Helgarpósturinn - 12.05.1988, Qupperneq 18
að vera upplagður. Einn vinur minn
beið í ellefu ár eftir því að verða
upplagður. Sjálfum finnst mér út í
hött að bíða eftir því. Það er ekkert
sérstakt við að vera málari, þetta er
bara mín vinna og málarar vinna oft
langan vinnudag. Eins og fólkið
hérna í húsinu. Kemur klukkan níu
og fer klukkan fimm. Hugmyndin
um listamanninn er misskilningur.
Þeir sem hafa náð iengst eru afskaf)-
lega vinnusamir menn, vinna gríð-
arlega mikið... maður sér það á því
sem liggur eftir þá.“
Eru menn meö þessu uidhorfi ekki
búnir aö svipta listina og listamann-
inn allri rómantík?
„Ég hef aldrei fundið neina róm-
antík í mínu starfi, held bara að hún
sé ekki til í málverki. En hún er
ábyggilega til í einhverjum öðrum
hlutum, já — hún er ábyggilega til."
Hvab meb umbun. Fólkib hérna í
húsinu fœr launaumslagib sitt vib
hver mánabamót.
„Já, maður selur mynd og mynd á
sýningu og eftir sýningar. En ég
hugsa ekkert um það. Máiarar slá
oftast ekki í gegn fyrr en þeir eru
dauðir og það má kannski segja að
það sé fullseint fyrir þá. Sjálfur fæ ég
aldrei umslög sem nokkur ánægja
er í að fá. Þetta eru endalaus von-
brigði enda er ég hættur að opna
þau. Meðan maður selur fyrir litum
og nauðsynjum þá er það nóg. Og er
það ekki bara svipað og hjá öðru
fólki. Allur þorrinn kemst naumlega
af. Svo eru nokkrir sem hafa veru-
lega gott kaup... eins og hann Guð-
jón í Sambandinu. Það er ekki það
að ég vildi ekki gjarna fá slíkt kaup.
Ég hef ekkert á móti peningum —
ég er samt ekki alveg viss um hvað
ég ætti að gera við þá.“
Fara í hnattsiglingu kannski.
„Já, ég gæti auðvitað gert það. En
ég er ekki svo mikið fyrir hreyfingu
núorðið. Ég hef ekkert á móti leik-
fimi og einhverju hoppi. Hún er
þeirra mál sem hana stunda. Mig
heillar hún ekki. Nei, ég er afskap-
lega latur við að fara á sýningar í
seinni tíð. Fylgist ekki vel með en
veit samt að þeir eru margir góðir
ungu málararnir. Það þarf ekki að
hafa áhyggjur af því.“
MYNDLIST OG LITIR
Gefur málverkib endalaust lil
baka?
„Já, það gerir það, það gerir það."
Veistu hvab þab er?
„Nei, ég veit það ekki. Það er erf-
itt að skilgreina það, nánast ekki
hægt. Það er einhver árangur sem
maður nær... kannski. Annars þurfa
málarar að verða mjög gamlir til að
ná árangri, það tekur svo andskoti
langan tíma. Þeir þurfa helst að
verða hundrað, hundrað og
fimmtíu. Þeir byrja oft seint að
mála, eru lengi í námi, kannski ára-
tug, og taka ekki persónulega af-
stöðu fyrr en seint á ævinni. Að vísu
eru til undantekningar, sumir þurfa
ekki svo langan tíma. Van Gogh t.d.
Það er ótrúlegt að hann skuli hafa
málað öll sín verk á tíu árum. Hann
var galdramaður með lit. Ég sá einu
sinni stóra sýningu á verkum hans
og fólk var að tala um að guli litur-
inn væri of sterkur. Mér fannst hann
alveg hæfilegur. En hann var auð-
vitað aldrei á skóla þannig að hann
var ekki afvegaleiddur þar. Hann
spurði líka aldrei neinn hvernig
hann ætti að mála. Ef hann hefði
spurt hefði hann aldrei orðið góður
málari.“
Öblast menn samt ekki þekkingu
og reynslu eftir því sem á líbur?
„Þekking og reynsla skipta engu
máli. Hvenær hefur maður líka
næga þekkingu eða reynslu?"
Ertu sæmilega sáttur vib þitt
framlag þegar þú lítur til baka?
„Nei, kannski ætlaði ég að mála
allt aðrar myndir. Svo gleymdist
það.“
AUtaf þegar þú talar um abra
málara byrjarbu á ab tala um lita-
notkun þeirra...
