Morgunblaðið - 07.04.1994, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 07.04.1994, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1994 * Sjávarútvegsráðherra um veiðisljórnun á Alþingi Stj órnarandstaðan gæti ráðið breytingum ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegsráðherra sagði á Alþingi í gær að ljóst væri að sá möguleiki hefði opnast að stjórnarandstaðan á Alþingi geti, með aðstoð hluta stjórnarþingmanna, ráðið niðurstöðu breytinga á lögum um stjórn fiskveiða sem verið er að vinna að. Sjávarútvegsráðherra var að vísa til frumvarps sem Guðjón A. Krist- jánsson varaþingmaður Sjálfstæðis- flokks lagði fram fyrir páska um að veiðar á ýsu og ufsa og fleiri fískteg- undum verði gefnar fijálsar það sem eftir er fiskveiðiársins og heimilt verði án viðurlaga að landa meðafla af þorski og karfa. 10 stjómarþing- menn stóðu að frumvarpinu með Guðjóni og einnig nokkrir þingmenn úr stjómarandstöðuflokkunum. Minnihlutastjórn í sjávarútvegsmálum? Jóhann Ársælsson þingmaður Al- þýðubandalagsins, sem er einn flutn- ingsmanna frumvarpsins, sagðist hafa verið á fundi með sjávarútvegs- ráðherra fyrir páska þar sem ráð- herra hefði lýst því yfir að ríkisstjóm- in væri búin að missa meirihiuta sinn og forræði í sjávarútvegmálum. Jó- hann spurði ráðherra hvað ríkis- stjórnin hyggðist fyrir, hvort hún ætlaði að starfa sem minnihluta- stjóm í þessum málaflokki og snúa sér til stjórnarandstöðunnar til að leita að samkomulagi um breytingar á stjóm fiskveiða, eða segja af sér. Þorsteinn Pálsson sagði að sjávar- útvegsnefnd Alþingis væri nú að fjalla um lagafrumvörp um breyting- ar á stjórn fiskveiða. „Það er auðvit- að ljóst að eftir að svo margir stjóm- arþingmenn hafa bundist samtökum við þingmenn í stjómarandstöðunni um að gerbylta fiskveiðistjórnunar- kerfinu, þá hefur verið opnaður sá möguleiki að stjómarandstaðan geti, með þessum hópi stjórnarþing- manna, ráðið niðurstöðu þessara mála,“ sagði Þorsteinn. Hann sagðist telja að ekki væri annað hægt en bíða og sjá á hvem hátt þingmenn afgreiði þessi mál og hvernig at- kvæðagreiðslur falli. „En það er auð- vitað mjög brýnt að Alþingi sjálft taki um þetta ákvörðun og greidd verði atkvæði um þá meginstefnu sem fylgja ber,“ sagði Þorsteinn. Frumvarpið skaðlegt Þorsteinn sagði að það færi eftir málefnum hvort hann væri tilbúinn til að eiga samstarf við stjómarandstöð- una um skynsamlega og ábyrga físk- veiðistjómun. Þorsteinn sagðist ekki geta átt samstarf við Jóhann Ársæls- son um þau mál, því hann væri í grund- vallaratriðum ósammála honum um það hvemig haga eigi fískveiðistjómun. VEÐUR í DAG kl. 12.00 HeimlW: Veðurelota Islands (Byggtáveðurapá Kl. 18.301 gær) VEÐURHORFUR í DAG, 7. APRIL YFIRLIT: Milli (alands og Noregs er 990 mb. lægð sem þokast norður, en fyrir noröan land er minnkandi lægðardrag. Yfir norður Grænlandi er 1.020 mb. hæð en é Grænlandshafl er dálítil en vaxandi lægð aem hreyflst austur fyrir sunnan land. SPÁ: Hægur vindur víðst hvar á landinu og dálítil él norðanlands og á Vestfjörð- um, einkum þó á miðum og annesjum. Um landiö sunnanvert verður viðast léttskýj- að. Hlti 0 tll 5 stig að deglnum en vfða næturfrost. