Morgunblaðið - 07.04.1994, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1984
21
Virðulegur stj órnmálafor-
ingi mundar tertubotnana
eftir Einar Kárason
Jæja, nú er málum svo komið
að sjálfstæðismenn í Reykjavík
fínna ekki aðrar leiðir til að snúa
kosningabaráttunni sér í hag en
að hefja áróðursstríð gegn persónu
borgarstjóraframbjóðanda R-list-
ans. Það hefur legið í loftinu um
tíma að þetta yrði næsta bjargráð,
að reyna að sverta Ingibjörgu
Sólrúnu á alla lund, vega að mann-
kostum hennar, ná af henni „gei-
slabaugnum", einsog þeir í ergelsi
sínu yfír dvínandi vinsældum eigin
liðsmanna kalla virðingu þá og það
álit sem hún hefur unnið sér í
hugum landsmanna með fram-
göngu sinni og málflutningi.
Þeir eru svosem búnir að reyna
flest annað. Stolt sjálfstæðis-
manna og skrautfjöður í liðnum
kosningum, hið opna og lýðræðis-
lega prófkjör sem þeir hafa stöð-
ugt gumað af, það hafa þeir sjálf-
ir dæmt úr leik sem fáránlega
markleysu. Fyrst með því að haga
prófkjörinu svo að einn af þeirra
eigin helstu borgarmálaforingjum
líkti þeim við rússneskar kosning-
ar, og svo hentu þeir niðurstöðum
kjörsins í ruslafötuna áður en list-
inn var lagður fram. Þeir reyna
líka að breyta um yfírbragð á allan
hátt, láta líta svo út að þeir séu
í raun og veru kandídatar hins
sístritandi almennings („litla
mannsins" einsog fyrrverandi for-
seti borgarstjómar kallar jafnan
fyrirbærið), nú þykjast sjálfstæðis-
menn vera eldheitir baráttumenn
fyrir dagheimilum og almennings-
samgöngum og öðru slíku sem
þeir af pólitískri hugsjón hafa
trassað í áratugi. Þeir halda blaða-
mannafundi sína á stöðum einsog
Kaffívagninum og þykjast kunna
eitthvað hókus pókus til að útrýma
atvinnuleysi í borginni, en ekkert
dugar. Og hvað er þá til ráða? Jú,
nú eru það bara persónusvívirðing-
arnar sem þeir hafa ekki reynt í
þaula, og sjálfur Björn Bjarnason
formaður utanríkismálanefndar
Alþingis ríður á vaðið i grein í
Morgunblaðinu þann 31. mars, á
skírdag.
Greinin hefur það eitt að mark-
miði að draga upp karaktermynd
af Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur,
lýsa henni sem valdasjúkum
hrokagikk. Að sjálfstæðismenn
skuli vera komnir útí svona bar-
áttuaðferðir kemur einsog áður
sagði ekki á óvart. Meira undrun-
arefni er hinsvegar að það skuli
vera jafn landsföðurlegur maður
og Björn Bjarnason sem byijar að
kasta tertubotnunum, og svo hitt
hversu dæmi hans eru langsótt og
röksemdirnar aumlegar. Honum
fínnst það sérlega tortryggilegt
að hún segist vilja gera „skurk“ í
Skynsemi þessa fólks birtist hvað
best, þegar það telur að „rödd fólks-
ins“ hafi meira vit á byggingarlist
en arkitektar. Með slíkri yfirlýsingu
dæmir hver maður sig úr leik. Þetta
fyrirbæri, „rödd fólksins“, er oftast
nær hópur fólks, sem hefur ánægju
af þvi að láta nafn sitt birtast á
undirskriftaplaggi í íjölmiðlum án
nokkurrar ábyrgðar. I þessu tilfelli
eru það nokkur hundruð af 100.000
íbúum höfuðborgarinnar og fullyrða
má að fjöldi þess hefur breytt um
skoðun eftir ýtarlega kynningu á
húsi Hæstaréttar undanfarnar vikur.
Til fróðleiks má geta þess, að á
aðalfundi Lögmannafélags íslands,
höldnum 18. þ.m., var með þorra at-
kvæða hátt á þriðja hundrað fundar-
manna, fagnað byggingu Hæstarétt-
arhússins við Lindargötu 2.
„Og það er jafnvel
dylgjað um að hún sé
haldin mikilmennsku-
brjálæði og líti á sjálfa
sig sem Martein Lúther
og Loðvík fjórtánda.“
stjórnkerfi borgarinnar. Helst er á
Birni að skilja að hann álíti það
valdagræðgi að hún skuli yfírleitt
gefa kost á sér í borgarstjóraemb-
ættið, og hann virðist telja það
merki um hroka ef menn tala ekki
af nægilegri lotningu um borgar-
stjórn vinstri manna frá 1978-82.
Skoðunum þeirra er sýnd „hroka-
full fyrirlitning", segir Björn, og
það er einsog honum sámi! Og
svona heldur hann áfram, gefur í
skyn að Ingibjörg Sólrún hafí
fengið borgarstjóraembættið á
heilann („heyrir til undantekninga,
að frambjóðandi sé svo upptekinn
af háu embætti“), og það er jafn-
vel dylgjað um að hún sé haldin
mikilmennskubrjálæði og líti á
sjálfa sig sem Martein Lúther og
Loðvík fjórtánda.
Einar Kárason
Svona er nú páskabopskapur
sjálfstæðismanna þetta árið. Þeir
um það. Kosningabarátta af þessu
tagi lýsir bara örvæntingu og
bjargarleysi, og það er hálf rauna-
legt að horfa á menn sem ættu
að vera hafnir yfir slíkt veltast
um í forinni.
Höfundur er rithöfundur.
------» ♦ ♦
■ FJÖLSKYLDUVERND og
Félag forsjárlausra foreldra
boða til almenns borgarafundar
laugardaginn 9. apríl kl. 14 á
Holiday Inn, Sigtúni 38, Reykja-
vík. Yfírskrift fundarins er: Virða
íslensk stjórr.völd mannréttindi við
meðferð og úrlausn mála á sviði
fjölskyldu- og barnamála? Fram-
söguerindi og almennar umræður.
Góðir íslendingar!
Af tilefni 30 ára afmælis okkar 2. apríl bjóðum við
15% afslátt
af öllum vörum í verslun okkar
dagana 7., 8. og 9. apríl.
Að auki er veittur staðgreiðsluafsláttur.
Samfagnið okkur á þessum merku
tímamótum og gerið reyfarakaup um leið!
KS,tc:§mc»n/kicl
hrærivélar/fylgihlutir
Blomberq
heimilistæki
eldhúsvaskar
uppþvottavélar
FRANKE
raftæki
stálvaskar
TOSHIBA D/VEWOO
sjónvörp/örbylgjuofnar sjónvörp/örbyigjuofnar
EINAR FARESTVEIT & CO HF, BORGARTÚNI 28, SÍMI 62 29 01
Höfundur er hæstnréttar-
lögmaður.