Morgunblaðið - 25.07.1990, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JULI 1990
21
Viðbrögð við dómi Félagsdóms:
Hjörtur
Eiríksson:
Lagasetning
nánast það
eina sem getur
leyst málið
„Það má segja að þetta sé vand-
ræðastaða og það sé um fá góð
ráð að ræða. Eg held að í þessari
stöðu sé lagasetning nánast það
eina sem geti leyst þann vanda
sem blasir við varðandi verðbólg-
una og er það samt sem áður
ekki góður kostur úr því ekki var
búið að setja lög fyrr,“ sagði
Hjörtur Eiríksson, framkvæmda-
stjóri Vinnumálasambands sam-
vinnufélaganna, aðspurður um þá
niðurstöðu Félagsdóms að Banda-
lagi háskólamenntaðra ríkis-
starfsmanna beri 4,5% hækkun
frá 1. júlí síðastliðnum að telja.
Hann sagði að
engin kostur
væri góður í
þessari stöðu og
aðspurður hvaða
augum VMS líti
kröfu um sömu
hækkun til handa
ASÍ-félögum og
dæmd hafa verið BHMR, sagði Hjör-
ur að málið væri auðvitað allt þvílík
endaleysa að það tæki engu tali. Ef
ASÍ fengi sömu hækkun og BHMR
kæmi BHMR í kjölfarið og heimtaði
4,5% til viðbótar. „Það er náttúru-
lega ekki nokkur einasta leið að
verða við slíku, það er alveg hreinar
línur og það eru mikil átök framund-
an, ef það ætti að verða. Það er slík
endaleysa að það er ekki hægt að
hugsa þá hugsun til enda,“ sagði
hann ennfremur.
Kristín
Einarsdóttir:
Höfuðatriði
að standa við
samninga
KRISTÍN Einarsdóttir, þingmað-
ur Kvennalista, segir að sér hafi
þótt niðurstaða Félagsdóms mjög
eðlileg miðað við þann kjara-
samning, sem fyrir lá. Það sé
höfúðatriði að staðið sé við kjara-
samninga, og undarlegt ef ríkis-
stjórnin hafi ætlað sér að bijóta
samninginn.
„Það var vitað
hvernig samn-
ingurinn var,
þegar gerðir
voru kjarasamn-
ingar við aðra
launamenn og
átti að vera öll-
um ljóst að það yrði að framfylgja
honum,“ sagði Kristín. Aðspurð
hvort hún teldi að ASÍ og BSRB
ættu að fá sömu hækkun og BHMR,
svaraði hún því til að margir félags-
menn beggja þessara samtaka væru
með alltof lág laun, en ekki væri
kannski þar með sagt að allir ættu
að hækka jafnmikið í launum. „Eg
er ekki alveg sátt við að það sé
búið að ákveða að launamunurinn
í kerfinu eigi að vera föst stærð
og að þegar ein stétt fái hækkun,
þurfi aðrar að hækka til samræmis
við það. Almennt kemur þetta kon-
um illa, því að þær eru í lægst laun-
uðu stéttunum og þeim er haldið
niðri endalaust. Ég hefði viljað
stokka upp allt launakerfið," sagði
Kristín.
Hún sagði að enginn vildi hækk-
andi verðbólgu, en það væri sér-
kennilegt að ríkisstjórnin skyldi
ekki hafa gert sér grein fyrir því
hvað í samningnum fælist. Það
væri út í hött ef menn hefðu samið
þannig að hringekja víxlverkana
færi í gang. „Mér finnst það sér-
kennilega upp sett ef það þýðir 80%
verðbólgu núna að standa við sem
var gerður fyrir löngu síðan,“ sagði
Kristín. Hún sagði að það væri líka
undarlegt að BSRB og ASÍ skyldi
finnast allt í lagi að ekki væri stað-
ið við kjarasamning. „Mér finnst
það vera nánast það, sem þessi
samtök eru að segja,“ sagði Kristín.
Aðalsteinn
Jónsson:
Þjóðin reiðir
sig á að stjóm-
völd þori að
stjórna
ÞESSIR menn eru kosnir af þjóð-
inni til þess að stjórna, og hún
reiðir sig nú á það að þeir þori
að stjórna," sagði Aðalsteinn
Jónsson forstjóri Hraðlrystihúss
Eskiljarðar í samtali við Morgun-
blaðið. „Það væri óhuggulegt ef
á okkur ætti að dynja ein holske-
flan enn. Slíkt má bara ekki ger-
ast.“
Aðalsteinn
sagði almanna-
heill vera í veði
að góð lausn
findist á málinu
hip allra fyrsta.