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Norðaustanátt, allhvöss um vestan- vert landið, en hægari annarstaðar. Él um norðan- og vestanvert landið, bjartviðri sunnanlands en skýjað og úrkomulftið annars staðar. Frost 1 tll 3 stlg. HORFUR Á SUNNUDAG: Fremur hæg austanátt á landinu. smáél norðaustan- og austanlands, en úrkomulaust að mestu annarstaðar. Hiti um 1 stig. o a Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk, Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað heil fjöður er 2 vindstig.. / r r * / * * * * • X * 10° Hitastig r r r r r * * r r * / * * * * * V V V V Súld J Rigning Slydda Snjókoma Skúrir Slydduél El = Þoka ^ * —— — — 1 “1 FÆRÐA VEGUM: (Kl.17.30ígær) Vegurinn um Mosfellsheiði er ófær en á Vestfjörðum er orðið fært á milli Þingvalla og Flateyrar. Breiðadalsheiði er ófær en búist er við að Botsheiði opnist I kvöld. Þá er orðið fært um (safjarðardjúp og Steingrímsfjarðarheiöi. Annarstaðar á landinu eru vegír yfirleitt færir en víða nokkur hálka. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftlrlitl í aíma 91-631500 og f grænni línu 99-6316. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 ígær að ísl. tíma Hlti voður Akureyri 1 hálfskýjað Reykjavlk 0 léttskýjað Bergen 4 haglél Helslnki 6 hálfskýjað Kaupmannahöfn 7 léttskýjað Narssarssuaq +8 skýjað Nuuk +8 skýjað Ósló 5 skýjað Stokkhólmur 10 léttskýjað Þórshöfn 3 slydduél Algarve 20 helðsklrt Amsterdam 8 úrkoma Barcelona 20 skýjað Berlfn 9 skýjað Chicago +1 skýjað Feneyjar 12 léttskýjað Frankfurt 8 léttskýjað Glasgow 4 skúr Hamborg 8 skýjað London 10 skýjað Los Angeles 12 skýjað Lúxemborg 6 skýjað Madrld 15 léttskýjað Malaga 21 léttskýjað Mallorca 18 skýjað Montreal 0 snjókoma New York 7 þokumóða Orlando 18 skýjað París 9 skúr Madeira 17 skýjað Róm 15 skýjað Vín 9 alskýjað Washington vantar Winnipeg +8 helðskírt Morgunblaðið/Ámi Sæberg Verkfall Á RANNSÓKNASTOFU Landspitalans þar sem þessi mynd er tekin starfa venjulega rúmlega 40 meinatæknar, en á meðan verkfall stend- ur yfir eru þar aðeins fjórir að störfum á daginn ásamt aðstoðarfólki til að sinna hvers konar bráaðtilvikum sem kunna að koma upp. Sam- tals starfa eitthvað á annað hundrað meinatæknar hjá Ríkispítölum. Fundurí kjaradeilu meinatækna í dag FUNDUR hefur verið boðaður í kjaradeilu Meinatæknafélags íslands við rikisvaldið hjá ríkissáttasemjara í dag klukkan 15, en verkfall meinatækna hófst á miðnætti 4. apríl og hefur ekkert miðað í samkomu- lagsátt ennþá. Um 230 meinatæknar eru í félaginu og má gera ráð fyrir að um 10% þeirra séu að störfum í verkfalli til að sinna nauðsyn- legri bráðaþjónustu á spítölunum. Starfsemi spítalanna gengur fyrir sig með svipuðum hætti og um stórhátið væri að ræða með deilan stend- ur yfir. Aðrar heilbrigðisstéttir eru einnig með lausa samninga, svo sem hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og röntgentæknar og funduðu hjúkrunarfræðingar með viðsemjendum sínum í gærmorgun. Jóhannes Pálmason, framkvæmda- stjóri Borgarspítalans, sagði að starf- semi spítalans hefði gengið snurðu- laust fyrir sig eftir að verkfallið hófst