Morgunblaðið - 25.07.1990, Blaðsíða 27
27
arar aldar. Þá bjuggu flestir við
þröngan kost. Baráttan fyrir dag-
legu viðurværi var hörð, baráttan
um brauðið. Atvinna var munaður
og kaupið lágt. Alþýða manna bjó
við mikil þrengsli og svokölluð
lífsþægindi voru lítil sem engin.
Nærri má geta hversu torvelt það
var að koma upp stórum barnahópi
við slíkar aðstæður. En Guðbjörg
og Jón voru miklar dugnaðar- og
ráðdeildarmanneskjur sem tókst að
koma börnum sínum vel á legg
þótt tímar væru erfiðir.
Meginþunginn af uppeldi barn-
anna og miklum og margþættum
heimilisstörfum hvíldi á herðum
húsmóðurinnar. Meðfædd atorka
og viljastyrkur Guðbjargar kom sér
nú vel. Hún var forkur duglegur
og hafði hinar bestu forsagnir um
húshaldið. Hún hafði bæði vit og
vilja til að aga börn sín snemma
og ég hygg að þeim hafi stundum
þótt nóg um stjórnsemi hennar.
Hún var sannkölluð „mater famil-
ias“, hin mikla fjölskyldumóðir.
Það var með ólíkindum hve miklu
Guðbjörg kom í verk. Þrátt fyrir
annríki á stóru heimili fór hún í
síldarsöltun og saltfiskverkun þegar
færi gafst enda sannkallaður
víkingur til vinnu og hún lét sig
ekki muna um að taka þátt í margs
konar félagsstarfi austur á Seyðis-
firði. Hún var drifkraftur í kvenfé-
lagi bæjarins um tíma, einkum þeg-
ar félagið lét góðgerðarstarf til sín
taka því Guðbjörg mátti ekkert
aumt sjá og var sífellt að hlaupa
undir bagga með þeim er áttu bágt.
Þá starfaði hún allmikið fyrir
Verkamannafélagið Fram á Seyðis-
firði. Einnig var hún ötul í Alþýðu-
flokksfélagi Seyðisíjarðar. Með-
fædd réttlætiskennd og glögg sam-
félagssýn skipaði henni í raðir jafn-
aðarmanna. Og án efa hefur reynsla
hennar sem verkakona á kreppuár-
unum líka átt dijúgan þátt í að
móta viðhorf hennar til þjóðmála.
Hún fylgdist vel með stjórnmála-
baráttunni í landinu og tók sjálf
þátt í henni af lífi og sál sem fyrr
segir. Hún lá ekki á skoðunum
sínum en lét þær hiklaust í ljós og
gat bæði verið orðheit og orðsnjöll.
En þó hún væri þung á bárunni í
kappræðum þá kryddaði kímnigáfa
hennar jafnan orðræðuna sem
ósjaldan endaði í dillandi hlátri
beggja deiluaðila. Guðbjörg var
baráttumaður allt sitt líf. En á
kreppuárunum gat barátta fyrir
bættum kjörum verkalýðsins kostað
menn vinnuna „því áður fyrr voru
uppsagnir algengar hefndarráðstaf-
anir“ eins og hún sagði sjálf í fyrr-
nefndu viðtali í „19. júní“.
Guðbjörg og Jón fluttust búferl-
um til Reykjavíkur 1946 og bjuggu
fyrstu tvö árin á Vesturgötu 22.
En þar leigðum við Guðmundur,
sonur þeirra, hjá þeirri ágætu konu,
Ósk Jósepsdóttur. Hagur okkar
Guðmundar, sem báðir stunduðum
nám hér syðra, vænkaðist verulega
hún hefði séð öll náttúruundur ver-
aldar hefði ekkert þeirra skyggt á
bernskuslóðirnar við Arnarfjörð.
Enda kom alltaf sérstakur hrifning-
artónn í röddina þegar hún talaði
um þann stað eða Vestfirðina yfir-
leitt, og þó hún dveldi mestan hluta
ævinnar utan Vestljarða taldi hún
sig fyrst og fremst Vestfirðing.
