Morgunblaðið - 25.07.1990, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 1990
17
Svíþjóð:
Umboðsmaður gagnrýn-
ir handtöku íslendings
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins.
Rétfarumboðsmaður í Svíþjóð hefur ákveðið að ákæruvaldið skuli
kanna hvers konar meðferð íslenskur námsmaður, Árni Sigurðsson,
hafí hlotið er hann var handtekinn af lögreglu í Stokkhóhni sl. haust.
Umboðsmaðurinn, Anders Wigelius, vill fá að vita hvers vegna maður-
inn hafi verið handtekkinn og hyggst láta kanna hvort hann hafi feng-
ið eðlilega meðferð í fangelsinu þar sem honum var haldið í nokkrar
stundir.
meðferðar sem hann taldi sig hafa
fengið.
Wigelius hefur átt erfitt með að
fá upplýsingar um málið. Verðirnir
segjast ekkert muna eftir málinu en
þess má geta að sendiherra íslands
í Svíþjóð, Þórður Einarsson, mót-
mælti á sínum tíma hegðun lögregl-
unnar við sænska utanríkisráðuneyt-
ið. Síðar sendu kennarar við Listahá-
skólann einnig frá sér mótmæli
vegna málsins. Wigelius telur að
meðferð lögreglu á málinu sé lítt
skiljanleg og vill því að ákæruvaldið
kanni hvort lögreglan hafi hagað sér
kæruleysislega. Islendingurinn hafi
■orðið fyrir óhappi er eldurinn varð
laus en hafi ekkert brotið af sér.
Búast má við að tekin verði
ákvörðun um mögulega ákæru á
hendur lögreglu eða fangavörðum á
næstu mánuðum.
Árni var nemandi við Listaháskól-
ann á Skeppsholmen í Stokkhólmi.
Hann var að vinna með slípirokk við
gerð myndramma er neistar hrutu
af skífunni og kviknaði þá í rusli á
gólfinu. Árni hljóp þegar út og sagði
lögregluþjónum hvað gerst hefði.
Slökkvilið kom á vettvang en Árni
var færður til yfirheyrslu og þaðan
var hann, furðu lostinn, fluttur í
fangageymslu þar sem tveir verðir
gættu hans. Árni kærði verðina til
umboðsmannsins vegna slæmrar
Finnland:
Flugræningj-
ar framseldir
Helsinki. Reuter.
FINNAR hafa ákveðið að fram-
selja tvítugan Sovétmann, Oleg
Kozlov, sem rændi sovéskri far-
þegaþotu 19. júní sl. og neyddí
flugmenn hennar til að fljúga til
Helsinki.
í yfirlýsingu frá finnska inn-
anríkisráðuneytinu segir að Jarmo
Rantanen, ráðherra, hafi hafnað
beiðni Kozlovs um pólitískt hæli í
Finnlandi. Áður hefðu sovésk yfir-
völd heitið því að sækja hann ein-
göngu til saka fyrir flugrán en ekki
fyrir að fara með ólögmætum hætti
úr landi.
Annar sovéskur flugræningi,
Míkhaíl Varfolomejev, bíður þess
að afstaða verði tekin til beiðni
hans um hæli í Finnlandi. Hann
rændi flugvél í innanlandsflugi í
Sovétríkjunum 24. júní sl. og lét
snúa henni til Finnlands.
Sovéskir flugræningjar
Reuter
Forsætisráðherra Indlands íMoskvu
Vishwanath Pratap Singh, forsætisráðherra Indlands, er í heimsókn
í Moskvu til að ræða við sovésk stjórnvöld um hvernig auka megi
viðskipti ríkjanna. Hann sagði eftir að hafa rætt við Níkolaj Ryzhkov,
forsætisráðherra Sovétríkjanna, og Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseta
að perestrojka, efnahagsleg umbótastefna Gorbatsjovs, gæti stuðlað
að frekari efnahagssamvinnu ríkjanna. Indveijar hafa verið mjög háð-
ir viðskiptum við Sovétmenn, sem hafa byggst á samningum ríkis-
stjórna landanna, og hafa haft áhyggjur af því hvernig þeim verði
háttað eftir að Sovétmenn hverfa frá miðstýringu og taka upp „stýrð-
an markaösbúskap". Indverskir embættismenn sögðu að Singh vonað-
ist til þess að viðskiptatengsl ríkjanna yrðu tekin til endurskoðunar.