og tekist hefði að leysa öll vandamál sem upp hefðu komið, en rúmlega 40 meinatæknar í 30 stöðugildum starfa hjá spítalanum og eru 3 að störfum á daginn auk eins á sýkla- deild. „Þetta hefur auðvitað víðtæk áhrif á rekstur stofnunarinnar og er slæmt til lengri tíma litið. Vonandi fínnst lausn á þessu máli fyrr en síð- ar og verður að fást,“ sagði Jóhannes. Nýtt lyf við alzheimersjúkdómnum Getur hugsanlega hjálpað takmörkuð- um hópi sjúklinga í BANDARÍKJUNUM er verið að markaðssetja lyfið Cognex, sem reynt hefur verið gegn alzheimersjúkdómnum. Að sögn Pálma Jónssonar öldrunarlæknis, hefur lyfið verið reynt hér á landi í tilraunaskyni en það veiti ekki sömu lausn og þau lyf sem parkinsonssjúklingar hafi fengið. „Það hafa komið fram vísbendingar um að þetta lyf geti hugsan- lega hjálpað litlum takmörkuðum undirhópi sjúklinga með alzheimer- sjúkdóm, snemma í sjúkdómnum og í stuttan tíma,“ sagði hann. í frétt frá Reuter, segir að rann- sóknir hafi leitt í ljós að sjö af tíu sjúklingum sem þjást af alzheimer geti fengið hjálp taki þeir stóran skammt af Cognex, einnig þekkt sem tacrine, í stuttan tíma en að því fylgi aukaverkanir, svo sem lifrareitrun. Pálmi Jónsson segir að Iyfið hafí þegar verið reynt hér í tilrauna- skyni. „Hér er ekki komin nein heild- arlausn við alzheimersjúkdómi," sagði hann. „Og það er á engan hátt enn sem komið er lausn á sjúk- dóminum í líkingu við þau lyf sem parkisonssjúklingar fengu þegar parkinsonslyfm komu fram.“ Sagði hann að hugmyndin að baki lyfínu Cognex við alzheimer væri sambærileg lyflum við parkinsonsjúk- dómi en alzheimer væri mun flóknari sjúkdómur að því leyti að mun fleiri boðefni verða fyrir barðinu á alzhei- mer. „Þetta efni, tacrine, hamlar nið- urbroti á efni sem grípur inn í minnis- starfsemi miðtaugakrefisins en ár- angurinn er ekki jafn góður og menn höfðu vonast eftir,“ sagði Pálmi. „Engu að síður er þetta lyf markaðs- sett í Bandaríkjunum núna en þetta er ekki lausnin á alzeimersjúkdómi. Þetta lyf er ekki lokasvarið eða heild- arlausn en getur hugsanlega hagnýst völdum hópi snemma í sjúkdórnnum í tiltölulega stuttan tíma.“ Fjölskylda hjónanna Kristjáns og Hansínu Þakkir til björgwmrtnanna HANSÍNA Einarsdóttir, kona Kristjáns K. Jónassonar sem lést í snjóflóðinu á ísafirði í fyrradag, er við sæmilega heilsu, að sögn Einars Vals Kristjánssonar sonar hennar. Hún var enn á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á ísafirði í gær. Hansína er marin og skorin og fór líkamshiti hennar niður fyrir 30 gráður eftir að hún hafði legið í snjónum í liðlega hálfan annan klukkutíma. Á sjúkrahúsinu tókst að auka hitann aftur. Einar Valur vill fyrir hönd móð- ur sinnar og fjölskyldunnar koma á framfæri þakklæti til björgunar- manna fyrir aðstoð þeirra. Þá seg- ir hann að fjölmargir hafí haft samband og sýnt ijölskyldunni hlý- hug sem hún vildi þakka fyrir. Broðir Kristjáns fórst í Neskaupstað í snjóflóðunum í Neskaupstað 20. desember 1974 fórust tólf menn. Þar á meðal var Högni Jón- asson, bróðir Kristjáns K. Jónas- sonar sem fórst í snjóflóðinu á Isafirði nú.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.