Helgarpósturinn - 12.05.1988, Blaðsíða 17
EFTIR KRISTJÁN KRISTJÁNSSON MYND JIM SMART
alltaf
myndm er
I llfshættu
Karl Kvaran minnir kannski ad einhverju leyti á Organistann í Atómstöð-
inni. Ilítilliíbúö á fjórðu hœö býr hann og fersjaldan út. Ró hans ogsú innri
fullnœgja sem málverkiö veitir gera hann taóískan. Málverkið er hans
heimur. Litir, línur og form. Hann segist ekki hafa hugsaö út í hvaö sé heill-
andi viö línuna. Pað sé erfitt aö skýra. Samt er hann búinn aö há viö hana
einkastríö í fjóra áratugi. Hefur sveigt hana og beygt. En hún gefur alltaf
jafnmikiö til baka. Endalaust svarar línan listamanninum, en sjaldnast á
skýran hátt. Pað vakna margar spurningar viö gerö hverrar myndar.
Karl sýnir um þessar mundir blýantsteikning-
ar á pappír í Gallerí Svörtu á hvítu. Þetta eru
myndir sem hann gerdi sumar hverjar fyrir
tuttugu árum. Hefur aldrei sýnt þœr og reyndar
aldrei sýnt slíkar myndir fyrr á ferlinum. Af
hverju? „Ég veit það ekki,“ segir hann, „þær
hafa bara legið þarna." Hann er ekki einu sinni
viss um ad fara á opnunina: „Ég er búinn að sjá
þessar myndir,“ svarar hann þegar hana ber á
góma. Hann hefur í gegnum tídina fengist vid
einföld form, fáa liti og línur. Og myndirnar sem
hann er med í takinu sem stendur eru keimlíkar.
Hann er að prófa sig áfram med litina, prófa
þanþol þeirra. Þannig hefur hann alltaf unnid.
„Ég er lengi með myndirnar, breyti þeim mikið
þangað til ég er sæmilega ánægður með þær.
Maður reynir að útiloka allt sem er ónauðsyn-
legt í myndinni og stendur uppi með eitt, tvö
form og fáa liti. Og ég held að litunum hafi fækk-
að með árunum. Mér sýnist það á öllu.“
LÍNUR OG FORM
Það hefur verið sagt um Karl að hann sé
óvenjukröfuharður listamaður. Nákvæmur og
gífurlega agaður í vinnubrögðum. „Ég held ég
sé ekki kröfuharðari en aðrir. Ég hef þetta
vinnulag. Mér veitist oft erfitt að mála í byrjun,
þekki ekki meðbyr í upphafi, og er þess vegna
lengi að mála. Kannski er það vegna þess að ég
hef ekki hugmynd um hvað ég ætla að mála...
það er sennilegt. Það er ekki hægt að hugsa
mynd tii enda. Það er svo margt sem kemur upp
á í hverri mynd. Margar spurningar sem vakna.
Myndin er alltaf í lífshættu."
Er það lífsháski málarans?
„Nei, og þó... ég veit það ekki. Það hefur
kannski einhvern tíma verið það. En maður er
löngu kominn yfir að láta það hafa áhrif á sig þó
mynd gangi ekki upp. Og reyndar sleppur hún
ekki svo billega. Ég legg hana þá til hliðar og læt
þorna. Reyni að fá fjarlægð á hana. Tek hana svo
fram aftur.“
Hvar enda þessi átök þín við línuna og formið.
I hvítum fleti og einni línu niður eftir honum
miðjum?
„Ég veit það ekki. Það er ómögulegt að segja.
Enda skiptir það ekki máli."
/ gamla daga var Karli stundum legið á hálsi
fyrir að vera alltaf að mála sömu myndina en
hann kímiryfir slíkum dómi: „Það er ábyggilega
eitthvað til í því,“ segir hann, en bœtir við: „Það
er samt mikill munur á þeim myndum sem ég er
að gera núna og þeim sem ég gerði fyrir tíu ár-
um. Myndirnar breytast hægt en þær breytast."
Naumhyggja er orð sem listfrœðingar hafa not-
að yfir myndirnar hans. „Ég hef nú aldrei skilið
það orð og veit ekki hvað vakir fyrir þeim sem
það nota. Þetta er undarlegt orð finnst mér, það
er fyrir þessa orðabókarmenn að fást við.“
Einhver hefur líka minnst á að myndirnar hafi
öðlast trúarlegt inntak með tímanum, sömu-
leiðis aðþœr séu frekar innhverfar og lokaðar...
„Ég held ekki að það sé neitt trúarlegt inntak
í mínum myndum. Ég málaði einu sinni kross
fyrir vin minn Leif Þórarinsson tónskáld. Gott
tónskáld Leifur. Hann er kaþólskur og gat vel
hugsað sér að eiga mynd af krossi. Það var ekk-
ert sjálfsagðara en mála fyrir hann mynd. Ekk-
ert sjálfsagðara. Svo hætti ég að fást við krossa.
