Helgarpósturinn - 12.05.1988, Page 3
jurti-sf.
sonar, hins landskunna leikara,
skemmtikrafts, hagyrðings og
pistlahöfundar, er að vera settur á
frímerki, því þannig myndi þorri ís-
lendinga sleikja á honum bakhlut-
ann. Heitasta ósk konu hans, Lilju
Margeirsdóttur, er að vera með
Flosa á frímerki. Þetta og margt
fleira kemur fram í viðtali við þau
hjónin sem prýða næstu forsíðu
tímaritsins Mannlífs, en það kemur
út um helgina. Þau turtildúfurnar
láta gamminn geisa í viðtalinu eftir
því sem fréttist, eru lausmálg um
kynlíf og annað sem ekki er venja
að spjalla um. Það þarf ekki að taka
það fram að þau hjónin eru á frí-
merki á forsíðunni. . .
iSftir því sem HP heyrir standa
nú fyrir dyrum veigamiklar breyt-
ingar á dagskrá rósar 2. Búið er að
segja upp nokkrum starfsmönnum,
þar á meðal tvíeykinu Skúla Helga-
syni og Snorra Má Skúlasyni, en
þeir hafa starfað við rásina frá upp-
hafi. Þá ku Jón Olafsson sömuleið-
is vera að hætta. Sagan segir að það
standi til að miða rásina framvegis
við aldurshópinn 30 til 60 ára ára,
um leið og áherslu á landsbyggðina
er við haldið, og láta vera að standa
í samkeppni við síbyljustöðvarnar.
Eftir því sem heyrist hefur og verið
ákveðið að taka inn talmálsþætti á
kvöldin með haustinu og er það
einn liðurinn í því að höfða til eldri
hlustenda en tónlistarstöðvarnar
gera almennt. Það hefur sömuleiðis
heyrst að brúnin hafi lyfst á þeim
rásarmönnum að undanförnu;
Dægurmáladeildin hefur skilað
aukinni hlustun sem þýðir auknar
auglýsingar og hafa þær sögur
gengið um stofnunina að rásin sé
rekin með hagnaði um þessar
mundir. . .
E ins og menn muna skipaði út-
varpsstjóri, Markús Örn Antons-
son, þriggja manna nefnd til að
gera úttekt og leggja til breytingar á
fréttareglum ríkisútvarpsins fyrir
stuttu. Menntamálaráðherra og
flokksbróðir útvarpsstjóra, Birgir
ísleifur Gunnarsson, upplýsti
síðan á Alþingi þegar hann lagði
fram Tangen-skýrslu Þórs White-
heads, að útvarpsstjóri hefði skipað
í nefndina í framhaldi af þessu máli,
sem er afskaplega merkileg yfirlýs-
ing þótt hún láti lítið yfir sér. Nefnd-
in sem útvarpsstjóri fékk til starfans
er skipuð Baldri Guðlaugssyni,
bankaráðsmanni í Útvegsbankan-
um hf., Margréti Heinreksdóttur
lögmanni og Ólafi Þ. Harðarsyni,
lektor í félagsvísindadeild Hl. Menn
undrast ekki mjög veru bankaráðs-
mannsins í endurskoðunarnefnd
fréttareglna rikisútvarpsins, en þyk-
ir hinir tveir nefndarmenn hafa látið
„platá' sig til nefndarstarfans, sér-
staklega þegar hafðar eru í huga út-
skýringar menntamálaráðherra
sem hér var drepið á að ofan. . .
i
Meistaraverk er eina orðið
sem hægt er að nota yfir þetta
margslungna og fjölhæfa
myndbandstæki. Gæði ofar
öllu var það sem Panasonic
stefndi að með þessu tæki og
var ekkert til sparað við hönn-
un tækisins. Enda er útkoman
tæki í algerum sérflokki sem
t.d. hið virta tæknirit "What
Video“ valdi besta tæki ársins
í sínum verð- og gæðaflokki.
Sömu sögu er að segja frá
Þýskalandi, þar trónir tækið í
fyrsta sæti í sínum gæðaflokki
hjá fagritinu “Video“.
SENDIPENNINN
Þessi stórkostlega heimsnýj-
ung gerir upptökurfram í tím-
ann að barnaleik. Á nokkrum
sekúndum stillir þú upptöku-
klukkuna, með 100% ná-
kvæmni, engirlitlir, leiðinlegir
takkar, aðeins nokkur penna-
strik. Einfaldara getur það ekki
verið.
FJÓRIR
MYNDHAUSAR
Til að tryggja hreina kyrrmynd
og hraðastillanlega truflunar-
lausa hægmynd notar NV-G21
fjóra myndhausa. Nú er hægt
að skoða hvert smáatriði í
myndinni af mikilli nákvæmni.
ÞÁ BÝÐUR ÞETTA
TÆKI EINNIG UPPÁ:
Alfullkomna fjarstýringu.
HQ myndgæði (High Quality).
Hraðanákvæmni 99,999%.
Rafeindastýrða snertitakka.
Tvöfaldan hraða.
Mánaðarupptökuminni með 8
prógrömmum.
24 tíma skynditímatöku.
Stafrænan teljara sem telur
klukkutíma, mínútur og sek-
úndur.
Sjálfvirka bakspólun.
Sjálfvirka gangsetningu við
innsetningu spólu.
PS. Ef þú átt gamalt BETA
eða VHS myndbandstæki þá
tökum við það upp í á 7.000
kr. burtséð frá tegund, aldri
eða ástandi.
JAPISS
BRAUTARHOLT 2 • KRINGLAN • SiMI 27133
99 rásir.
32 stöðva minni.
Sjálfvirkan stöðvaleitara
Læsanlegan hrað-
leitara með mynd.
Leitara með mynd
áfram. ■
Leitara með mynd
afturábak.
Myndskerpustillingu.
Fjölvísi sem leyfir þér að fylgj-
ast með öllum gjörðum tækis-
ins.
Fjölþætta tengimöguleika.
Tækið er byggt á steyptri ál-
grind.
Og ótal margt fleira.
Nú býðst þetta tæki á kosta-
boði, aðeins kr. 52.800,-
Staðgreitt, aðeins kr. 49.890,-
ENNEITT
MEKTflRAVERKI
FRÁ PANASONIC
►HEAD
Auto Operation System
Supet Stál & DoutSe Supet Ftrte
í imer Prograroroa
Panasonic
Vídeo Cassette Recorder NV-G21 HQ
Superl-H^d JJöUÍÉ! gyp. pj^ gjQW
illlllll Digitd Scanner | || 11
ms
Adaptabie tor VP8
c»
D i ■ n j
L i ■ u L.
n ■ n zt Zi c
U U L. J D
HELGARPÓSTURINN 3