Helgarpósturinn - 12.05.1988, Page 36
hagsýslustjóra hefur vakiö umtal og
miklar getgátur ganga um ástæð-
una. Meginskýringin hefur verið tal-
in erfið samskipti hans og Jóns
Baldvins Hannibalssonar fjár-
málaráðherra. Þetta mun ekki vera
alls kostar rétt, því vel hefur farið á
með þessum mönnum. Hins vegar
kynnti Jón Baldvin nýlega nýtt
„skipurit" fyrir ráðuneyti sitt, þar
sem verkefni voru færð til, og mun
það einkum hafa verið markmið
Jóns að lagfæra ákveðinn veikleika
í kerfinu sem rakinn er til Sigur-
geirs Jónssonar ráðuneytisstjóra.
Gunnar Hall mun hins vegar hafa af-
ráðið að nota tækifæri þetta til að
segja upp og ganga að ítrekuðu til-
boði frá Vinnuveitendasambandi
Islands. Jón og Gunnar munu hafa
átt vinsamlega fundi saman á mánu-
dag og þriðjudag, en það breytir því
ekki að væntanlega heyrist næst af
Gunnari á kontórum VSÍ. . .
A
aðalfundi Sölumiðstöðv-
ar hraðfrystihúsanna í síðustu
viku gat að líta nær tvö hundruð
fulltrúa helstu útvegsrisa landsins.
Þegar augunum var rennt yfir sal-
inn þegar mætingin var hvað best
mátti telja alls 6 konur inn á milli
jakkafatanna. Aðrar konur á staðn-
um voru þjónar karlveldisins. En
konur eru nú samt alls staðar að
sækja á og jáfnvel hin þykkasta vörn
kemur fyrir ekki. Það gerðist á þess-
um aðalfundi að í fyrsta skipti í 46
ára sögu SH var kona kjörin í stjórn
— í varastjórn að vísu, en mjór er
mikils vísir. Konan er Rakel Olsen,
hluthafi í Hraðfrystihúsi Sigurðar
Ágústsonar hf. á Stykkishólmi. Nú
mega þeir fara að vara sig stórlax-
arnir í aðalstjórninni, Jón Isbjarn-
arbróðir, Alli ríki á Eskifirði og
Guðfinnur Einarsson, ,,eigandi“
Bolungarvíkur. . .
Þ
að er merkilegt tak sem
Samvinnuferðir-Landsýn hafa á
fréttastofu sjónvarpsins. Þekkt er
dæmið um það þegar fréttamaður-
inn Sigrún Stefánsdóttir, sem áð-
ur var með þáttinn Mann vikunnar,
gerði sér ferð upp í Breiðholt til að
sjónvarpa frá því þegar Helgi
Jóhannsson, framkvæmdastjóri
Samvinnuferða, bauð manni vik-
unnar í sumarhús til Hollands, en
gárungarnir sögðu að það hefði
þurft „doktor í fjölmiðlafræði” til
að útbúa auglýsinguna. Og nú heyr-
um við að þegar hafi verið gengið
frá samningum á milli setts frétta-
stjóra, Helga H. Jónssonar, og
Samvinnuferða-Landsýnar um gerð
„fréttaskýringaþáttar” um túr-
isma. Samningar munu felast í því
skv. heimildum HP að S-Landsýn
kosti ferðir og annað sem tengist
gerð þáttarins. Það sem mesta at-
hygli vekur er að í samningum er
gert ráð fyrir að boðsmiðar fyrir
maka þeirra sem gera eiga þáttinn
fylgi með í kaupunum. Það verður
ekkki annað sagt en yfirmenn
fréttastofu ryðji fréttamennskunni
nýjar brautir . . .
Q
5
5
cc
Hin einu sönnu Frönsku smábrauð eru frá Myllunni.
Þú finnur þau í frystiborðum verslananna í bláum,
hvítum og rauðum pokum. Frönsku smábrauðin frá
Myllunni eru einstaklega ljúffeng og setja skemmti-
legan svip á hvaða máltíð sem er. Þú ættir endilega að bragða
á þeim við fyrsta tækifæri því betri brauð eru vandfundin.
Frönsk smábrauð fást bæði gróf og fín og eru auðvitað
sykurlaus.
P. S. Gott ráð: Af gefnu tilefni mælum við með að þú takir tvo poka,
einn er svo lygilega fljótur að klárast.
Nýjung. Farþegar Sögu fá í hend-
ur sérstakt afsláttarkort sem gildir
í fjölda verslana og veitingastaða.
DAGFLUG Á FIMMTUDÖGUM
CostaDelSol Við leggjum ,áherslu
á 1. flokks fjölskylduíbúðir á völdum
gististöðum, eins og jPRINCIPITO
SOL og SUNSET BEACH CLUB,
sem bjóða upp á fjölbreytta dagskrá
fyrir alla aldurshópa. 2-3 vikur,
íslenskur fararstjóri.
Verð frá 31.950 kr.»
4 í íbúð 39.600 kr.
2 í íbúð 42.400 kr.
FERDASKRIFSTOFAN