Helgarpósturinn - 12.05.1988, Síða 20
DAGBOKIN HENNAR DULLU
Kæra dagbók.
Ferlega er ég reið yfir einu, sem
ég las í Mogganum um daginn. Það
sannar sko í eitt skipti fyrir öll, að
við krakkarnir erum álitin eitthvað
„annars flokks" í þessu klikkaða
þjóðfélagi okkar. Fyrir mörgum,
mörgum, mörgum mánuðum lækk-
Teygjanleg frottélök
STRAUFRÍ SÆNGURVERA!
Margartegundir.
Margir litir.
Teyjuríhornunum.
Mjúk.hlýog slitsterk.
Mikið úrval í ýmsum litum og mynstrum.
Saenguruer stærð 140x200 cm
KociJuver slærð 60x63 cm
KOÞÞAR
■flcfurbLanda. tcB.
■fibcrfyUa.
SÆHGUR.
Gicz9cdún&(-fi&
HANt>K LÆPI
KASSQRUtf Iþ SUPEH KftRLA
Ólökkuð - lökkuð - lútuð
Stærðir 85x200,140x200
og 170x200 cm
Hún u* mssiFM foru
8crtZ>ftRurv£)
6U tum aLn ctynR.
SPR IN<?
Sendum i póslkrölu um land alll
Opið er:
Mán.-fim.kl. 09.30-18.00
Föstud.kl. 09.30-19.00
Laugard. kl. 10.00-16.00
i miklu urvali
Margar mismunandi gerðir.
Stærðir: 70x190, 70x200,
85x190,85x200,90x200
Heimkeyrsla
Plar-gaf
-jjegoncLtt'
tfeteri/tn Prá
Skemmuvegi 4a, 200 Kópavogur
Símar 76522 og 76532
RtiMFHin-
aði nefnilega ríkisstjórnin skattinn
(eða voru það kannski tollarnir?) á
sælgæti um tólf prósent, en svo var
verðið kannað og þá hafði gotteríið
sama og ekkert lækkað!!! Þessir út-
smognu barnaræningjar (ja, barna-
arðræningjar a.m.k.) stinga bara
mismuninum í vasann. Ég meina
það... Svona lagað er alltaf verið að
bjóða okkur vesalings krökkunum
upp á. Svindl og svínarí! Og það er
náttúrulega fullorðna fólkið, sem
stendur fyrir þessu á milli þess að
það siðar okkur til. Glætan... Það
væri mátulegt á þetta lið að maður
færi í sjoppuverkfall!
Manni dettur stundum í hug, að
fullorðið fólk haldi að unglingar séu
einhver stórhættuleg dýrategund.
Þeir þora ekki að koma of nálægt
okkur, ef við skyldum nú bíta, og
þess vegna kynnast þeir okkur held-
ur aldrei. Það er t.d. alveg ógeðslega
fyndið að sjá hvað margt fólk verður
stressað, þegar svolítið hressir ungl-
ingar mæta á svæðið. Maður sér
þetta svo oft í strætóbiðskýlum og í
bíó og út um allt. Fullorðna fólkið
frýs sko á nóinu, ef nokkrir krakkar
koma kjaftandi og hlæjandi inn.
Ætli það haldi ekki að við séum öll
uppdópuð, með beitta hnífa og túss-
penna í vösunum til að meiða fólk
og eyðileggja verðmæti!
Núna er amma á Einimelnum t.d.
að deyja úr stressi yfir því að ein-
hverjir trylltir eiturlyfjaunglingar
brjótist inn og steli öllum matnum
og ávísanaheftunum, sem hún
hamstraði fyrir verkfallið. (Hún var
svo hrædd um að afgreiðslumenn-
irnir í „ríkinu" og bankamennirnir
færu í samúðarverkfall, að hún
keypti sex kassa af sérríi og helling
af ávísanaheftum.) En hún amma
„kjarnorka" er ekki týpan til að sitja
skjálfandi úti í horni og bíða eftir
innbrotsþjófum. Núna er hún sko á
fullu að leita sér að góðu þjófavarna-
kerfi, svo hún geti slakað á!
Það er bara verst, að ég er viss um
að hún amma getur aldrei lært að
nota svoleiðis kerfi. Hún er alveg
vonlaus, þegar takkar eru annars
vegar. Pabbi er búinn að reyna svo
rosalega oft að kenna henni á þessi
tæki, sem hún er alltaf að kaupa sér
— en það þýðir barasta ekkert. Hún
kann t.d. ekki ennþá á vídeóið, sem
hún er búin að eiga i þrjú ár. Þegar
hún leigir sér spólur verður hún
þess vegna alltaf að hringja í okkur
og láta segja sér nákvæmlega hvað
hún á að gera. Og ennþá er hún skít-
hrædd um að spólan komi aldrei aft-
ur út úr vídeóinu. (Hún öskrar í
hvert skipti: „Tækið er búið að
gleypa myndina!!") Ef hún vissi, að
maður gæti tekið upp efni úr sjón-
varpinu, yrði örugglega ekki stund-
legur friður fyrir kellingunni —
enda er það hernaðarleyndarmál í
fjölskyldunni. (Við mamma fáum nú
pínu sektarkennd yfir þessu, þegar
amma byrjar að bölva því að bestu
sjónvarpsþættirnir séu alltaf á sama
tíma á báðum stöðvunum.)
Verð að hætta núna, því ég er
komin í alveg ömurlegt skap við að
hugsa um unglingahatrið í þessu
þjóðfélagi. Núna er Stebba systir
líka öskrandi frammi af því að hún
finnur ekki ilmvatnið sitt. Hún er
búin að umturna herberginu mínu
undir því yfirskini að vera að leita,
þó ég harðneitaði að hafa tekið ilm-
vatnið. En unglingunum er alltaf
kennt um allt... (Ég sá reyndar
mömmu stinga þvi í töskuna sína
áður en hún fór út.)
Bless, Dúlla.
— Örugg ferd — Ódýr ferd
f ♦ r 1 /} 10 VESTMANNAEYJUM
nl ttlJt1 !/1 F SÍMI 98-1792 & 1433
W I'VI Wf REYKJAVÍK SÍMI 91-686464
FERJA FYRIR ÞIG—
20 HELGARPÓSTURINN