En ég veit ekki hvað fólk á við þegar það segir
að myndirnar séu innhverfar. Það er alltaf
skemmtilegt þegar manni er komið á óvart.“
Eruö þið Leifur skyldir í list ykkar?
„Ja, það veit ég ekki, en ég held að það séu
miklar taugar milli málverksins og tónlistar-
innar. Nútímatónlistin höfðar sterkt til mín. Hún
er kannski ekki ósvipuð því sem maður sjálfur
er að gera. Annars er eitt sem er ólíkt með tón-
listarmanninum og myndlistarmanninum. Ein-
leikarinn menntar sig ákaflega vel áður en hann
fer að halda tónleika, myndlistarmennirnir eru
aftur á móti óþolinmóðari. Finna sig knúna til að
halda sýningar strax og þeir eru skriðnir út úr
sínum fyrsta skóla. En kannski er það vegna
þess að menn vilja sjá það sem þeir eru að gera
við góðar aðstæður."
MYNDLIST OG FISKUR
Guðbergur Bergsson sagði einhvern tíma
efnislega að Karl Kvaran vœri yndislega óskilj-
anlegur. „Guðbergur segir svo margt andskoti
skemmtilegt, en ég veit ekkert hvað hann á við
þarna. Þetta er þverstæða, hvað segja krakkarn-
ir, að eitthvað sé ógeðslega fallegt, ég held ég
hafi heyrt það einhvers staðar. Ég hef aldrei
hugsað út í það hvort ég sé óskiljanlegur. Það
skiptir engu máli... Kannski má segja að staða
málarans sé dálítið í lausu lofti — ekki í nægjan-
legum tengslum við samfélagið. Við erum dálít-
ið einangraðir í vinnu okkar. Það er spurning
hvort við ættum að koma okkur upp kontór, eins
og þeir fyrir austan... svona til að vita í hvaða átt
uppbyggingin á að fara. Líklegast myndum við
þá allir fara að mála fiska og það er svosem allt
í lagi. Hingað til höfum við bara étið þá. En fisk-
ar eru fallegir, sumir sléttir, aðrir ávalir, þeir eru
fallegir í forminu og allt í lagi að mála þá, þó býst
ég við að maður fengi leið á því. Scheving mál-
aði allar þessar beljur. Það heyrir kannski meira
undir Búnaðarfélagið en myndlist. Svo breyttist
þetta allt. Bændum fækkar og nú eru þeir búnir
að fá á sig kvótann. Kannski var það allt Schev-
ing að kenna... En hann var góður málari, mjög
góður málari. Þegar ég er að tala um kontór þá
á ég ekki við að menn eigi að fara að mála sósíal-
realísk verk. Hins vegar lifum við á fiski, enda er
hann helvíti góður á bragðið. En það er kannski
ekki nóg ástæða til að mála fiska... og þó.
Kannski ætti maður að hjálpa Halldóri eitthvað
við þetta."
MYNDLIST OG PÓLITÍK
Voru ekki uppi neinar kröfur um að listin
gegndi hlutverki innan hinnar sósíaltsku bylt-
ingar þegar þú varst að byrja. Og hvernig fór
það saman við að mála geometrískt abstrakt?
„Nei, það var engin krafa um sósíalíska list.
Enda kom afskapiega lítil list frá sósíal-realistun-
um. Ég hef ekki orðið var við nokkurt málverk
í þeim dúr. Hitt er annað að það er hægt að
skapa góða mynd af mönnum við vinnu en póli-
tískar myndir sem málverk eru einskisnýtar. Það
eina sem gildir er hvernig til tekst á léreftinu.
Það er það eina.“
Hvað með átök þegar abstraktmálverkið kom
fram?
„Jú, það voru einhver átök. Menn létu okkur
vita að það væri ekki glóra í því sem við vorum
að gera. En við létum það ekki á okkur fá því
það var svo gaman að mála.“
Þig hefur aldrei langað að fara að mála eitt-
hvað allt annað?
„Nei, það hefur aldrei hvarflað að mér, hvað
ætti það að vera?
Landslag kannski, ég veit það ekki.
„Nei. Mér þykir gaman að fara í bíltúr á Þing-
velli eða eitthvað þvíumlíkt. Horfa á landslagið.
En ekki mála það. Það þýðir ekki að ætla að
flytja landslagið inn í stofu. Annars höfum við
auðvitað átt afbragðsgóða málara í landslagi.
Menn sem máluðu landslag allt sitt líf. Kjarval,
Jón Stefánsson, Ásgrím. En margir kollegar
mínir mála ekki lengur geometrískt abstrakt
eins og þeir gerðu áður fyrr. Ég hef hins vegar
keyrt þetta áfram. Ætli ég breyti því nokkuð úr
þessu.“
MYNDLIST OG RÓMANTÍK
Þekkirðu einhverja „inspírasjón?"
„Nei, hana þekki ég ekki. Ég þekki bara það
að mála dagtega. Það þýðir ekki að bíða eftir því
karl kvaran
listmálari i
hp-viðtali um
linur, form og liti