Morgunblaðið - 22.12.1968, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1968
ELLIÐAÁRNAR
Paradís
Reykjavíkur
Hver er það sem kannast ekki við þennan
gimstein Reykjavíkur, einu laxveiðiá ver-
aldar, sem rennur inni í miðri borg.
Guðmundur Daníelsson rithöfundur hefur sett saman
bók um EHiðaárnar og rekur þar sögu þeirra og lýsir
umhverfi í máii og myndum. Auk þess hefur hann átt
viðtöl við ýmsa kunna laxveiðimenn, sem stundað
hafa veiðar í ánum um árabil. Fjölmargar myndir
prýða bókina og eru fjórar þeirra í litum. Tvö kort
fylgja bókinni. Er annað frá 1880 og gert í sambandi
við hin alkunnu Elliðaármál. Hefur Benedikt Gröndal
skáld teiknað það. Hitt kortið sýnir umhverfi og
veiðislaði í dag, og hefur Ágúst Böðvarsson gert það.
ÞETTA ER JÓLABÓK
ALLRA VEIÐIMANNA
CEORCIE SHELDON:
HEFND JARLSFRÚA RINNAR
Þctta er hrífandi ástarsaga, sem fjallar um miskunnarlaus örlög vonsvikinnar
eiginkonu og fórnfúsrar móður, er lætur aldrci bugast.
Hefnd jarlsfrúarinnar er eins konar ættarsaga stórbrotinna manngerða,
gæddum einstæðum glæsileik og ríkri fórnarlund og á hinn bóginn dæma-
fárri mannvonsku og undirferli.
Höfundurinn leiðir lesendur sína um völundarhús ástar og afbrýði, lýsir
hrokafullum metnaði og ættardrambi og lýkur spennandi bók með sætri
hefnd, sem engan hlaut að meiða.
Verð bókarinnar 275 krónur án söluskatts.
Hefnd jarlsfrúarinnar birt-
ist neðanmáls í Morgun-
blaðinu 1921 og var þá sér-
prentuð vegna áskorana
lesenda. Bókin vakti þá svo
gífurlega athygli, að upp-
lagið seldist upp á fáum
dögum. — Höfundurinn,
Georgie Sheldon, hefur
meðal annarra bóka skrif-
að Systur Angelu, sem
einnig hefur verið gefin út
í tveimur útgáfum.
RITSAFN
JÓNS TRAUSTA
Sögur Jóns Trausta og þá ekki sízt Heiðarbýlissögur hans
urðu afar vinsælar, þegar þær komu út, og hefur svo hald-
izt fram á þennan dag. Það sést bezt á hinni miklu eftir-
spurn eftir Ritsafninu. Öll átta bindi þess eru fáanleg og
kosta í skinnlíki 2500 krónur án söluskatts.
ÞESSAR BÆKUR FÁST HJÁ BÓKSÖLUM
EÐA BEINT FRÁ ÚTGEFANDA.
BÓKAÚTCÁFA CUÐJÓNSÓ.
HALLVEIGARSTÍG 6 A — SÍMI 15-4-34.