Helgarpósturinn - 12.05.1988, Síða 12
u
■ ú er búið að senda Alþingi
heim í langt sumarfrí. Mál sem
margir héldu að yrði á dagskrá
„gleymdist", en það var endurmats-
skýrsla bankamálaráðherrans,
Jóns Sigurðssonar, skýrslan um
Útvegsbanka Islands og uppgjör
hans við fortíðina. Eru margir þing-
manna hissa á því að þetta mál skuli
ekki hafa komið til umræðu á Al-
þingi, svo umfangsmikið sem það er
í peningum metið. Þar fyrir utan
snertir það tvo þingmenn sem sitja
á Alþingi, þá Albert Guðmunds-
son, fyrrum formann bankaráðs Út-
vegsbankans, og Jóhann Ein-
varðsson alþingismann, en ekki er
óhugsandi að þeir vildu láta i sér
heyra um endurmatið á bankanum,
enda voru þeir kjörnir í bankaráð af
Alþingi. . .
l tímaritinu Mannlífi, sem kemur
út á næstu dögum, ku vera ákaflega
forvitnilegt viötal við fyrrverandi
fangavörð, Hlyn Þór Magnússon.
Hlynur þessi hóf störf sem fanga-
vörður um miðjan áttunda áratug-
inn og var m.a. einn þeirra sem
gættu gæsluvarðhaldsfanga í Geir-
finnsmálinu illræmda. Eftir því
sem HP heyrir dregur Hlynur hvergi
neitt undan í samtali sínu við Mann-
líf, segir frá lyfjagjöfum sem beitt
var til að gera fangana samvinnu-
þýðari, viðurkennir að fangarnir
hafi verið settir í svokallaða
„strekkingu“, þar sem þeir voru
járnaðir á höndum og fótum og látn-
ir liggja allir teygðir um langan
tíma. Segir frá hvernig fangavörð-
um var innrætt að spila á veikleika
fanganna, t.d. vatnshræðslu Sævars
Ciecielski með því að hóta honum í
sífellu að drekkja honum í vaskafati.
Eftir því sem Hlynur segir var höfði
viui; h
‘ 5>t
Frá því að Victor VPC kom á markaðinn hefur hún verið mest selda einmenningstölvan á ísl-
andi. Á tímabilinu frá ágúst 1986 til ágúst 1987 hafa hátt á þriðja þúsund Victor tölvur verið
teknar í notkun hér á landi. Það segir meira en flest orð um vinsældir, ágæti og fjölhæfni
Victor tölvanna.
einwennmgs-
nú fáanleg með byltingar
kenndri nýjung!
Victor VPC III
er nýjasta einmenningstölvan í Victor
fjölskyldunni. Hún er AT samhæfð og
hentar því vel fyrirtækjum og stofnun-
um. VPC III er með byltingarkenndri
nýjung sem felur í sér möguleika á 30
mb færanlegum viðbótardiski,
svokölluðum ADD-PACK, sem smellt
er í tölvuna með einu handtaki. Sér-
lega hagkvæmt við afritatöku og þegar
færa þarf upplýsingar á milli tölva, s.s.
fyrir endurskoðendur o.þ.h. Einnig
fáanleg með 60 mb hörðum diski
(samtals 90 mb með ADD-PACK).
Victor tölvurnar eru nú í notkun í öll-
um greinum atvinnulífsins og reynast
einstaklega vel við erfiðar aðstæður.
Helstu ástæður vinsældanna eru án
efa afkastageta, stærra vinnslu- og
geymsluminni, falleg hönnun, hag-
stætt verð og síðast en ekki síst góð
þjónusta. Bilanatíðnin er einhver sú
lægsta sem þekkist, þrátt fyrir að
Victor hafi rutt brautina með fjölmarg-
ar nýjungar. Og nú fylgir MS-Windows
Write & Paint forritið öllum Victor
tölvum sem eru með harðan disk.
Þrjár gerðir Victor einmenningstölva
eru nú fáanlegar: Victor VPC Ile, Victor
V 286 og Victor VPCIII.
Victor þjónar stofnunum og fyrirtækj-
um í iðnaði, sjávarútvegi, landbúnaði,
verslun, þjónustu sem og mennta-
stofnunum, námsmönnum og ein-
staklingum. Victor getur örugglega
orðið þér að liði líka. Athugaðu málið
og kynntu þér Victor örl ítið betur - þú
verður ekki svikinn af því!
O)
=3
03
VICT* R
EinarJ. Skúlason hf.
Grensásvegi 10, sími 68-69-33
Sævars síðan dýft í fullt fat af vatni
til að brjóta hann niður. Sömuleiðis
segir Hlynur frá því þegar föngum
voru borin upplogin skilaboð og til-
tekur meðal annars að Einari
Bollasyni hafi verið færð þau skila-
boð frá konu hans að það væri
best fyrir hann að játa, hún væri bú-
in að segja allt af létta. Eins og fólki
er vafalaust í fersku minni kom
Einar aldrei nærri þessi máli að
öðru leyti en að vera hnepptur sak-
laus í gæsluvarðhald og látinn dúsa
þar meðan lögreglan fann það út að
sakir sem á hann voru bornar voru
tilbúningur. Þetta er í fyrsta skipti
sem innanbúðarmaður í Síðumúla-
fangelsinu frá þessum tíma segir frá
því sem þar gerðist, en á meðan á
rannsókn Geirfinnsmálsins stóð
komst hvað eftir annað sá kvittur á
kreik að föngum væri sýnt harðræði
innan veggja fangelsins. Eftir því
sem Hlynur segir var Síðumúla-
fangelsið líkast apóteki á þessum
tíma og læknir kom á morgnana til
að skrifa upp hvaða lyf ætti að færa
föngum yfir daginn. — Viðtal þetta
ku bera yfirskriftina Galdrafár og
ofsóknir, en þetta dularfyllsta
sakamál aldarinnar á íslandi tekur
sífellt á sig fleiri og jafnframt ógeö-
felldari myndir. . .
u
ppeldisstöð utanrikis-
ráðuneytisins fyrir nýja starfs-
menn er fjölmiðlar, einkum erlend-
ar fréttadeildir. Nú síðast hefur
Guðni Bragason, margreyndur
fréttamaður erlendra frétta á sjón-
varpinu, verið ráðinn til utanríkis-
ráðuneytisins. Hann er fjórði frétta-
maðurinn sem hverfur til starfa á
þessum vettvangi. Sturla Sigur-
jónsson, Stefán M. Stefánsson og
Albert Jónsson stigu allir þetta
skref á undan Guðna Bragasyni . . .
12 HELGARPÓSTURINN