Morgunblaðið - 07.04.1994, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1994
27
Bónus 5 ára
ÞAÐ VERÐUR mikið um að vera í Bónus næstu daga þegar hald-
ið verður upp á fimm ára afmæli verslunarinnar. Það var líka
mikið um að vera fyrir fimm árum þegar Bónus opnaði. „Þetta
var skelfilegt, hundruð manna sem biðu og við þurftum að loka
þrisvar þegar tölvukerfið klikkaði. En þarna sannaðist að fall er
fararheill", segir Jóhannes Jónsson kaupmaður í Bónus.
Bónus olli í rauninni miklum
straumhvörfum í íslenskri matvöru-
verslun. Vöruverð lækkaði í kjölfarið
hjá öðrum verslunum og Jóhannes
segir að til siðs sé að bjóða upp á
gamla verðið á afmælisdögum en
bendir á að ýmsir vöruflokkar hafa
lækkað síðan þá og margir staðið í
stað.
Eigendur Bónusverslunarinnar
voru fyrstir til að taka upp strika-
merkingar og líklega hefur viðskipta-
vinum oft þótt þeir frekar staddir í
heildverslun en búð. Það var einmitt
markmið Jóhannesar að eyða ekki
stórfé í innréttingar og húsnæði held-
ur halda kostnaði í lágmarki til að
ná fram hagstæðara vöruverði.
Verslunin við Skútuvog er fyrsta
Bónusbúðin og í bytjun voru starfs-
mennirnir þrír. Nú eru þeir um 40.
Jóhannes sagðist á sínum tíma
ætla að halda vöruverði niðri með
að opna ekki fyrr en á hádegi, taka
ekki við greiðslukortum og hafa færri
vörutegundir en aðrir.
Enn er ekki hægt að borga með
krítarkorti og Jóhannes í Bónus
hyggst ekki breyta opnunartíma
verslananna. „Þetta hefur gefist
mjög vel og morgnarnir eru nýttir
til að raða vörum í hillur og sinna
öðru sem þarf.“
Þegar Bönus í Skútuvogi opnaði
fyrir fimm árum voru vörutegundir
■ WSiWd*?"
> jí 'X-'i4
Jóhannes Jónsson kaupmaður í Bónus
um 800 talsins. Nú eru þær um 1100
og 70% af heildarveltu eru íslenskar
vörur. Hinsvegar hefur Jóhannes
komið sér upp samböndum við er-
lenda aðila og kaupir r.ú inn ýmis-
legt sem hann áður keypti af heildsöl-
Þuríður Valdimarsdóttir, sjúkra-
og íþróttanuddari.
Stúdíó
Hallgerðar
flutt í Fákafen 9
Hárgreiðslustofan býður upp á
alla almenna þjónustu og er
sama verð á laugardögum.
Opnunartími stofunnar er kl.
9 tii 18 virka daga og á laugar-
dögum kl. 10 til 14.
Eigendur eru Guðjón Þór Guð-
jónsson, núverandi Islandsmeistari
í hárskurði, og Halla Hjaltested.
Á sama stað er Sjúkra- og
íþróttanuddstofa Þuríðar en hún
flutti sig einnig um set í Fákafen
9. Eigandi hennar' er Þuríður
Valdimarsdóttir. Nuddstofan er
með sama opnunartíma og hár-
greiðslustofan. ■
Ohollusta
er að mikilli
natriumneyslu
Fyrir nokkru þegar fjallað var um
hollustu sjávarsalts læddist inn
villa á meinlegan stað. 1 stað þess
að mikil neysla á natríum lækki
blóðþrýsting þá hækkar hún blóð-
þrýsting. ■
Frystum
kertastjakann
o g vaxið rennur af
Oft vill vax leka niður kertastjaka
og þá er stundum erfitt að ná því
af. Heillaráð er að stinga kertastj-
akanum í frysti yfir nótt og morg-
uninn eftir ætti að vera auðvelt að
bijóta allt vax af stjakanuin. ■
f íQoda/i
Fljótlegt-Létt-Bragðgott
BIRYANI - INDVERSKT:
HRÍSGRIÓN MEÐ GRÆNMETI. KJÚKLINGI OG KRYDDI.
TORTIGLIONI - ÍTALSKT:
PASTASKRÚFUR MEÐ GRÆNMETI, NAUTAKIÖTl OG KRYDDl.
FARFALLE - ÍTALSKT:
PASTASLAUFUR MEÐ GRÆNMETI, SKINKU OG OSTI.
Ein msk. smjör á pönnuna,
innihaldið út í og ailt tilbúið á 5 mín.
Skyndiréttir sem bragðast og líta út
sem bestu sérréttir!
4.
'■ ” íHí
s '■’ sK/* m
TILB0D
VIKIMMAK
um og þannig náð vöruverði niður.
Það verður mikið um að vera í
Bónus næstu daga, tilboð á ótal vöru-
tegundum og vörukynningar.
grgB
gfj í
\1MUVí43-
HAGKAUP
■HHM