Þegar ég lít til baka og hugsa
um þær stundir sem ég fékk að
njóta með Höllu kemur margt upp
í hugann, maður fyllist söknuði og
skynjar að mikill hlýtur söknuður
þeirra að vera, sem hafa átt lengri
tíma með henni. Þeim vil ég að lok-
um tileinka litla bæn sem mér finnst
mjög góð og er ég sannfærður um
að þar yrði Halla mér sammála.
Guð gefi mér æðruleysi
til þess að sætta mig við það,
sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til þess að greina þar á milli.
Halldór Hauksson
Útfararþjónustan
Simi679110
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25.JULI 1990
eftir að Guðbjörg kom suður, svo
gott var atlætið hjá henni á Vestur-
götunni. Árið 1948 fluttu Guðbjörg
og Jón í nýtt hús við Nesveg 50
sem Guðmundur byggði fyrir þau.
Guðbjörg sinnti félagsmálum af
lífi og sál eftir að suður kom. Hún
var virk í Verkakvennafélaginu
Framsókn, Alþýðuflokksfélagi
Reykjavíkur, Félagi austfirskra
kvenna að ógleymdu Kvenréttinda-
félagi Islands. Þá sýndi hún Seyð-
firðingafélaginu mikinn áhuga eftir
stofnun þess 1981. Hún gekk strax
í félagið og lét sig ekki vanta í
Sólarkaffi Seyðfirðinga meðan
heilsan leyfði.
Guðbjörg er ógleymanleg öllum
sem kynntust henni. Hvar sem hún
fór markaði hún spor, lét til sín
taka. Hún var ódeig í baráttunni
fyrir betra lífi og bar einkum hag
lítilmagnans fyrir bijósti. Hún var
jafnan hress í anda og hreif aðra
með sér. Guðbjörg var fríð sýnum,
hávaxin og grannvaxin, kvik í
hreyfingum, höfðingleg í fram-
göngu og augun voru himinblá.
Eftir lát Jóns 1972 flutti Guð-
björg til Guðmundar og Ingunnar
Stefánsdóttur, tengdadóttur sinnar,
í Austurgerði 10 og bjó þar í skjóli
þeirra þar til hún fór til dvalar á
Hrafnistu fyrir nokkrum árum. Ing-
unn og Guðmundur hlúðu vel að
Guðbjörgu síðustu árin sem hún
lifði og viku þau og Arnbjörg vait
frá henni síðustu sólarhringana sem
hún lifði.
Guðbjörg skilaði miklu lífsstárfi
og lést í hárri elli sátt við Guð og
menn, södd lífdaga. Margir munu
minnast hinnar látnu heiðurskonu
í dag með þakklæti og virðingu
þegar hún er til grafar borin, ekki
síst gamlir vinir og sveitungar frá
Seyðisfirði. Ég þakka vinkonu
minni samfylgdina. BlesSuð sé
minning hennar. Við .Rannveig
sendum börnum og venslafólki Guð-
bjargar samúðarkveðjur.
Ingólfur A. Þorkelsson
t
GUÐRÚN HALLDÓRA INGIMUIMDARDÓTTIR,
fráAuðnum,
Vatnsleysuströnd,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sólvangi laugardaginn 21. júlí.
Jarðarförin fer fram frá Kálfatjarnarkirkju föstudaginn 27. júlí
kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Minningarsjóð Kálfa-
tjarnarkirkju.
Kristjana og Jóhann Ólafur Jónsson,
Guðriður Sveinsdóttir.
t
Móðir mín og amma okkar,
BJARNÍNA JÓNSDÓTTIR,
Borgarnesi,
verður jarðsungin frá Borgarneskirkju fimmtudaginn 26. júli kl. 14.
Rafn Sigurðsson,
Sigrún Rafnsdóttir,
Signý Birna Rafnsdóttir,
Ævar Andri Rafnsson.
t Móðir okkar. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÁSTA SIGURÐARDÓTTIR GEORG ÓLAFSSON,
frá Oddgeirshólum, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 26. júlí kl.