„Ég trúi því ekki
að ríkisstjórnin
finni ekki lausn
á þessu vandamáli. Það
aðeins ósk atvinnurekenda, heldur
og allra annarra í þessu landi."
Hann sagði að ekki þyrfti að spyija
að afleiðingunum ef úr þeim
víxlverkunum sem spáð hefur verið
yrði. „Vextirnir rykju upp, og allar
aðstæður yrðu þannig að ekki væri
hægt að reka nokkurt fyrirtæki.
Þjóðin reiðir sig einfaldlega á að
stjórnvöld taki á þessu máli,“ sagði
Aðalsteinn.
er ekki
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
24. júlí.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 80,00 78,00 79,90 3,191 254.976
Smáþorsk. 25,00 25,00 25,00 0,038 950
Ýsa 78,00 78,00 78,00 0,111 8.658
Lúða 100,00 100,00 100,00 0,004 400
Karfi 31,00 31,00 31,00 1,623 50.313
Koli 46,00 46,00 46,00 0,120 5.561
Keila 25,00 25,00 25,00 0,242 6.050
Smáufsi 17,00 17,00 17,00 0,042 714
Skata 40,00 40,00 40,00 0,040 1.600
Steinbítur 70,00 70,00 70,00 0,086 6.020
Ufsi 20,00 20,00 20,00 0,102 2.040
Langa 44,00 44,00 44,00 0,219 9.636
Hlýri 66,00 66,00 66,00 0,211 13.926
Samtals 59,84 6,030 360.844
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 80,00 59,00 64,94 1,291 83.835
Karfi 30,00 30,00 30,00 0,007 210
Ufsi 39,00 15,00 32,19 0,275 8.853
Steinbítur 48,00 48,00 48,00 0,019 912
Langa 40,00 40,00 40,00 0,235 9.400
Samtals 56,49 1,827 103.210
í dag verður selt úr Sveini Jónssyni, 80 tonn af karfa og 15 tonn af ufsa.
Vel veiðist í Stóra-
lóni við Straumfjörð
Borgarnesi.
NÝVERIÐ var byrjað að selja veiðileyfi í vatnið Stóralón við bæinn
Sfraumfjörð sem er í Álftaneshreppi á Mýrum. Stóralón var áður
vogur þar sem gætti sjávarfalla. Vogurinn var síðan stíflaður og
seiði sett í lónið. Þeim hefúr aldrei verið gefið fóður en samt er sigl-
ungurinn þar spikfeitur.
Morgunblaðið/Theódór Kr. Þófðarson.
Fyrir þessum tilraunum hafa
staðið hjónin. Steinar Ingimundar-
son og Sigrún Guðbjarnadóttir sem
er frá Straumfirði. Sagði Steinar
að þessi hugmynd væri nokkuð
gömul en það væru ekki nema þtjú
ár síðan að framkvæmdir hófust.
Nú væru komin yfir sjö þúsund
seiði í vatnið og hefðu þau dafnað
mjög vel. Kvaðst Steinar aldfei
hafa gefið þeim fóður því nóg væri
af æti í vatninu. Mest væri af 1 til
2 punda urriða en nokkuð af 4 til
5 punda bleikju. í sumar stæði til
að bæta enn við bleikju í vatnið.
Við þessar tilraunir kvaðst Steinar
hafa notið aðstoðar Sigurðar M.
Einarssonar fiskifræðings.
Fyrstu helgina sem seld voru
veiðileyfi í Stóralón veiddist mjög
vel, mest af urriða en eitthvað af
bleikju. Veitt er á flugu í Stóralóni
og tekur silungurinn hana grimmt
sérstaklega þær svörtu. Fyrir 1.500
krónur má veiða 5 fiska og síðan
þarf að borga 200 krónur fyrir
hvern fisk umfram það en annars
er enginn kvóti. Sagði Steinar veiði-
bóndi frá mönnum sem veiddu alls
60 fiska yfir daginn, því „þeir gátu
bara ekki hætt“. Segja má að þarna
sé tilvalinn veiðistaður fyrir alla
Hjónin Steinar Ingimundarson
og Sigrún Guðbjarnadóttir.
