Helgarpósturinn - 25.02.1988, Qupperneq 43

Helgarpósturinn - 25.02.1988, Qupperneq 43
Finnbogi við rörin sem meö ákveðnu millibili dragast frá veggnum og skella svo í hann aftur og hljóma eins og kirkjuklukkur. HLJÓÐMYNDIR — HLJÓÐTEIKNINGAR Komið inn í anddyri Nýiistasafnsins og á móti manni svotil auðir veggir, sem er óvenjulegt nú á tímum mál- verksins. Eingöngu hátalarar á veggjunum, litlir en frá þeim berast sérkennileg hljóð sem láta samt ekki illa í eyrum og þegar maður stendur í miðju anddyrinu er eins og maður sé staddur í hljóðbylgju, kannski ekki ósvipað og heyra flugvélardyn í ,,heddfónum“, þjótandi úr öðrum í gegnum hausinn og yfir í hinn. Hljóðið nær einhvern veginn utan um mann. Þetta er „installation" Finnboga Guðmundssonar sem mætir gestum Nýlistasafnsins um þessar mundir. í neðri salnum eru þrjú rör sem hanga í spottum og öðru hverju kemur lítil maskína, þræll, og færir þau frá veggnum — sleppir svo aftur og rörin skella á veggnum og hljóma eins og kirkjuklukkur og hvítkalkaðir veggirnir auka enn á einhvers konar helgistemmningu. Rörin skella í miðpunkt Ijósgeisla, mæta sínum eigin skugga og hljóðið berst frá þeim yfir í hátalarana. Það er sama hljóðið í báðum sölum en unnið með mismunandi aðferð til að koma þeim til skila. „Aðalpælingin er sú," segir Finn- bogi, „að koma áhorfandanum, hlustandanum, fyrir inni í hljóð- bylgjunni og setja hann þannig í ástand sem er honum áður óþekkt. Reyna að koma honum inn í rörin ef svo má segja." — H vernig tengist þetta my ndlist? ,,Ég vinn með hljóð út frá mynd- list, meðhöndla það sem mynd og þetta eru því eins konar hljóðskúlp- túrar. Þeim hefur verið gefið það heiti. Það er verið að vinna með hljóðið í þrívíðu formi, hljóðmynd eða hljóðteikningu. Sem skúlptúr innan steríósviðsins og form hljóðs- ins fundið. Maður finnur fyrir form- um hljóðs þegar hlustað er á það t.d. í heddfónum. Auk þess er hljóð líka mynd. T.d. rigningarhljóð, ef maður heyrir slíkt hljóð, þó svo maður sjái ekki rigninguna, kviknar myndin samt. Ég er hér að vinna með rýmis- verk og þess vegna lít ég á mig sem myndlistarmann." — Nú er þetta nokkuð óvenjulegt hér á landi. Hvernig hafa viðbrögð verið? „Þau hafa verið mjög góð, í það minnsta það sem ég hef heyrt. Fólk virðist vera fljótt að detta inn í stemmninguna sem ég er að reyna að framkalla. Margir hafa einmitt nefnt þetta með kirkjuklukkurnar en það er nú ekki svo að ég sé að reyna að ná fram einhverri trúar- legri stemmningu." — Hefurðu verið lengi í þessum pælingum? „Ég hef verið að vinna með hljóð frá þvi 1982 og um þessar mundir er ég að vinna enn frekar með hljóð sem mynd. Það sést ekki svo mikið á þessari sýningu eins og það kemur til með að gerast síðar. Hugmyndin er kannski sú að nota segulband sem ljósmyndavél og finna enn frek- ar form hljóðanna. Viðhorfið til hljóðsins er fyrst og fremst sjón- rænt." — Þú segist hafa sýnt þetta verk víðar, breytist það ekki algerlega eftir aðstæðum hverju sinni? „Jú, það gerir það. Ég var t.d. með það í Noregii kjallara húss frá 16du eða 17du öld. Þar var moldargólf, hlaðnir veggir og þetta varð allt saman mjög „mýstískt". KK Gallabuxur