Vestmannaeyjum 13.30.
andaðist í Hraunbúðum 23. júlí sl. Sigríður Georgsdóttir, Guðrún Georgsdóttir, Einar Heiðarsson,
Jóhann Friðfinnsson, Halldóra Georgsdótir, Baldur Thorsteinssen,
Finnbogi Friðfinnsson. Sigurður Halldórsson, Ólafur Georgsson,
Georg Georgsson, og barnabörn.
1
4.
T Eiginkona mín, f
SJÖFN ÓLAFSDÓTTIR,
Hólagötu 2, Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út-
Vestmannaeyjum, för móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
lést í Landspítalanum aðfaranótt 24. júlí. VIGDISAR ÓLAFSDÓTTUR
Fyrir hönd vandamanna, frá Seyðisfirði.
Trausti Marinósson. Ólafur M. Ólafsson, Laufey A. Ólafsdóttir
og aðrir vandamenn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
INGÓLFUR HANNESSON,
Sunnubraut 48,
Kópavogi,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð aðfaranótt 24. júlí.
Sigríður Runólfsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Útför
ANDREU JÓNSDÓTTUR,
Leirhöfn,
verður gerð frá Snartarstaðakirkju laugardaginn 28. júlí kl. 14.00.
Aðstandendur.
t
Útför ástkaerrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
JARÞRÚÐAR SIGURRÓSAR GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Flateyri,
Jökulgrunni 1,
Reykjavík,
sem lést á Hrafnistu þann 16. júlí, fer fram frá Áskirkju fimmtudag-
inn 26. júlí kl. 10.30. Jarðsett verður i Fossvogskirkjugarði.
Jón S. Jónsson,
Hjálmar Jónsson,
Svandís Jónsdóttir,
Valborg Jónsdóttir,
Salóme Jónsdóttir,
Guðrún R. Jónsdóttir,
Birna Jónsdóttir,
Magnfríður Jónsdóttir,
Ólafur Jónsson,
Björn Ágúst Jónsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
Ingibjörg Guðmundsdóttir,
Guðbjartur Guðbjartsson,
Grétar Arnbergsson,
Kristinn Þórhallsson,
Garðar Sigurgeirsson,
Hendrik Tausen,
Sólveig Jónsdóttir,
Anna Maria Sigurðardóttir,
t
Systir mín,
MARGRÉT STEINGRÍMSDÓTTIR,
Hringbraut 90,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 26. júlí
kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristjana Steingrímsdóttir.
t
Innilegar þakkir flytjum við öllum, sem auðsýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
KRISTINS SIGURVINSSONAR,
Stykkishólmi.
Sérstakar þakkir til alls hjúkrunar- og starfsfólks á St. Fransisku-
sjúkrahúsinu í Stykkishólmi.
Magnús Kristinsson, Hólmfriður Einarsdóttir,
Elínborg Kristinsdóttir, Guðni Sigurjónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t t Þökkum af alhug öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vináttu
við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengda-
Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, móður og ömmu,
KRISTÍNAR MARÍU KRISTINSDÓTTUR GUÐNÝJAR SIGRÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR
fyrrverandi bankafulltrúa, frá Neskaupstað
Hringbraut 112, Suðurgötu 15,
fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 25. júlí kl. 13.30. Keflavík.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á hjúkrunarheimilið Sérstakar þakkir til Elsu Kjartansdóttur og Jóhönnu Hermanns-
Skjól, Kleppsvegi 64, Reykjavík. dóttur, Athvarfi aldraðra, Suðurgötu 15, Keflavík og starfsfólki
Sjúkrahúss Keflavíkur.
Edda Svava Stefánsdóttir, John S. Magnússon, Friðrik L. Karlsson
Hafsteinn Þór Stefánsson, Bryndís Guðjónsdóttir, Lúðvík K. Friðriksson
Jón Baldvin Stefánsson, Sif Aðalsteinsdóttir, Gunnar J. Friðriksson, Bergljót Grímsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn. Oddur G. Friðriksson, Vigdís Karlsdóttir
og barnabörn.