Helgarpósturinn - 12.05.1988, Blaðsíða 5
Grátkórinn hækkar raddirnar
GÓÐÆRIÐ HORFIÐ
*
Utgeröar- og fiskvinnsluadallinn krefst gengisfellingar og launalækkunar.
Skammar sjálfan sig fyrir ofmikinn ferskfiskútflutning og krefst þess aö samfélagiö axli ábyrgöina.
Síðustu dagana hefur rjómi hins íslenska útgerðar-
og fiskvinnsluaðals safnast saman til að meta liðið ár
heildarsamtaka sinna. Það er augljóst á orðum for-
svarsmanna þessara samtaka að allt er við það sama
í íslenskum sjávarútvegi: Verð og afli sveiflast — í fyrra
var góðæri lengst af en nú blasa skyndilega við ör-
birgð og örvænting, gjaldþrot og ónýtir markaðir.
Dagbjartur Einarsson, stjórnarformaöur Sölusam-
bands íslenskra fiskframleiðenda, lýsti þannig sídasta
ári sem einhverju því allra besta í manna minnum, en
samt væri útlitiö dökkt. Ísídustu viku var haldinn aö-
alfundur Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, SH, þar
sem áhyggjurnar réöu feröinni.
EFTIR FRIÐRIK ÞÓR GUÐMUNDSSON MYND JIM SMART
íslenskur fiskur í hamborgarakeðju a la USA
Eftir mikla velgengni og ört hækkandi verð í Bandarikjunum viröist Ijóst
að menn hafa teygt sig of langt. Tap SH á síðasta ári stafaði hins vegar af
hruni í Bretlandi þangað sem alltof mikill óunninn fiskur fór fyrir of lítið og
of mikinn tilkostnað. Nú eru það bresku fiskvinnsluhúsin sem bjóða úrvals
íslenskt unnið hráefni.
Fyrir útgerðar- og fiskvinnslu-
aðalinn í SH er það fastgengis-
stefna ríkisstjórnarinnar sem alla
er að drepa. í einfaldleika sínum
lítur dæmið þannig út að gjaldeyr-
istekjurnar snarminnka við þetta
ástand á sama tíma og tilkostnað-
urinn vex óðfluga í verðbólgunni
og launaskriðinu. Nú kalla þessir
aðilar hástöfum á gengisfellingu
til að tekjurnar aukist, en af sam-
tölum við aðalfundargesti SH að
dæma er jafnmikilvægt í þeirra
augum að það leiði ekki til verð-
bólgu og launahækkunar. Þessu
má aðeins koma heim og saman,
sagði einn fundarmanna, með því
að segja hreinskilnislega að launin
verði að lækka. Það verður ekki
hjá því komist að skerða kaup-
máttinn. En það er fleira en of lágt
gengi og of hátt kaup sem svekkir
þessa menn.
Það fór ekki framhjá neinum að
utan fastgengistefnunnar bar mest
á óánægju með mjög aukinn út-
flutning á óunnum fiski inn á Bret-
landsmarkað. Jón tnguarsson,
stjórnarformaður SH, fullyrti í
skýrslu sinni að þessi útflutningur
hefði undanfarið keyrt um þver-
bak, sérstaklega í ljósi þess að allt
að 90% þessa fisks færi til frysting-
ar ytra, sem leiddi til verðlækkun-
ar vegna undirboðs hinna erlendu
aðila.
„Sannast best að segja finnst
manni að nægur sé munurinn fyr-
ir á samkeppnisstöðu breskra og
íslenskra fiskvinnslufyrirtækja án
þess að Islendingar sjálfir auki
hann enn frekar með því að selja
þangað ódýrt hráefni til vinnslu til
þess síðan að breskar fiskvinnslu-
stöðvar geti undirboðið okkur á
markaðinum. Lítið vit sýnist í
slíku háttalagi og hittir það að
sjálfsögðu okkur sjálfa fyrst og
fremst í bakið," sagði Jón.