og gott betur Yfirlitssýning í Þjódminjasafni Gallabuxur eru líklega algengasta flík nútímamanna. Enginn maöur er suo til ad hann eigi ekki einhverjar slík- ar hangandi inni í skáp. En það hefur ekki alltaf ueriö suo. Það eru ekki mörg ár síðan gallabuxur töldust ekki uel sómasamlegur klœðnaður hér á landi. Krakkar áttu sérstök skólaföt og þar uoru gallabuxur ekki í náðinni. fþœr uar hins uegar farið þegar átti að fara að atast utan- dyra. Allt í lagi að skíta út níðsterkar gallabuxurnar sem þoldu hundrað ferðir í þuottauélina. Bítlarnir voru nú yfirleitt vel klæddir á fyrri hluta ferilsins, hér eru þeir samt í gallabuxum og framteiðendurnir hafa verið fijótir að nota sér auglýsingagild- ið. Saga gallabuxnanna hefst í Ameríku. Það var gullæðið mikla sem skapaði þörf fyrir sterk vinnu- föt og tveir Evrópubúar, sem flust höfðu búferlum til Ameríku, fengu einkaleyfi á framleiðslunni 1873. í fyrstunni voru þær saumaðar úr brúnum striga en um aldamótin var farið að hafa þær úr bláu denim, níðsterku efni, og ennþá eru þær framleiddar úr svipuðu efni. Skömmu síðar hófu fleiri aðilar framleiðslu slíks fatnaðar, m.a. H.D. Lee, en framleiðsla hans er vel þekkt enn þann dag í dag. Þessi fyr- irtæki áttu það sameiginlegt að framleiða vinnufatnað en það var ekki fyrr en upp úr síðari heims- styrjöldinni að gallabuxur urðu al- gengur klæðnaður í Ameríku, eink- um meðal unglinga. En gallabuxur hafa í gegnum tíð- ina þróast frá því að vera eingöngu buxur og hafa orðið tákn fyrir ákveðinn lífsstíl, fyrir ungdóminn og jafnrétti milli kynja og kynslóða. Þær hafa orðið tákn fyrir uppreisn yngri kynslóðanna gegn hefð- bundnu fatavali eldri kynslóða og þarmeð uppreisn gegn gildum hefð- arinnar og vanans. Kannski ótrúlegt þegar litið er til þess hversu sjálf- sagður hlutur þær þykja í dag, afar og ömmur eiga gallabuxur jafnt og börn og unglingar. Þær hafa þannig þróast frá því að vera einvörðungu flíkur yfir í menningarlegt og þjóð- félagslegt fyrirbrigði. Hafa öðlast ákveðna ímynd. Komist í og úr há- tísku en alltaf haldið sínu og innan ákveðinna þjóðfélagshópa eru þær nánast skylduklæðnaður. Rokkar- arnir illræmdu, mótórhjólaofbeldis- flokkur, — alltaf í gallabuxum. Og ólíkt öðrum flíkum tapa þær ekki gildi sínu þó þær snjáist og missi lit, jafnvel rifni. I eina tíð var það meira að segja tíska að vera í svo viðgerð- um gallabuxum að upprunalegu buxurnar heyrðu sögunni til. Um þessar mundir stendur ein- mitt yfir sýning í Þjóðminjasafninu Hér sóst kynbomban Marilyn Monroe i gallabuxum þrétt fyrir að konur gengju almennt ekki í slíkum fatnaði. Hún er ekki sérlega „sexí" en menn komust fljótt að því að gallabuxur gátu verið sexí eins og hvað annað. sem kemur frá Svíþjóð, undir heit- inu Gallabuxur og gott betur. Sýn- inguna setti upp Inge Wintzell, sem m.a. hefur skrifað heillanga bók um gallabuxur sem hún kallar Jeans- kultur og í henni færir hún rök að menningarlegu giidi og hlutverki gallabuxna. Þessa hversdagslega fyrirbrigðis sem á sér sennilegast miklu merkilegri sögu en menn gera sér almennt grein fyrir. KK HELGARPÓSTURINN 31

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.