Helgarpósturinn - 12.05.1988, Page 27
albúmi hafi verið tveimur of margar.
Vafalaust eru ekki allir sammála
þessu og ég veit um fólk sem álítur
Sandinista það besta sem The Clash
gerðu. Það sýnir bara hversu mis-
jafn smekkur fólks getur verið.
Á Story... eru svo líka lög af Give
’Em Enough Rope og Combat Rock.
Auk þess er einnig að finna lög sem
ýmsum hefur revnst erfitt að ná í,
svo sem Complete Control, White
Man in Hammersmith Palais, Capi-
tal Radio, Bank Robber, This is
Radio Clash og síðast en ekki síst I
Fought the Law.
Af allri þessari upptalningu má
ljóst vera að The Story of the Clash
Volume 1 er ekki aðeins eiguleg
plata fyrir þá sem ekkert eiga fyrir
með The Clash. Gamlir aðdáendur
ættu ekki síður að gefa því gaum
hvort hér sé ekki á ferðinni gripur
sem er þess virði að eiga. Fyrir mitt
leyti átti ég öll þessi lög fyrir en ég
er viss um að ég á engu að síður eftir
að spila þessa Clash-sögu töluvert í
framtíðinni.
Gunnlaugur Sigfússon
MYNDLIST
Klakinn grœnn
af öfund — eda
hvaö?
Um sýningu Astu Gudrúnar
Eyvindardóttur
Galleríum hefur fjölgað nokkuð í
gamla miðbænum að undanförnu.
Eitt þeirra, Hafnargallerí, hefur orð-
ið dálítið útundan í umræðunni og
umferðinni. Vera má, að skýringar
sé að leita í því að galleríið er ekki
í augnhæð og getur ekki beitt útstill-
ingum á öngul sinn. Önnur ástæða
kann að vera sú að í galleríinu við
höfnina hafa einkum sýnt óþekktar
listspírur með torfæran aðgang að
listamafíunni og fjölmiðlum. Svona
var þetta, a.m.k. fram til síðustu ára-
móta, en þá tóku forráðamenn
gallerísins uppá því að taka hátt
leigugjald af sýnendum. Afturámóti
virðist listrænn metnaður gallerís-
ins ekkert hafa breyst, þrátt fyrir þá
ábyrgð sem leigugjaldið óneitanlega
veitir. Salurinn hefur frá áramótum
ýmist staðið auður eða að þar hafa
verið settar upp í flaustri sýningar á
peningalyktandi skeinipappír.
Nú fyrir stuttu varð þó breyting til
batnaðar þegar Ásta Guðrún Ey-
vindardóttir opnaði málverkasýn-
ingu í Hafnargalleríi. Þetta er fyrsta
einkasýning Ástu eftir sólarmerkj-
um að dæma — svo Hafnargallerí
virðist ekki vera alveg hætt að spíra.
í þann mund sem við göngum inní
Bókaverslun Snæbjarnar kemur
kona í hvítum pels gangandi upp
Hafnarstrætið og hrópar, að því er
virðist græn af öfund: „ísland er
best ískalt!" Pað er einsog við
manninn mælt: Við göngum inn i
höll klakadrottningar og öfundar-
grænkan liggur Ijós fyrir. Regnboga-
litir selir, sem liggja í makindum
niðri í versluninni, segjast öfunda
okkur af fótleggjunum, þvi fótalaus-
ir komist þeir ekki upp stigann í
galleríið. Dimmalimm situr í efsta
stigaþrepinu og plokkar gleim-
mérei: ,,Je t’aime Degas — ég elska
bleiugas — je t'aime...” Sjálf er
Dimmalimm með bleiu og það eru
bleiur á borðum. Stiginn hringast
um borðfæturna og svartur köttur
hringar rófuna. Við borðið situr
konan í hvíta pelsinum, en pelsinn
er horfinn og í hans stað kominn
sjaldséður hrafn. Konan er ekki
heldur græn af öfund heldur rjóð,
enda upptekin við að háma í sig
sviðakjamma, epli og frosk sem var
of lengi að breytast í prins. Hún
brosir og lætur sig dreyma um öll
raunverulegu dýrin í sveitinni og
hunangsflugurnar sem elta hana á
röndum. En hún hefur íshaf í æðum
og raunveruleikinn er við höfnina í
Reykjavík á íslandi sem öllum
klakadrottningum finnst best ískalt.
Það hefur löngum þótt góð vísa
meðal listmiðlara og -sala að kyrr-
setja listamenn í ákveðnum stíl og
búa til um þá stikkorð til markaðs-
hagræðingar. Þannig getur „mark-
aðshópurinn" sett vísu-kortið sitt í
makindum inní listmiðlunartölvuna
án þess að eiga það á hættu að fá
eitthvert krúsídúlluklikkelsi uppá
stofuvegg hjá sér. Hann getur alls
óhræddur pikkað inn nafnið á sín-
um eigin gælustíl, hvort sem það er
Electrolux
BW 310 uppþvottavélin
náði ekki bara prófinu... hún
„DÚXAÐI” !
A kröfuharðasta neytendamarkaðinum, fékk hún
eftirfarandi ummæli frá Svenska Konsumentverket:
* Hæsta einkunn (5) fyrir uppþvott og þurrkun
* Hæsta einkunn (5) fyrir að vera hljóðlát
* Hæsta einkunn (5) fyrir sparneytni
Aðeins
49.523,
stflr.
Eigum einnig fyrirliggjandi 4—6 manna
uppþvottavélar á aðeins kr. 28.900,- stgr.
Láttu ekki uppþvottinn angra þig lengur-
,,KÝLDU” Á ELECTROLUX !
iTJÖRNUBÆR
EIÐISTORGI SÍMI 611120
„sínýr fljótfærnisstíH", „gamaldags I irnar eru að vísu misgamlar og I að hitta fyrir listamenn sem vita að
og þjóðlegur hraun- og stuðlastíll", vinnubrögðin ungæðisleg á köflum, þeir geta og verða að spanna yfir
„alþjóðlegt atómafstrakt" eða eitt- en þau tilvik virka frekar einsog allt stafróf listarinnar í stað þess að
hvað annað notalegt og fljótlegt. prakkaralegt hnerriduft heldur en festast í bókstafstrú markaðsafla.
Galdur sýningar Ástu Guðrúnar er kryddskortur. Sýningin er í senn Þar fyrir utan er ekkert sem bannar
ekki síst fólginn í samkrulli hinna sundurlaus og heilsteypt, ljóðræn, fólki að búa til ný stafróf — eða
óliku stílbrota sem hún virðist alls öguð og agalaus, en umfram allt hvað?
óhrædd við að tileinka sér. Mynd- | persónuleg. Það er alltaf uppörvun | Ólafur Engilbertsson
ALLIR
í RÉTTA RÖÐ
Allir í rétta röð.
Nýtt og fullkomið tölvustýrt símaborð tryggir snögga
símsvörun og afgreiðslu eftir réttri röð. Þegar þú hringir
í Hreyfil og heyrir lagstúf, veistu að þú hefur náð sam-
bandi við skiptiborðið og færð afgreiðslu von bráðar.
islensk gædaframleiúsla
ágódii veríL
qA wtr
J gpugg
mggmimggsmm
bSA
Réttarháls 2 s. 84008 & 8á009 • Skipholt 35 s. 31055
HELGARPÓSTURINN 27