Þessar yfirlýsingar stjórnarfor-
mannsins og fleiri talsmanna úr
röðum SH hafa vakið mikla at-
hygli. Jón er þarna sem fulltrúi
frystihúsa að skamma útgerðarfé-
lög landsins fyrir að sigla með afla
sinn eða flytja út í gámum í of
miklum mæli. Sú staðreynd hefur
hins vegar farið framhjá fáum, að
mjög stór hluti fiskvinnslunnar er
í beinum tengslum við útgerðina,
afar víða er eignarhaldið á hönd-
um sömu aðilanna. Sjálfur Grandi
hf. hefur sent togara sína í gríð og
erg til Bretlands, Þýskalands og
jafnvel Frakklands. Þeir sem dug-
legastir hafa verið að sigla með
afla eða flytja út í gámum eru Vest-
manneyingar, sem öflugastir eru í
SH. Nýlega mátti lesa í Fiskifrétt-
um að eina vikuna hefðu 45 gám-
ar farið frá Vestmannaeyjum út,
og þar af 40 til Bretlands. Það
fylgdi sögunni, að enginn í Eyjum
virtist hafa yfirsýn yfir heildarafla
bátanna, en ekki virðist ástæða til
að ætla að í útflutningi á óunnum
fiski skeri sig úr stóru aðilarnir í
SH, eins og Hradfrystistödin og
FiskmjöIsuerksrnidjan, sem gera
út ófá fiskiskipin. Sömu sögu er að
segja af Völusteini i Bolungarvík,
sem er útgerðaraðili Einars Guð-
finnssonar hf. Nefna má og að tog-
arinn Guðmundur Kristinn fer
reglulega út með afla, en hann er
í eigu Pólarsíldar á Fáskrúösfirði,
sem er aðili að SH. Afram mætti
telja: Það ætti að vera hægur
vandinn fyrir slíka aðila að hafa
stjórn á útflutningi sínum á óunn-
um fiski.
GRANDI ER STÆRSTUR
Þá skýringu fékk HP helst, að
verið væri að „kaupa frið“, því út-
gerðirnar/frystihúsin kæmust
ekki hjá því að leyfa skipverjum að
stunda þetta og skipti þá ekki máli
hvort aðilarnir væru í SH, í SÍS-
veldinu eða sjálfstæðir. Eina
leiðin sem fannst út úr ógöngun-
um var að grípa til meðals, sem að-
standendurnir geta alla jaf na — að
banna ferskfiskútflutning.
Eftir sameiningu BÚR og ís-
bjarnarins í hlutafélagið Granda er
þetta fyrirtæki, sem að þremur
fjórðu hlutum er í eigu borgarbúa,
stærsti einstaki eignaraðilinn í SH
með rúmlega 9,8 prósent 1987.
Hins vegar fengu BÖR og ísbjörn-
inn hluti sína greidda út við sam-
eininguna og má heita að Grandi
sé árið 1988 lítill aðili í SH en skjót-
vaxandi vegna mikillar fram-
leiðslu. Grandi leggur enda til
stjórnarformann SH, sem er Jón
Ingvarsson „fsbjarnarbróðir".
Næststærsti eignaraðilinn er Út-
geröarfélag Akureyringa með 7,1
prósent og leggja norðanmenn til
Gísla Konráðsson forstjóra í stjórn-
ina. Ekki er kvartað yfir stöðunni
á þeim bæ! Þeir þriðju í röðinni
eru synir Einars Guðfinnssonar í
Ishúsfélagi Bolungarvíkur með
5,1 prósent og með Guðfinn Ein-
arssori í stjórn SH, en hann er
einnig stjórnarformaður Cold-
water.
Það eru hins vegar Vestmann-
eyingar sem til samans eru öflug-
astir í SH. Isfélag Vestmannaeyja
er með 4,84 prósent, Vinnslustöð-
in hf. með 4,84 prósent, Fiskiðjan
hf, með 4,54 prósent, Hraðfrysti-
stöð Vestmannaeyja með 0,63%,
Fiskmjölsverksmiðjan í Eyjum
með 0,37 prósent og Baldur hf.
með 0,21 prósent. Samtals gerir
þetta hlut Vestmanneyinga um
15,43%.
I ársskýrslu SH fyrir 1987 eru
skráðir alls 79 eignaraðilar, en
eignarhluturinn er mjög misjafn.