Veiðimenn við Stóralón.
fjölskylduna. Vatnið er um 30 km
vestur frá Borgarnesi, hægt er að
aka alveg að vatninu og auðvelt er
að fara með því. Vatnið er um 1
km að lengd og breiðast um 200
metrar, víðast er aðgrunnt en mesta
dýpi er rúmir 2 metrar. Mjög fall-
egt er í kringum vatnið og óvenju
fjölskrúðugt fuglalíf. Þá er Straum- ,
fjörður sögufrægur staður og forn
verslunarstaður og þar er góð höfn
frá náttúrunnar hendi. - TKÞ.
Ábendingar frá
LÖGREGLUNNI:
Ungt fólk og útisamkomur
Nú skömmu fyrir verslunarmannahelgina telur lögreglan
ástæðu til þess að vekja athygli unglinga, sem og foreldra
þeirra, á nokkrum atriðum sem geta skipt máli og varða
þátttöku fólks í útisamkomum.
Það er flestum kunnugt að útisamkomur eru mest sóttar af
ungu fólki. Á slíkum samkomum hafa áfengi og jafnvel önnur
vímuefni verið höfð um hönd og koma jafnan upp mörg mál,
svo sem líkamsmeiðingar, neysla fíkniefna, meiðsli, slys, nauðg-
anir o.fl. Ekki er verið að letja fólk þátttöku í útisamkomum
en full ástæða er til að hvetja unglinga og foreldra þeirra til
þess að skoða hug sinn vel með tilliti til væntanlegrar þátttöku.
Starfshópur um útisamkomur, sem dómsmálaráðherra skip-
aði, hefur gefið frá sér álit og gildir það sem viðmiðunarreglur
varðandi leyfi fyrir útisamkomum. í því segir meðal annars að
meðferð og neysla áfengis sé stranglega bönnuð á mótssvæð-
um; ungmennum yngri en 16 ára er óheimill aðgangur að
samkomum nema í fylgd með forráðamönnum; í auglýsinga-
herferð mótshaldara komi skýrt fram að áfengisbann sé a' móts-
svæðinu og leit að áfengi fari fram og að jafnan sé þess gætt
að ránnsóknarlögregla og/eða fíkniefnalögregla séu til staðar
til að fyrirbyggja brot og rannsaka mál eftir því sem þau koma
upp.
Þeim sem ætla að taka þátt í útiskemmtunum er óskað góðr-
ar skemmtunar.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og vináttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
BENEDIKTS GUÐNA ÓSKARSSONAR
frá Eskifirði,
Hraunbæ 110.
Sigríður Hauksdóttir,
Haukur Pétur Benediktsson, Hrefna Björk Karlsdóttir,
Benedikt Benediktsson, Jónína Þ. Gunnarsdóttir,
Hólmfrfður K. Benediktsdóttir, Þórir Örn Ólafsson,
Egill Valberg Benediktsson, Inga Jóna Traustadóttir
og barnabörn.
„Fegurð Karinellífsins“ er komin
út.
Bókumfegurð
Karmellífs-
ins komin út
KARMELSYSTUR í Hafnarfirði
héldu upp á 50 ára afmæli klaust-
ursins 31. maí sl. Af því tileíúi
hafa þær gefið út bækling, „Feg-
urð Karmellífsins", um regluna,
líf systranna og klaustrið á íslandi.
Bæklingurinn er 87 blaðsíður með
20 myndum og teikningum, prentað-
ur í prentsmiðju kaþólsku kirkjunnar
í Stykkishólmi og höfunduririn er
Karmelnunna. Mestan hluta hans
þýddu Katrín Inga Jósefsdóttir og
Erna S. Egilsdóttir úr pólsku. Torfi
Ólafsson bjó undir prentun.
Bæklingurinn segir frá því að Guð
velji fólk til að vinna fyrir ríki sitt,
veiti því köllun. Tilbeiðslunni í Kar-
melklaustrsinu er lýst, anda yfirbót-
ar, iífi í fátækt, gleði sem fylgir
kiausturlífi, uppbyggingu andlegs
þroska, dýrkun Maríu Guðsmóður og
Jósefs, stiklað er á stóru í sögu regl-
unnar, greint frá inngönguskilyrðum
og loks er brot úr sögu Karmelregl-
unnar á Islandi.
Karmelsystur í Hafnarfirði hafa
bækling þennan til sölu, en einnig
má fá hann hjá bókaþjónustu kajv
ólsku kirkjunnar, pósthólf 747, 121
Reykjavík.