Á myndinni ræðir forsætisráðherrann við nemendur úr indverska skól-
anum í Moskvu við komuna til borgarinnar á mánudag.
Bush tilnefiiir íhaldsmann í hæstarétt:
Gæti valdið straumhvörfiim í
réttarfarssögu Bandaríkjanna
23. júli, 1990 - Stokkhólmur
Tveir óvopnaðir flugræningjar
yfirbugaöir, flugvélinni lent
í Sovétríkjunum.
11. júlf, 1990 - Stokkhólmur
Maður meö gervisprengjur
yfirbugaður.
5. Júlf, 1990 - Stokkhólmur
Táningur, sem þykist vera með
sprengju, kemst til Stokkhólms.
3. Júlf, 1990 - Tyrkland
Áhöfn yfirbugar konu, sem þykist
vera með sprengju.
30. júnf, 1990 - Stokkhólmur
Flugræningi gefur sig á vald
lögeglu eftir lendingu í Stokkhólmi.
28. júni, 1990-Tyrkland
Áhöfn yfirbugar tvo menn, sem
reyndu aö ræna flugvél.
24. júnf, 1990 - Helsinki
Flugvél lendir eftir að farþegi hafði
sagt aö sprengja væri í farangrinum.
19. júní, 1990 - Helsinki
Maður rænir flugvél og hótar
að sprengja hana í loft upp.
9. júni, 1990 - Stokkhólmur
Táningur gefst upp eftir
lendingu.
18. ápríl, 1990 - Litháen
Geösjúkur maöur handtekinn
er vél lendir í Vilnius.
20. janúar, 1989 - ísrael eða Búkarest
Flugræningi gefst upp eftir 2 stundir.
8. mars, 1988 - London
Níu bíða bana er tveir tónlistar-
menn ræna flugvél. reuter
Washington. Reuter.
VAL George Bush Bandaríkja-
forseta á nýjum hæstaréttar-
dómara hefur komið jafnt lög-
fræðingum sem stjórnmála-
mönnum og forsvarsmönnum
þrýstihópa á óvart. David Souter
sem varð fyrir valinu er lítt
þekktur og fæstir vita með vissu
hvaða skoðanir hann hefiir á við-
kvæmum deilumálum svo sem
eins og fóstureyðingum. Þeir
sem gjört til þekkja fullyrða þó
að hann sé íhaldssamur í skoðun-
um en hallist jafiiframt að því
að dómarar eigi að túlka settan
lagabókstaf fremur en að taka
stefhumarkandi ákvarðanir í
réttarfarslegum efiium. I
fimmtíu ár hefur verið svokallað-
ur „fijálslyndur" meirihluti í
Hæstarétti Bandaríkjanna en því
skeiði kann nú að vera lokið.
Andstæðingar fóstureyðinga
hafa bundið við það vonir að nýr
hæstaréttardómari skipaður af
Bush myndi valda straumhvörfum
í afstöðu hæstaréttar til fóstureyð-
inga. Árið 1973 kvað hæstiréttur
upp þann úrskurð að stjórnarskráin
tryggði konum rétt til fóstureyð-
inga. Bush hefur lýst andstöðu
sinni við þessa ákvörðun hæstarétt-
ar. Hins vegar fullyrðir forsetinn
að hann hafi ekki spurt Souter um
afstöðu hans til fóstureyðinga. Hún
verður ljósari þegar öldungadeild
Bandaríkjaþings yfirheyrir Souter
áður en hún ákveður hvort hún
samþykkir tilnefningu hans.
