Morgunblaðið - 10.04.1984, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1984
íiCEAAIiri
1
vAmmO- graeddi halmikcÁ á, ^ömla drusLanucn
at þfer sem era tomr\«r a.ft(jr i' t íslru."
ásí er...
kcu>
.. að segja henni að hún
sé morgunfögur.
mornings.
TM Am U.S Pat 0» -aH rlglits reserved
•1984 Los Angeles rmes Syndteste
Með
morgunkaffinu
Mér þykir vænt um þig, en pu eri
svo nefkaldur!
HÖGNI HREKKVÍSI
s I
Þyrlukaupin:
Því ekki að nota flugvél-
arnar á Keflavíkurvelli?
Hróltur Hraundal, formaður
Björgunarsveitar SVFÍ, Norðfirði,
skrifar:
„Það kom mér nokkuð á óvart er
ég las það í Tímanum að Stein-
grímur, forsætisráðherra, og Al-
bert, fjármálaráðherra, hefðu hug
á að hætta öllum vangaveltum um
björgunarþyrlukaup þar sem
Björgunarsveit varnarliðsins geti
sem hægast þjónað okkur að þessu
leyti. Björgunarsveit varnarliðs-
ins hefur reynst okkur ómetanleg
og þarf ekki að tíunda það frekar
svo ljóst sem það er öllum. En það
frýjar okkur ekki frá því að fylgj-
ast með og eiga og reka þyrlur, eða
reyna að læra að reka þær. Það
getur verið þröng í búi um tíma,
en það er ekki vegna rekstrar
björgunarþyrlu sem fjárlagagatið
er til komið og þaðan af síður
vegna rekstrar björgunarsveita á
fslandi. Það hafa fleiri lagt fé í
björgunarþyrlukaup en ríkið á
umliðnum árum. Það er því hreinn
þjófnaður og svik við það fólk sem
gefur sig í það dag og nótt að
bjarga fólki eða safna fé til björg-
unarstarfa, ef það á að fylla upp í
fjárlagagatið með þessum pening-
um. Það væri svipað og að heimta
tryggingafé af fólki sem verður
fyrir tjóni og fylla í margumrætt
vandræðagat með því. Ríkið
ábyrgðist vélina og þar með það fé
sem í hana var lagt og verður að
standa skil á því. Hvers vegna eru
þessi varðskip sem við tímum ekki
að gera út, ekki seld? Til hvers eru
skipin sem liggja bundin við
bryggju árið út? Eftirlitsstöðin á
Keflavíkurflugvelli hefur miklu
fullkomnari flugvélar, því ekki að
nota þær?
Dallas aftur
Sigríöur Halldórsdóttir 14 ára
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja:
— Mig langar til að koma því á
framfæri hversu langdreginn og
leiðinlegur þátturinn „Synir og
elskhugar", sem tók við af Dallas,
er. Og mig Iangar til að biðja for-
ráðamenn sjónvarpsins að taka
upp sýningar á Dallas aftur.
Þessir hringdu . . .
Hungurverkfall
Jóhönnu Tryggva-
dóttur:
Gott svar
hjá Davíð
Kristín hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Ég las grein eftir
Bessý Jóhannsdóttur í Morgun-
blaðinu síðastliðinn fimmtudag og
svo aftur grein í Velvakanda dag-
inn þar á eftir sem A.G. skrifar og
ég er þeim báðum svo hjartanlega
sammála um að Fjalakötturinn
verði rifinn. Eins vil éq að húsið
sem stendur við Aðalstræti 4 verði
rifið.
Ég vil láta byggja hús þarna í
staðinn sem eru í svipuðum stíl og
Morgunblaðshúsið. Þau þyrftu
ekki að vera eins há og Morgun-
blaðshúsið, en í svipuðum stíl.
Jafnvel væri hægt að hafa íbúðir í
þessum húsum fyrir fólk sem vill
búa miðsvæðis, en þjónustuhús-
næði á jarðhæðunum, til dæmis
fallegt kaffihús, gamaldags hús-
gagnaverslun, blómaverslun eða
gjafavöruverslun svo dæmi séu
nefnd.
Eins er ég hlynnt því að fleiri
hús í Grjótaþorpinu verði rifin og
falleg hús byggð þar í staðinn,
bæði stór og smá.
Að lokum þetta: Mér fannst
svar Davíðs Oddssonar borgar-
stjóra við megrunarkúr eða hung-
urverkfalli Jóhönnu Tryggvadótt-
ur alveg ljómandi gott, þegar
hann sagði að það kæmi ekki til
greina að hann eða aðrir í borgar-
stjórn færu að skipta sér af mat-
aræði fólks. Mér fannst þetta al-
veg skínandi gott svar hjá honum.
Fráleitir
yinnuhættir á
tollskrifstofu
Utanbæjarmaður hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — Nú
hefur nýverið verið skipuð nefnd
til að endurskoða starfsaðferðir
hjá tollskrifstofu. Nú fyndist mér
að menn ættu að athuga hvort
ekki væri hægt að taka upp nú-
tímalegar aðferðir þar og gefa
fólki upplýsingar í gegnum síma
um í hvaða tollflokki ákveðnar
vörutegundir eru.
f nútímaþjóðfélagi eru það frá-
leitir vinnuhættir að það skuli
taka langan tíma að fá upplýs-
ingar um tollflokkun vöru og að
fyrirspurnir þurfi að vera skrif-
legar. , . , ,