Helgarpósturinn - 12.05.1988, Blaðsíða 30
KROSSGÁTA
„Hver vor svikinn og hver sveik
hvern?##
Ragnar Aðalsteinsson haestaréttarlögmaður um kaffibaunamálið.
„Ef ég heföi drepist í þessu bílslysi, sem brá
nú til beggja vona því ég lá tvo sólarhringa
á gjörgœslunni, þá heföi glœpnum verid
stoliö frá Helgarpóstinum.“
„Ávöxtun lífeyrissjóðanna er nú
með því allra besta sem hún hefur
verið í sögu almenna lífeyrissjóða-
kerfisins."
Ásmundur Stefánsson. forseti ASÍ, um
húsnaeðisvanda launafólks.
„í miðjum barsmíðunum stundi sá
handtekni upp að þetta væri þá allt
satt sem sagt væri um lögregluna.
Lögreglumaðurinn svaraði að
bragði að það væri það og á eftir
fylgdi fast högg."
sme á DV.
„Ég læt kanna þetta mál."
Böðvar Bragason, lögreglustjóri í Reykja-
vik.
„Stjórnmálamenn mega aldrei
missa sjónar á almenningi."
Ingólfur Margeirsson, ritstjóri Alþýðu-
blaðsins, um skyldur stjórnmálamanna.
„Úlfar missti takið á bandinu, sem
hann var dreginn í, þannig að hann
lá eftir á jörðunni alelda. Hjálpar-
menn geystust inn í salinn með
handslökkyitæki og slökktu sam-
stundis í Úlfari sem lét sér hvergi
bregða."
ej á DV um sýningu hestamanna í Reið-
höll.
„Halla Margrét söng hægt og hljótt
böðuð eltiljósum."
ej á DV.
Ragnar Júlíusson, stjórnarformaður Granda.
„Þessi bilakaup eru þvílíkur sið-
ferðisbrestur að allir þeir sem tóku
þessa ákvörðun verða að vikja, allir
sem einn, og þá skiptir ekki máli
þótt Þröstur Ólafsson, félagi okkar
í Alþýðubandalaginu, hafi verið
einn þeirra."
Kristín Ólafsdóttir, borgarstjórnarfulltrúi
Alþýðubandalagsins.
„Máliö er ekki svo einfalt aö hægt
hafi verið að afgreiða það með einu
jái eða neii."
Þröstur Ólafsson, stjórnarmaður i Granda.
„Þetta tvennt tengist alls ekki upp-
sögnum fólksins. Það er vélvæð-
ingin sem þarna er á ferðinni."
Ragnar Júlíusson, stjórnarformaður
Granda.
„Sá bjór, sem ég er hræddastur við,
er veiki bjórinn, sá sem er aðeins
sterkari en pilsner."
Jón Magnússon Sjálfstæðisflokki, stuðn-
ingsmaður bjórs á Alþingi.
„Þetta er dapurleg lífsreynsla fyrir
mig, bæði sem foreldri og þing-
mann."
Svavar Gestsson Alþýðubandalagi, and-
stæðingur bjórs á Alþingi.
„Það eru tímamót í íslenskum
stjórnmálum. Fólk hafnar i æ ríkari
mæli firringu og sambandsleysi
hefðbundinna stjórnmálaforingja."
Kristín Halldórsdóttir, þingmaður Kvenna-
lista.
STJÖRNUSPÁ
HELGINA 13.-15. MAÍ
nm
TURINN (21/3-20/4
Þú lýkur verki sem hefur tekið langan tíma
að leysa. Nú kemur það sér vel hversu sjálf-
stæður þú ert og frumlegheitin vekja at-
hygli. Þú ert á réttri leið í fjármálunum og ef
þér býðst að fjárfesta skaltu ekki hika. Láttu
öfundsjúka persónu ekki slá þig út af laginu
með árásargirni sinni.
NAUTIÐ (21/4-21/5
Reyndu að komast að kjarna málsins en
varastu yfirgang. Óvænt uppákoma setur
svip sinn á helgina. Þér verður hoðin þátt-
taka í óvenjulegum félagsskap. Þiggðu boð-
ið því í raun er það viöurkenning á störfum
þínum. Yngri persóna mun sýna þér að hún
er vinur í raun og þú verður bjartsýnni en ella
á framtíðina. Þú færð ástæðu til að fagna.
TVÍBURARNIR (22/5-21/6
Hafðu augun opin — föstudagurinn gæti
orðið mesti happadagurinn þinn! Farðu eftir
því sem þér finnst við fyrstu kynni. Einhver
sem hefur verið þér hjálplegur áður er aftur
kominn inn í myndina. Vinir þínir leyna ekki
tilfinningum sínum í þinn garð og þérfinnst
þú auðugri en nokkru sinni áður.
