Helgarpósturinn - 12.05.1988, Blaðsíða 2
Verðurðu í stæði?
■
Magnús V. Pétursson
heildsali
„Nei, ég er mjög nálægt heiðursstúkunni þar sem fyrir-
menn sitja, svo til alveg fyrir miðju á þeim stað sem leik-
mennirnir hlaupa upp til þess að taka á móti verðlaunun-
um. Ef einhverjir hafa áhuga geta þeir séð mig þar og ég
skal gefa þeim V-merki."
Svo þú ert vel staðsettur?
„Mjög vel."
Fjarlægðin frá vellinum er ekki það mikil að þú þurfir
að hafa kíki með þér?
„Nei, nei. Maður er alveg á besta stað, þetta er svona
svipuð fjarlægð og að sitja efst í stúkunni á Laugardalsvell-
inum."
Er góð stemmning á vellinum?
„Ákaflega mikil stemmning. Það er sérstaklega gaman
að vera viðstaddur. Þetta er ekki eins og að horfa á leikinn
í sjónvarpi, maður er með alla hluti þarna, áhangendur lið-
anna til sitt hvorrar handar með flögg, syngjandi og trall-
andi."
Þú ert ekkert hræddur um að týnast innan um þennan
fjölda sem verður þarna?
Nei, maður týnist ekkert. Þetta tekur tíma, maður fer af
stað frá hóteli 11 um morguninn og kemur til baka 7 um
kvöldið. Leikurinn tekur tvo tíma, tvo og hálfan ef það þarf
að framlengja hann."
Ekkert hræddur um að fá innilokunarkennd?
„Ég hef staðið á velli sem dómari með 70 þúsund áhorf-
endur. Það er ekkert merkilegt, þ.e. ég hef aldrei fengið inni-
lokunarkennd."
Heldurðu að það verði skrílslæti á vellinum?
„Ég vona ekki. Yfirleitt er það ekki á Wembley, enda
mjög ströng öryggisgæsla. Það hefur þó þá veriö áður en
leikur hefst, svona smápústrar."
Þú ætlar ekki að taka þátt i slíku?
„Nei, en ég dreg nú taum Liverpool. Ég hef dæmt hjá
þeim leik í Evrópukeppni og þeir eru í hæsta gæðaflokki í
íþróttaheiminum, miklir höfðingar heim að sækja. Liver-
pool verður nú samt að spara sig betur en Arsenal ef þeir
ætla að vinna Wimbledon, þeir eru ansi sprækir í dag. Eg
spái því að ef Wimbledon tekst að skora fyrsta markið þá
vinni þeir leikinn. Liverpool er hins vegar það miklu sterk-
ara að þeir eiga ekki að þurfa að láta þá komast upp með
það."
Viltu spá einhverju um úrslit leiksins í tölum?
„Óskaúrslit eru 3—2 fyrir Liverpool en til vara spái ég
1—0 fyrir Wimbledon."
En leikurinn stendur og fellur með dómaranum, er það
ekki?
„Jú, hann gerir það. Þeir standa sig yfirleitt vel dómar-
arnir, það eru ekki valdir nema góðir menn í þetta."
Að lokum, viltu spá einhverju um 1. deildina hér heima
í sumar?
„Ég held að KR-ingarnir séu sterkastir, síðan komi Vík-
ingar og svo Frammararnir. Öll hin liðin geta fallið. Þetta
segi ég eftir því sem mér hefur virst í vor."
Á laugardaginn keppa Liverpool og Wimbledon til úrslita í
ensku bikarkeppninni á Wembley í Lundúnum, en sá völlur rúmar'
100 þúsund manns. Magnúsi Péturssyni, millirikjadómara í knatt-
spyrnu um árabil og umboðsaðila Mitre á íslandi, barst snögglega
boð um að vera gestur fyrirtækisins á leiknum. Magnús hefur oft-
sinnis séð leiki á Wembley og HP ræddi við hann um leikinn og
stemmninguna.
FYRST OG FREMST
I DV fyrir nokkru
skrifaði Þorsteinn Högni Gunnars-
son plötudóm um fyrstu breiðskífu
Sykurmolanna, Life’s too good.
Hann segir meðal annars:
...óyfirstíganlegt vandamál háir
mér við þessi skrif: mig skortir
orð. Ég er búinn að sitja fyrir
framan autt blaðið í ritvélinni
dágóða stund, bíða eftir því að
einhver ódauðleg lýsingarorð
spretti upp úr hugarfylgsnum
mínum til þess að binda blek-
fjötrum þær tilfinningar sem
hlustun á þessa plötu vekur hjá
mér. Ekkert gerist. Aldrei áður
hefur hið ritaða orð opinberað
fyrir mér á jafnaugljósan hátt
annmarka sína þegar lýsing á tón-
list er viðfangsefnið." Sykurmol-
arnir voru afskiptir hjá íslenskum
almenningi og í íslenskum fjöl-
miðlum fram að erlendri frægð.
Nú keppast allir við að hæla þeim,
líkt og í þessu dæmi svo rosalega
að engin orð fá snilld þeirra lýst.
Plötugagnrýnandinn er að
kremjast við ioftið í heyfullri
hlöðu, hann kemst ekki hærra.