„Já, er það. Kannski öfunda ég
þessa málara sem kunna að fara
með liti sem ég veit svo lítið um.“
Er þetta ekki óþarfa hógvœrb?
„Nei, þetta er reynsla. Bara
reynsla."
Hyernig velur málari litina sína?
„Ég held að málarar finni af sjálfu
sér hvaða liti þeir geta farið með.
Það er hægt að kenna teikningu en
ég held ekki að það sé hægt að
kenna litaskalann. Menn hafa sjálfir
tilfinningu fyrir honum. Sumir
kunna marga liti. Aðrir fáa. Svavar
Guðnason virtist kunna allan skal-
ann. Snorri Arinbjarnar var aftur
mjög persónulegur í lit og notaði
varasama liti sem erfitt er að nota,
gult og fjólublátt sem andstæður, en
hann hafði tök á því sem fáir hafa.
Snorri var gáfaður málari, afbragðs-
snjall, en dó alltof ungur. Þórarinn B.
Þorláksson málaði oft myndir þegar
farið var að bregða birtu. Það hent-
aði honum vel. Hann var snjall að
fara með liti og form, afbragðsgóður
málari."
Pú ferb lofsamlegum orbum um
hina gömlu meistara landslagsins.
Pótti þér þeir jafngóbir þegar þib
félagarnir vorub ab vinna abstrakt-
mályerkinu sess?
„Ég hef alltaf haft þessa skoðun.
Alltaf verið hrifinn af þeim og talið
þá góða málara. Enda er það ekki
stíll málverks sem gerir það gott.
Mynd verður ekki sjálfkrafa vond
þó á henni sé fjall eða lækur og að
sama skapi ekki góð þó það vanti."
Standa litirnir fyrir eitthvab meira
en sjálfa sig hjá þér?
„Nei, enda veit ég ekki hvað það
ætti að vera.“
MYNDLIST OG
UMHEIMUR
Karl virðist láta sig umheiminn
litlu skipta, a.m.k. í seinni tíð. Enda
svarar hann slíkri spurningu ját-
andi. Hann er sjálfum sér nógur,
tímahugtakið missir gildi sitt og það
hvílir yfir honum innri ró þess
manns sem hefur fundið sig í starfi.
„Það hefur aldrei komið til greina
annað en að mála og maður hefur
látið eftir því. Þetta er mitt starf. Það
væri hræðilegt ef ég þyrfti að hætta
því.“ / íbúb hans í Landsímahúsinu
gœgistsólin inn um þakglugga. Milli
þess ab regnib bylur á honum.
„Maður verður fljótt var við veður-
breytingar hérna uppi. Það er nota-
legt. Þetta eru mín náttúruhljóð."
Finnur mabur fyrir nálœgb al-
mœttisins svona hátt uppi?
„Nei, það held ég ekki. Það er óra-
vegur þangað upp, hvort sem mað-
ur er hér eða annars staðar."
Meb jöfnu millibili flýguryfir flug-
vél. Karl segir sér vera farib ab líka
vel vib flugvélagnýinn: „Það er
notalegt þegar þær koma svona
heim. Þá veit maður að þeim hefur
ekki hlekkst á. Það er þægileg tii-
finning." Og flugvélarnar fljúga og
fljúga en skammt undan eru ab rísa
tvö stórhýsi, nýtt rábhús og vibbygg-
ing Alþingis. Hvernig líst mibbœjar-
búanum á þœr fyrirœtlanir. „Ég veit
ekki hvað fólk er að fjasa um þessa
tjörn. Þetta er forarpyttur, ætti að
þurrka hann upp og flísaleggja. Það
er mín skoðun. Ég vil að húsið rísi
sem fyrst. Og vona að alþingið verði
nógu stórt. Ég hef gaman af stórum
byggingum."
FISHER
Þegar hraða er þörf.
Þegar tíminn er peningar.
Þegar ekki er flogið.
Fjórhjóladrifni fjölskyldubíllinn
frá SUBARU er kjörbíll manna á uppleið
í krefjandi störfum.
SUBARU kemst leiðar sinnar með öllum
þeim krafti og nútímaþægindum
sem japanskt hugvit hefur upp á að bjóða.
SUBARU á stöðugrí uppleið.
Ingvar
Helgason hf.
SUBARU
I fararbroddi
tæknilegra framfara
í 16 ári
18 HELGARPÓSTURINN