Souter tekur við af William
Brennan sem sagði af sér í síðustu
viku fyrir aldurs sakir. Brennan
hefur verið leiðtogi þeirra sem að-
hyllast frjálslynd viðhorf í siðferðis-
legum álitamálum og sem slíkur
leitt naumasta meirihluta um nokk-
urt skeið, 5 gegn 4.
Fæstir bjuggust við því að Bush
yrði svo fljótur að velja nýjan dóm-
ara. Sumir láta sér detta í hug að
Bush hafi viljað forðast að velja
kunnan harðlínumann í embættið
vegna þess hvað það kynni að vekja
harkaleg viðbrögð.
Souter, sem er dómari í New
Hampshire, þykir íhaldssamur og
skarpur lögfræðingur en annars
muna fæstir eftir honum jafnvel
ekki þeir sem hafa hitt hann. Hann
stendur á fimmtugu og nam við
Oxford-háskólann í Englandi.
Skólabróðir hans, Paul Rothstein,
Reuter
prófessor í lögum við Georgetown-
háskólann, segir að Souter hafi lítið
látið uppi um skoðanir sínar á
helstu siðferðilegu deilumálum
bandarísks þjóðfélags eins og fóst-
ureyðingum og frelsi manna til að
Kóreu-ríkin:
Scholtes
Frábær
beimilistæki á
franska vísu
Funahöfða 19
sími 685680
HITAKUTAR
ELFA-OSO
30-60-120-200-300 lítia.
Ryðtrítt stál - Blondunarloki.
áratuga góð reynsla.
Einar Farestvett&Co.hf
BORGARTÚNI28, SÍMI622901
L«W 4 stoppar vM dyrmr
/:/:/:/:/:/:/:/
George Bush Bandaríkjaforseti (t.h.) hefur tilnefnt David Souter í
hæstarétt Bandaríkjanna.
gera hluti sem kunna að særa
sómatilfinningu almennings eins
og til dæmis að brenna þjóðfánann.
Rothstein segir að Souter líti frem-
ur á sjálfan sig sem túlkanda lag-
anna en löggjafa.
Áróðursstríð um
slökunaraðgerðir
Seoul. Reuter.
KÓREU-RÍKIN tvö skiptust í gær á um að vísa tillögum hvor annars
á bug en þau hafa bæði viðrað hugniyndir um að opna landamæri
ríkjanna. Spenna hefur ríkt milli landanna siðan Kóreustríðinu lauk
1953 og bein samskipti liafa nánast engin verið.
K&Lh
SKAPUR
140 lítra, með klakakubbafrysti
TILVALINN FYRIR
SUMARBÚSTAÐI
FYRIRTÆKI
SMÆRRIHEIMILI
ÞÚ GETUR TREYST
PHILIPS
Heimilistæki hf
SÆTUNI6 SÍMI6915 15 ■ KRINGLUNNISÍMI69 15 20
' SajMKÚttJJUýK
Stjórnin í Norður-Kóreu hafnaði
tillögu sunnanmanna um viðræður
þar sem fjallað yrði um skilyrði
norðanmanna fyrir því að opna
landamærin í næsta mánuði; stjórn-
völd töldu viðræðurnar „ónauðsyn-
legar,“ að sögn fréttastofunnar
Yonhap. Suður-Kóreustjórn hefur á
hinn bóginn vísað á bug tillögu
norðanmanna sem vilja að æðstu
ráðamenn hittist til að fjalla um
málið. Roh Tae-woo, forseti
S-Kóreu, lagði nýlega til að landa-
mærin við borgina Panmunjom yrðu
höfð opin í fimm daga, frá 13.
ágúst, í tilefni af sjálfstæðisdegi
Kóreu sem er 15. ágúst.
V&terkur og
k J hagkvæmur
auglýsingamiöill!