Helgarpósturinn - 12.05.1988, Síða 33
EFTIR JÓN GEIR ÞORMAR MYND: JIM SMART
reddast einhvern veginn, þó allt
væri í kalda koli. Þetta væri stór-
hættulegt viðhorf, byði óforsjálni
heim. Páll sagði lausnina á þessu
vera að auka hlut sköpunar og
skyldu, þau tvö viðhorf yrðu að fá
meira gildi. Það sem væri kannski
rétt í þessu í þessu leik- eða
lotteríhugarfari íslendinga væri að
líta mætti á lífið að vissu marki
sem ævintýri þar sem kraftaverk
og undarlegir atburðir gerast og
eitt þessara kraftaverka væri
hamingjan.
s
tjc
tjórnmálafræðingurinn
Suanur Kristjánsson flutti erindi
þar sem hann gerði hamingjuna
og stjórnmálin að umtalsefni.
Hann gat þess að í sjálfstæðisyfir-
lýsingu Bandaríkjanna frá 18. öld
væri kveðið á um rétt manna til
lífs, frelsis og til að leita sér ham-
ingju. Hlutverk stjórnvalda væri
samkvæmt henni að sjá um að
mönnum væri þetta kleift, skapa
ytri skilyrði. Hlutverk þeirra ætti
ekki að vera annað og meira og
því voru sett skilyrði til þess að
hamla gegn valdníðslu stjórnvalda.
Þetta væri svokallað einstaklings-
viðhorf, þ.e. hver er sinnar gæfu
smiður og að mennirnir vilja fá að
vera í friði. Á hinn bóginn væri
um að ræða svokallaða heildar-
hyggju, en sú afstaða lýsir sér í því
að mennirnir Iifa saman í þjóðfé-
lagi og hafa skyldur og ábyrgð
hver gagnvart öðrum.
Svanur sagði ekki vera hægt að
kenna þessi tvö viðhorf beint við
hægri og vinstri í stjórnmálum og
rakti fyrir því söguleg rök.
Svanur sagði að allir stjórnmála-
flokkar á Islandi væru einhvers
konar miðjumoð, þar sem ríkjandi
skoðanir væru mismunandi sam-
bland af þessum tveimur viðhorf-
um. Afstaðan væri sú að við teld-
um að póltískt vald spillti, en jafn-
framt teldum við að þeim mark-
miðum sem þjóðfélagið setur sér
yrði ekki náð nema með pólitísk-
um úrræðum. í raun teldum við
að vernda þyrfti einstaklingshags-
muni betur og nefndi Svanur í því
sambandi tilgang hins nýtilkomna
umboðsmanns Alþingis og frum-
varp um aðskilnað umboðsvalds
og dómsvalds í héraði. Hins vegar
hefðum við jafnframt tilfinningu
fyrir því að það vantaði heildar-
hyggju. Þetta sýndi sig í því að við
teldum stjórnmálaflokkana vera í
molum. Svanur sagði að aldrei
hefði verið grundvöllur fyrir
fjöldaþátttöku í stjórnmálum hér á
landi og ekki væri gert ráð fyrir
því í uppbyggingu flokkanna. Lítil
þátttaka almennra flokksmanna
væri innan flokkanna og fólk leit-
aði ekki hamingjunnar á þessum
vettvangi stjórnmála. „Stjórnmála-
flokkarnir eru hornsteinn lýð-
ræðisins og þess vegna er nauð-
synlegt að virkja fólk til starfa,"
sagði Svanur.
KRA
l| Vt
IIA
KCYKJAVIK T> 7. r».HB
FÖ5TUDAGUR 6. MAl
13.00 Móttaka, skranmg.
13.15 01 öf Thoraren_sen: 5■ • t
14.00 Broddi dóhannesson: H
og lífsreynslan.
14.45 Eyjólfur..Kja
myndir heimi
mgjs%a.
Anna V<
t»>l: r*«l .«<]»»»»*> I • |i*r.«
IffT: Hamnigjati
^rifii.sdóttir: hiQU!
16.45
.áldsins.
Matarhlé.
14 00 Pál.l. SkúU.son: Hammgjan m v-
14*45 ' H,3iriT'
15.15 Kaffihlé. . ; ( r
16.45 P.anborjUj^' ^ur.
setningu.
17.00 RáðstefnusUt. Ka* r. :
Eftir hvert. erindi eru nckRr^ / ...
Heiti erindanna sem hér eru y ^ ..
- x í-b i 1 nr'A '