11 stærstu eignaraðilarnir eiga
þannig yfir helming eignanna
þetta árið. Flestir þeir sem ein-
hverju máli skipta innan SH eru
bæði í útgerð og fiskvinnslu og því
beggja vegna borðsins. Þetta gild-
ir um Granda í Reykjavík, Út-
gerðarfélag Akureyringa, íshúsfé-
lag Bolungarvíkur og flesta aðra í
SH. í tilfelli aðila eins og Granda,
Hraðfrystistöðvarinnar í Reykja-
vík og Hraðfrystistöðvarinnar í
Vestmannaeyjum er það eitt og
sama fyrirtækið, sem skráð er fyr-
ir skipunum og vinnslunni, en í
öðrum tilfellum, eins og hjá íshús-
félagi Bolungarvíkur, Ishúsfélagi
ísfirðinga og Hraðfrystihúsi Eski-
fjarðar, eru stofnuð sérstök hluta-
félög um útgerðina. í síðara tilfell-
inu getur þá forstjóri fiskvinnsl-
unnar skammað útgerðarstjórann
fyrir að flytja of mikið út í gámum
og stuðla þannig að verðfalli á
unnum fiski á erlendum mörkuð-
um. í hinum tilfellunum skammar
forstjórinn sjálfan sig.
VALDAHLUTFÖLLUM
BREYTT
í mörg ár hafa bæði stórir aðilar
og litlir í SH starfað saman í sátt og
samlyndi um þá reglu, að eitt at-
kvæði gilti fyrir hvert hraðfrysti-
hús. Þetta hefur þýtt að fulltrúar
lítilla fyrirtækja með takmarkað
útflutningsverðmæti hafa vegið
jafnt við afgreiðslu mála og hinir
stóru á borð við Útgerðarfélag
Akureyringa, Vestmanneyinga og
Vestfirðinga. Nú var hins vegar
samþykkt breyting á, þannig að
dregið var talsvert úr vægi hinna
smáu. Þetta virðist hafa verið gert
að mestu hávaðalaust, þótt margir
hafi um leið misst talsvert af
áhrifamætti sínum. Hin nýsam-
þykkta regia er á þá leið að 20%
atkvæða skuli skiptast jafnt á milli
félagsmanna, 40% á milli félags-
manna í hlutfalli við útflutnings-
verðmæti fyrir liðið starfsár og
40% á milli félagsmanna miðað
við eignarhlutfall félagsmanna
um næstliðin áramót. Sem fyrr
gildir þó sú almenna takmörkun
að enginn fundarmanna geti farið
með meira en 20% atkvæða.
I samtali við HP bar einn tals-
maður smæstu eignaraðilanna á
móti því að þetta væri þungbær
breyting og sagði hana að mörgu
leyti mjög skiljanlega. Staðreynd-
in væri sú að smáum aðilum hefði
fjölgað talsvert og sumir stofnaðil-
anna jafnvel óvirkir í verðmæta-
sköpuninni. Viðmælandinn lagði
enda áherslu á að hópurinn í SH
væri samstæður og stjórnendurn-
ir góðir. „Maður hefur alls ekki
orðið var við að maður sé ekki
tekinn sem fullgildur aðili, þótt
eignarhluturinn sé ekki ýkja stór.
SH er rekið með myndarskap, það
ríkir agi og regla á hlutunum."
SH er annað veltuhæsta fyrir-
tæki landsins, á eftir SÍS, er. á hinn
bóginn er SH mesta útflutnings-
fyrirtæki landsins. Coldwater
Seafood í Bandaríkjunum, lce-
landic Freezing Plants í Bretlandi
og Verkaufszentrale í Þýskalandi
eru 100% í eigu SH og er nafnverð
hlutabréfa í þessum dótturfyrir-
tækjum um 55 milljónir króna.
Eignir þessara dótturfyrirtækja
voru hins vegar metnar í árs-
skýrslu upp á 4,5 milljarða króna,
þar af tæpur milljarður í eignum
og tækjum. SH á meirihluta hluta-
bréfa í tveimur öðrum hlutafélög-
um, Jöklum hf. (95%) og Umbúða-
miðstöðinni hf. (71%). I ársreikn-
ingi þeim sem lagður var fram á
aðalfundinum í síðustu viku var að
finna svokallaðan samstæðu-
reikning yfir rekstur og eignir
móðurfyrirtækisins og dótturfyr-
irtækjanna.
