Helgarpósturinn - 12.05.1988, Blaðsíða 6
Nýbygging Álþingis
STÆKKUN ÞINGHUSSINS
Nýbygging AIþingis er nú í undirbúningi, risavaxiö hús
sem mun ryðja öðrum burtu af Kirkjustrœtinu nema
sjálfu Alþingishúsinu og Dómkirkjunni og þekja að auki
bílastœðin neðst við Tjarnargötu, allt niður í Vonar-
stræti. Húsið verður nœrri þrefalt stœrra en umdeilt ráð-
hús á tjarnarhorni í nágrenninu. Húsið verður útihús
Alþingishússins, allsherjar skrifstofu- og þjónustubygg-
ing, tengd með jarðgöngum til að vernda betur sérstöðu
gamla hússins og dómkirkju þjóðarinnar. Húsið verður
hins vegar það stórt að gamla alþingishúsið mun frekar
minna á bíslag við hlið þess en móðurhús. Nýbygging-
unni er ætlað að bœta úr húsnæðisþörf Alþingis, sem nú
rekur starfsemi sína í nokkrum smœrri húsum í miðborg-
inni. Sérstaka athygli vekur fullkominn eróbikksalur fyr-
ir þingmenn í vesturhorni byggingarinnar.
EFTIR FREY ÞORMOÐSSON
í húsinu fá þingmenn og þing-
flokkar skrifstofur saman í hnapp,
þingnefndir fá fundarherbergi,
forsetar þingsins fá rúmgóða að-
stöðu og öll skrifstofustarfsemi þess.
Skjala- og gagnavarsla Alþingis
verður í nýbyggingunni, prent-
smiðja og ritvinnsla Aiþingistíð-
inda, bókasafn og tölvudeild með
sérstakri kennslustofu. íslandsdeild
Norðurlandaráðs fær góða aðstöðu
fyrir fundi og talsamband við út-
lönd, fréttamönnum er ætlað tölu-
vert rými og síldarbrauðs- og hafra-
grautsmötuneyti gamla hússins
breytist í veitingastað í nýja húsinu
sem þjónusta skal hundrað manns í
einu með heita rétti. Þó er gert ráð
fyrir sjálfsafgreiðslu nema í sérstök-
um sal þar sem veitt verður íburðar-
meiri þjónusta við ýmis tilefni. Auk
þessa hefur húsvarsla alþingis að-
stöðu í húsinu, í fyrsta og öðrum
kjallara verða nærri tvö hundruð
bílastæði, en þar mun hugsanlega
gæta sjávarfalla líkt og í Morgun-
blaðshúsinu, sem ristir þó ekki eins
djúpt. Tvöfaldur kjallari þýðir að
dýpt grunnsins verður ekki minni
en sjö metrar. Sjö metrar beint ofan
í jörðina. Síðast en ekki síst verður
í nýbyggingunni fullkomin aðstaða
fyrir líkamsrækt þingmanna og
Forsalurinn verður með glæsilegra móti.
Li
starfsfólk alþingis; eróbikksalur,
tæki til vaxtarræktar, gufuböð,
sturtur, búningsklefar og hvíldar-
herbergi. Hvíldarherbergi. Þá eru
ótaldir fundar- og samkomusalir
með almyrkursmöguleika, mót-
tökurými, setustofur, gangar, for-
hallir og glergöng í lausu lofti sem
stytta þingmönnum leið á milli
álma.
LEIKFANGABORGIN
Fundir þingdeilda og sameinaðs
þings munu áfram verða í gamla
húsinu samkvæmt hefð, og kringlu-
meldingar munu væntanlega ekki
líða undir lok. Það sem hins vegar
mun ekki aukast að rúmmáli er
áhorfendastúkan í leikhúsi þjóð-
málaumræðunnar.
Forhallir, salir og brýr í útihúsi
alþingis minna um margt á nýreista
verslunarmiðstöð í miðbæ sem sjálf
pSÍpÍP§#IÍ I
minnir meira á sandköku en nafnið
gefur til kynna. Hún er annars at-
hyglisverð áráttan á síðari árum að
vilja byggja stórhýsi og hallir. í þeim
efnum er ekki logið um stórhug ís-
lendinga. Flugstöð, verslunarmið-
stöð, þjóðarbókhlaða, ráðhús, veit-
ingahús sem snýst, nýbygging al-
þingis og átta þúsund manna
íþróttahöll.
Reykjavík hættir bráðum að vera
leikfangaborg, „toytown", eins og
ferðamenn kalla hana. Liður í að
uppræta minnimáttarkenndina?
Brátt förum við að súpa hveljur á
götum Reykjavíkur eins og íslands-
barn í bandarískri stórborg eða
norðanmaður sem ekki hefur kom-
ið í lengri tíma á Selfoss og gýtur
óviðbúnum augum frá Tryggva-
skála til Ársala eða frá gamja kaup-
félaginu til þess nýja. Ölfusbrú
Tryggva virkar allt í einu smá.
HÁTT í ÞRJÚ RÁÐHÚS
Það fyrsta sem athygli vekur er
turn á austurenda byggingarinnar,
sem greinilega er svar við varðskýl-
inu sem leikur hlutverk Dómkirkju-
turns. Turn nýbyggingarinnar er
öðru fremur tákn hennar. Bygging-
in rís að öðru leyti ekkí hærra en
Alþingishúsið og Dómkirkjan, en er
þeim mun þykkari og niðurgrafnari,
auk þess sem hún beygir fyrir horn.
Samkvæmt grunnfleti komast
fimm Alþingishús inn í nýbygging-
una, þversum hlíð við hlið. Með ný-
byggingunni vérður rýmisaukning
Alþingis hins vegar tíföld. Frum-
áætlun gerir ráð fyrir að brúttó-
stærð ofanjarðar verði 6.645 fer-
Nýbygginyin séð frá sjónarhorni Jóns Sig
urössonar.
6 HELGARPÓSTURINN