Hvað gerir hann ef næsta plata
verður betri?...
ÞAÐ ER er undarlegur andskoti
að sitja í stjórninni hjá Granda hf.
Þar er svotil ekkert á hreinu og
enginn veit í raun og veru hvað
gerist á stjórnarfundum. Heilu
bílarnir fara framhjá mönnum.
Sumir stjórnarmenn hafa aldrei
heyrt á það minnst að stjórnin
hafi samþykkt að kaupa bíl handa
vesalings stjórnarformanninum.
Aðrir kannast mætavel við það.
Sumir segjast ekki hafa verið
byrjaðir í stjórninni þegar kaupin
voru samþykkt, en þá segir
einhver að það geti ekki passað.
Samkvæmt því sem hann minni hafi-
málið ekki verið tekið upp fyrr en
eftir að sá sem ekki sagðist hafa
verið í stjórninni var byrjaður.
Enginn veit hver lagði þetta til,
hvort það var lagt til, hvernig
tillagan hljóðaði og hvort hún var
samþykkt ef hún kom þá nokkurn
tíma fram. Allir kannast þó
stjórnarmennirnir við að vera í
stjórninni, a.m.k. enn, livað sem
síðar gerist. Er það jafnframt það
eina sem áreiðanlegt getur talist í
málinu . . .
ÞEIR Porsteinn Pálsson forsætis-
ráðherra og Jón Balduin
Hannibalsson fjármálaráðherra
hafa báðir lýst því yfir að rétt sé
að framkvæmdir á vegum Varnar-
lidsins verði boðnar út á
almennum markaði — að einokun
Islenskra aöalverktaka verði
aflétt. Þeim á Morgunbladinu þótti
að vonum við hæfi að leita álits
forstjóra ÍA, Thors Ó. Thors, á
þessum ummælum. I Mogganum
lýsti Thor því yfir að það væri
ekki sitt að koma með andsvör
eða athugasemdir við ummæli
forráðamanna þjóðarinnar. ,,Hins
vegar er sjálfsagt að svara öllum
efnislegum spurningum um þessi
efni, hér höfum við engin leyndar-
mál,“ bætti hann við. Og vaknar
þá upp spurningin: Hafði blaða-
maður engar efnislegar
spurningar á takteinunum, úr því
hann var með forstjórann í talfæri
— gat hann t.d. ekki spurt hreint
út: Telur þú rétt að fram-
kvæmdirnar verði boðnar út á
almennum markaði?
NEMENDUR geta verið utan
við sig í prófum eins og margir
eflaust þekkja. Hins vegar fannst
kristinfræðikennaranum eftirlætis-
nemandinn sinn meira en lítið
utan við sig þegar hann átti í
kristinfræðiprófi að nefna annað
orð yfir „kirkja". Hálstak var
svarið. Var einhver að tala um að
sakamálamyndir í sjónvarpi hefðu
áhrif á börn?!
MARGIR hafa á orði að
börnum sé sagt of snemma frá
öllum hlutum og þau eigi ekki
lengur sínar draumamyndir af
lífinu og tilverunni. Barnaskóla-
kennara einum þótti nóg um fyrir
páskana þegar hann var að segja
börnunum til í kristnum fræðum.
Einn nemandinn spurði hvort guð
hefði alltaf haft hlutina svona.
,,Já,“ svaraði kennarinn og bætti
við: „Líka þegar hann bjó þig til.“
Fimm ára guttinn horfði stórum
augum á kennarann og svaraði:
„Abbabbbabb, guð bjó mig ekkert
til. Mamma mín og pabbi höfðu
samfarir og svoleiðis varð ég til..."
MIKIÐ ands... er gaman að
auglýsingunni frá Ölgerð Egils
Skallagrímssonar þar sem
Sigurður Sigurjónsson er að selja
upptakara. Óllum auglýsingum er
ætlað að vekja athygli á einhverju,
þessi á að leiða hugann að nýju
dósagosi frá ölgerðinni. Það er
bara eitthvað undarlegt við hana.
Auglýsingin gengur öll út á dósa-
upptakara. Það væri í lagi ef þeir
hefðu nú nýverið fundið upp
aðferð til þess að opna gosdósir
en ég held að það hafi verið gert
fyrir löngu síðan. Það er vægast
sagt skrítið að taka upp á því að
auglýsa eitthvað sem allir vita að
er til. Gos kemur sáralítið við sögu
auglýsingarinnar. Það læðist að
manni sá vægast sagt andstyggi-
legi grunur að framleiðendurnir
geri sér grein fyrir því að dósa-
gosið þeirra sé ekki það gott að
hægt sé að slá sér upp á því. Þess
vegna auglýsi þeir upptakara í
staðinn...
FRRINU
HELGARPÚSTURINN UMMÆLI VIKUNNAR
HOMO SAABIENS
Þó viö megum þola tap
og þjóðhagslegan vanda,
aurar fyrir einum Saab
verð' alltaf til hjá Granda.
Niðri
,,Rökin fyrir nýja númerakerfinu voru tœtt
í sundur á þingi, en meirihlutinn veröur
víst ad fá ad ráda."
PÁLL PÉTURSSON, ÞINGMAÐUR
FRAMSÓKNARFLOKKS, H-1500.
2 HELGARPÓSTURINN