Morgunblaðið - 01.12.1985, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 01.12.1985, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR h DESEMBER1985 B 31 Klipptur í beinni útsendingu Jón Ólafsson orðinn sköllóttur? W ón Ólafsson hefur löngum haft í mörg horn að líta og þurft að skipuleggja tíma sinn! Meðfylgjandi mynd var tekin í beinni útsendingu í „Léttum sprettum" hjá Jóni á rás 2 fyrir um það bil viku, en Jón fékk í viðtal til sín Villa Þór rakara og kunnan knattspyrnudómara með meiru. „Ég fékk þessa hugmynd í kollinn að láta Villa Þór klippa mig í leiðinni bæði til að skapa vissa stemmingu og hafa þetta dálítið öðruvísi en venjulega," sagði Jón inntur eftir atvikinu. nyju Ertu ánægður með klippinguna? „Hann tók alveg ofboðslega lítið af hárinu á mér því ég vil halda því síðu áfram. En ég er mjög ánægður með snyrting- una...“ TIMOTHY HUTTON HÆFILEIKARÍKUR Á MÖRGUM SVIÐUM Timothy Hutton þykir gera það gott um þessar mundir. Pilturinn leikur í spennandi kvikmynd „The Falcon and the Snowman", þar sem hann spreytir sig með Sean Penn (eiginmanni Madonnu). Hann erþóorðinn þekktur fyrir fleira en leik sinn, því Timothy þykir með afbrigðum góður málari og hefur einnig framleitt að sögn frábært tónlistarmyndband fyrir „The Cars.“ COSPER — Rólegur, rólegur, þú færð kvenmann. Það er tvíburasystir mín. orðin fótboltaþjálfari? Svipmynd úr myndinni „Wild- cats“ þar sem Goldie Hawn leikur á móti Tab Thacker lyft- ingamanni. Goldie fer með hlut- verk fótboltaþjálfara í mennta- skóla sem á í höggi við erfiða pilta. En með hjálp Thackers bjargast þetta allt og hlutirnir fara líklega eins og best er á kosið, eða þannig sko... Skrifstofu- eða verslunarhúsnæði Til sölu neöri hæö hússins nr. 15 viö Hólagötu í Njarövík þar sem áöur var afgreiösla Sparisjóösins. í húsnæöinu er innbyggt viövörunarkerfi, afgreiösluborö, geymsla o.fl. Mjög hentugt fyrir skrifstofur. Tilboö sendist undirrituöum sem veita jafnframt nánari upplýsingar. LÖGMENN \ GAROAR OG VILHJÁLMUR \ Hafnargötu 31, Keflavík, simi (92) 1733 Konur Erum aö byrja meö kwikslim. t Snyrtistofan Mandý * Sími21511 5 J Kwik. (?h VAFNINGAR^J LlfFl Undraverður árangur með Kwik Slim herbal geli og þægilega volgum vafningum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.