KRABBINN (22/6-20/7
Vertu ekki of vanafastur. Það getur hindr-
að að þú náir markmiði þínu í ákveðnu mál-
efni. Horfðu til allra átta áður en þú tekur
ákvörðun um hvaða leið þú vilt fara. Grasið
er ekki grænna hinum megin, mundu það.
Varastu að treysta fólki um of fyrir ráðagerð-
um þínum, það eru ekki allir traustsins verð-
ir. Þú þarft að byrja á verkefni alveg frá
grunni ef það á að takast á þann veg sem þú
óskar.
LJÓNIÐ (21/7-
Þú þarft að endurskoða áætlun varðandi
ferðalag. Persóna úr Vatnsberamerkinu
reynir að hafa áhrif á þig og leiða þig af þeirri
braut sem þú ert nú á. Haltu þínu striki og þá
munu viðurkenningarnar ekki láta á sér
standa. Þú skiptir um skoðun á ákveðnum
málaflokki og það getur orðið til þess að
breyting verði á störfum þínum. Foreldrar
eða aðrir nákomnir þurfa á meiri athygli að
halda frá þér.
MEYJAN (24/8-23/9
Tilfinningaleg tengsl við einhvern af
gagnstæðu kyni leiða til breytinga á lífi þínu.
Þú brýst úr viðjum vanans og tekur allt aðra
stefnu en þú hefur þorað hingað til. Geymdu
ekki áhyggjurnar innra með þér, leitaðu
svara við því sem angrar þig. Þú þarft á ein-
veru að halda um stundarsakir til að ná átt-
um. Blekktu ekki sjálfan þig hvað varðar
raunverulegar tilfinningar (jínar.
VOGIN (24/9-22/10
Þú lætur þér annt um annarra hagi og get-
ur nú komið á framfæri skoðunum þínum
um hvernig hægt er að gera lífið auðveldara.
Aðili innan fjölskyldunnar styður við bakið á
þér og býður jafnframt fjárhagsaðstoð. Þér
verður boðið upp á óvenjulegan samning.
Haltu málunum í biðstöðu meðan þú kannar
sannleiksgildi þeirra.
SPORÐDREKINN (23/10—22/H
Hafðu hugfast að enginn er fullkominn,
ekki einu sinni maki þinn eða ástvinur!
Gerðu því ekki of miklar kröfur. Leitaðu svar-
anna sjálfur og reiddu þig ekki um of á að
aðra. Láttu ekki binda þig við gömul loforð
sem enginn grund völlur er fyrir að efna. Vin-
um þínum hættir til að lifa i eigin heimi og
gleyma raunveruleikanum.
BOGMAÐURINN (23/11-21/12
Þú sérð lífið í réttu Ijósi og nýtir þér að-
stæður til að koma á framfæri góðum hug-
myndum. Byrði sem þú hefur borið síðustu
vikurnar verður af þér létt og þú getur notið
þess að vera til. Leitaðu nýrra leiða til að
bæta heilsuna. Ástarsamband kemst á al-
varlegt stig og þú getur ekki lengur ýtt því
frá þér að taka ákvarðanir um framtíðina.
STEINGEITIN (22/12-21/1
Einhver innan fjölskyldunnar espar þig
upp með íhaldssömum skoðunum sínum.
Að vanda snýstu gegn allri afskiptasemi og
gerir þveröfugt við það sem krafist er af þér.
Haltu þig að fólki sem metur þig að verðleik-
um. Þér mun takast að skapa það sem þú
vilt ef þú aðeins manst að horfa á heildar-
myndina. Sýndu sjálfstæði í framkvæmd-
VATNSBERINN (22/1-19/2
Nýtt upphaf bíður þin. Gleymdu ekki hver
þú ert þótt velgengnin geti villt þér sýn um
stundarsakir. Þú nýtur lífsins um þessa helgi
og bjartsýnin ræður ríkjum, enda fyllsta
ástæða til. Það verður margt sem vekur
áhuga þinn en ef þú gætir ekki að þér áttu á
hættu að falla í þá gryfju að komast ekki yfir
allt sem þú þarft að gera.
FISKARNIR (20/2-20/3
Hugsaðu fyrst og fremst um öryggið.
Eyddu ekki um ef ni f ram, leggðu fy rir svo þú
eigir peninga þegar erf iðleikar steðja að. Ein-
hver sem vill þér vel hringir til þín með ráð-
leggingar. Hugmyndaflug þitt nýtur sín og
helgin einkennist af samkvæmislifi og ferða-
lögum. Þúfinnur nauðsyn þess að vera f rjáls
þegar rómantíkin skýtur upp kollinum.
30 HELGAFSPÓSTURINN