þriðjudag". Síð- an hafi ákvörðun verið tekin. Sam- kvæmt þessu ætti ákvörðunin að hafa legið fyrir á miðvikudag eða fimmtudag, nema ónákvæmni gæti í frásögn lögreglustjóra, þar sem ákvörðun var ekki tekin fyrr en föstudaginn 19. febrúar. Þegar HP bar undir lögreglustjóra að af frétt- um að dæma virtist svo sem um ólöglega handtöku hefði verið að ræða sagði Böðvar: „Ég vil ekki út- tala mig um þetta á annan hátt en þann, að benda á þá ákvörðun mína að mennirnir hætti tímabundið." Aðspurður hvort hann hefði ekki fengið nein fyrirmæli varðandi þessa ákvörðun svaraði Böðvar neitandi. I sjónvarpsfréttum ítrekaði Böðvar að hann hefði tekið þessa ákvörðun og í frétt í DV laugardag- inn 20. febrúar segir: „Böðvar sagði að ákvörðunin um tímabundna brottvísun væri alfarið frá sér komin og að ráðherra hefði ekki haft nein afskipti af ákvörðuninni." í viðtali við Jón Sigurðsson dóms- málaráðherra, sem birtist hér í blað- inu, kemur hins vegar skýrt fram að hann hafði, um leið og hann frétti af málinu í dagblöðum, samband við Böðvar Bragason, lögreglustjóra Böðvar Bragason, lögreglustjöri í Reykjavík. með þeim fyrirmælum að umrædd- um lögreglumönnum skyldi strax vikið tímabundið úr starfi, á meðan að málið væri í rannsókn. Hafi ráðu- neytisstjóri borið þessi boð fyrir ráð- herra til lögreglustjóra á föstudags- morgun og síðar um daginn hafi ráðherra sjálfur rætt við Böðvar Bragason. Lögreglumönnunun var Jón Sigurðsson dómsmálaráðherra BLETTUR SEM VE Alvarlegl atvik átti sér stað fyrir stuttu þegar ungur maður varsóttur á heimili sitt án handtökuheimildar, fœrður í fangageymslur og hand- leggsbrotinn. „Ég ætla ekki að segja annað um það mál en að það var ákaflega alvarlegur atburður sem þarna varð. Atburður sem ég og dóms- málaráðuneytið lítum mjög alvar- legum augum. Það var ekki um neitt annað að ræða en víkja þess- um tveimur lögreglumönnum úr starfi." Vbr það ákvörðun ráðuneytisins? „Við hvöttum til þess, já. En ég ef- ast ekkert um að lögreglustjóri — hann hefur sagt það sjálfur — hafi ætlað að víkja mönnunum úr starfi. Það verður að vera hægt að treysta því að lögreglan taki ekki lögin i sín- ar hendur. En ég vil taka það fram að hér er um að ræða atburð sem er í rannsókn og mönnunum vikið frá starfi á meðan á rannsókn stendur og fyrr en sú rannsóknarskýrsla liggur fyrir er ekki hægt að dæma neinn. Gögnin verða send til ríkis- saksóknara þegar þau eru komin fram og hann mun síðan senda dómsmálaráðuneytinu skýrslurnar, því þannig á að fara með mál þegar um meint brot í opinberu starfi er að ræða.“ Ná liðu sjö dagar frá því maður- inn var handleggsbrotinn þar til lög- reglumönnunum var vikið úr starfi. Hvers vegna leið svona langur tími þar til ráðuneytið tók ákvörðun í þessu máli? „Ég er nú ekki viss á dagsetn- ingum." Maðurinn var handleggsbrotinn aðfaranótt 13. febrúar og mönnun- um var vikið úr starfi þann 19. febr- úar samkvœmt upplýsingum lög- reglustjóra. „Um leið og ég hafði vitneskju um þetta mál hafði ég samband við lögreglustjóra og sagði við hann og lét reyndar bera honum um það orð fyrst af mínum embættismönnum, að þarna yrði að fara að fyllstu gát og víkja rnönnunum úr starfi á með- an rannsókn færi fram. Ég sá þetta í blöðunum á fimmtudag og hringdi um kvöldið í ráðuneytisstjóra og bað hann að hafa samband við lög- reglustjóra strax að morgni með þessi skilaboð. Seinna á föstudaginn talaði ég svo sjálfur við Böðvar og mönnunum var vikið úr starfi." HP rœddi við Böðvar Bragason lögreglustjóra og þá hélt hann því fram, sem hann hefur reyndar gert annars staðar í fjölmiðlum, að þessi ákvörðun hefði verið algjörlega sín og að það hefðu ekki komið nein fyrirmœli um það annars stað- ar frá. „Ég vil ekkert úr því draga að þetta hafi verið hans ákvörðun en það er jafnljóst að ég hafði samband við hann og minn ráðuneytisstjóri, með þau tilmæli eða ábendingu sem fyrr segir." En hann tók enga ákvörðun þar að lútandi fyrr en þú og ráðuneytið höfðuö ýtt við honum. „Ég ætla ekki að segja neitt meira um þetta annað en að um leið og mér varð málið Ijóst hafði ég sam- band við lögreglustjóra." / sama viðtali segir lögreglustjóri að grundvöllur lögreglu sé samstarf borgaranna og liðsins og að trúnað- ur ríki þar á milli og að efþetta sam- starf og trúnaður séu ekki fyrir hendi sé starf lögreglu hálfgagns- laust. Ertu sammála þessu? „Eg tek að sjálfsögðu undir það, því við höfum vanist því hér á okkar landi að lögreglumenn væru ekki fyrst og fremst valdsmenn heldur lögregluþjónar, eins og það hét nú yfirleitt áður, þ.e. samverkamenn og vinveittir þjónustumenn samborg- aranna. Það er svo sannarlega mín stefna í lögreglumálum og ég veit reyndar að það er líka hjá lögreglu- stjóra og samtökum lögreglumanna að þessi einkenni íslenskra lög- gæslumanna geti verið sem allra ríkust." En þegar lögreglumenn á vakt og utan vaktar fara án heimildar og handtaka mann og handleggsbrjóta hann á lögreglustöð, er þetta þá ekki farið að líta út eins og í S- Ameríku? „Sé þetta rétt er ekkert sem afsak- ar það. Ætli verði ekki að segja að þetta séu stórkostleg mannleg mis- tök, ef þetta er eins og þú lýsir því, 8 HELGARPÓSTURINN hbebmbbb^bb

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.