Svo reiknað hljóða eignir SH
1987 upp á 5.554 milljónir króna
og höfðu aukist um 20% frá árinu
áður. Af þessu töldust eignir og
tæki vera um 1.300 milljónir
króna, en birgðir um 2.700 millj-
ónir. Á árinu voru seldar vörur
fyrir 11,5 milljarða króna. Það
kostaði hins vegar 10 milljarða að
framleiða vöruna og „sölu- og
stjórnunarkostnaður" hljóðaði
upp á heilan milljarð. í heild tapaði
SH samkvæmt ásskýrslunni 1987
rúmlega 21 milljón króna á móti
rúmlega 81 milljónar króna hagn-
aði 1986. Ástæða þessa er fyrst og
fremst rúmlega 65 milljóna króna
tap dótturfyrirtækisins í Bretlandi,
enda var flest annað hjá SH réttu
megin við núllið margumtalaða.
ÞRÆÐIR LIGGJA VÍÐA
SH á síðan allstóra hluti i Plast-
prenti hf, Sjóeldi hf, Vogalaxi hf.
og Icecon hf., en auk þessa hefur
SH lagt fé í Útvegsbankann nýja,
Verslunarbankann, Isfélag Þor-
lákshafnar og Frumkvœði hf. Þá
má heita að Tryggingamiðstöðin
sée.k. dótturfyrirtæki SH, þar sem
flestir þeir sem eiga tryggingafé-
lagið starfa einnig saman í SH, en
í stjórn Tryggingamiðstöðvarinn-
ar hafa síðustu árin setið menn
eins og Guðfinnur Einarsson frá
Bolungarvík, Haraldur Sturlaugs-
son frá Akranesi, Jón lngvarsson,
stjórnarformaður SH, útgerðarris-
arnir úr Vestmannaeyjum, Har-
aldur Gíslason og Sigurður Ein-
arsson, og Ólafur B. Ólafsson í
Miðnesi hf. í Sandgerði. Ólafur og
Guðfinnur áttu báðir sæti í stjórn
Hafskips á sínum tíma og má geta
þess að Tryggingamiðstöðin öðl-
aðist meirihluta í Reykvískri end-
urtryggingu með því að kaupa upp
hluti Hafskipsforstjóranna Ragn-
ars Kjartanssonar og Björgúlfs
Guðmundssonar.
Þá hafa einstaklingar innan vé-
banda SH verið mjög virkir í
stjórnum olíufélaganna. I stjórn
Skeljungs hafa undanfarið setið
Jónatan Einarsson, Haraldur
Sturlaugsson og Sigurður Einars-
son, en í stjórn Olíufélagsins þeir
Haraldur Gíslason, Kristján Lofts-
son (í Hval) og Karvel Ógmunds-
son, Keflavík. Á sínum tíma áttu
sæti í stjórn OLÍS þeir feðgar í ís-
birninum Ingvar Vilhjálmsson og
Vilhjálmur Ingvarsson, en það
breyttist þegar Óli Kr. Sigurðsson
keypti félagið. Þó hafa margir öfl-
ugustu aðstandendur SH ekki síð-
ur verið virkir við stjórnvöl
stærstu flutningafyrirtækja lands-
ins.
HVER BER
ABYRGÐINA?
Að öllu upptöldu liggur ljóst fyr-
ir aö aðstandendur fyrirtækjanna
innan SH eru einhverjir þeir öflug-
ustu í þjóðfélaginu, þar sem
áhrifamáttur þeirra nær víða og í
mörgum tilfellum „eiga“ þeir sín
bæjar- eða sveitarfélög. Þessir
menn hafa ásamt SÍS-veldinu haft
einokun á fiskútflutningi um ára-
tugaskeið, á því sem máli skiptir.
Það eru þeir sjálfir sem ráða því,
hvort hinir erlendu markaðir vaxa
eða hrynja. Það er á þeirra ábyrgð
að jafna hinar ofvöxnu sveiflur í
sjávarútvegi, með því að jafna
sveiflurnar með sérstökum að-
gerðum og jrar til gerðum sjóðum
á borð við verðjöfnunarsjóð og
aflatryggingasjóð. Það er á þeirra
ábyrgð að semja við fiskvinnslu-
fólk og sjómenn um laun og ann-
arra í atvinnurekendastétt að
hleypa tilkostnaðinum ekki blint
út í verðlagið. Mótsagnakenndar
kröfur um gengisfellingu, verð-
hjöðnun, bann við ferskfiskút-
flutningi og áframhaldandi ein-
okun heildarsamtakanna á fiskút-
flutningi verða hjáróma þegar
þess er gætt hvar ábyrgðin liggur.
HELGARPÓSTURINN 5