Morgunblaðið - 07.04.1994, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRIL 1994
37
■■■
Hættuástandi
aflétt á Flateyri
,,,, «7
Flateyn.
ALMANNAVARNANEFND Flateyrar aflétti síðdegis í gær
hættuástandi í bænum. Að sögn Kristjáns Jóhannessonar, sveit-
arstjóra á Flateyri, var þetta gert að fengnum upplýsingum
frá Veðurstofu íslands, en áfram verður fylgst náið með snjóa-
lögum og veðurhorfum.
Almannavarnanefndin skipaði
svo fyrir að morgni þriðjudags að
hús í efstu götu bæjarins skyldu
rýrnd vegna snjóflóðahættu. Lát-
laus ofankoma hafði verið nóttina
áður og var snjór mjög blautur
og þungur. íbúar húsanna fluttu
með tannbursta sína og sængur
til ættingja eða kunningja á öðrum
stöðum í bænum og bíða þess ró-
Morgunblaðið/RAX
Eyðilegging
MUNIR eigenda bústaðanna eyðilögðust í snjóflóðinu. Hér stendur eftir bókaskápur úr einum bústaðnum.
Kristjáns K. Jónassonar minnst á bæjarstjórnarfundi á ísafirði
Hugur manna stendur til endur-
uppbyggingar skíðasvæðisins
ÞINGMENN Vestfjarðakjördæmis koma til fundar við bæjarstjórn ísa-
fjarðar í dag til að ræða afleiðingar snjóflóðsins í fyrradag. Á auka-
fundi bæjarstjórnar ísafjarðar í gær minntust bæjarfulltrúar Kristjáns
K. Jónassonar, fyrrverandi forseta bæjarstjórnar, sem fórst í snjóflóð-
inu. Þá voru þeim mönnum sem unnu að björgunarstörfum og almanna-
vörnum færðar þakkir bæjarstjórnarinnar. Einar Garðar Iljaltason,
forseti bæjarstjórnar, sagði í gærkvöldi að hugur manna stæði til endur-
uppbyggingar skíðasvæðisins á Seljalandsdal en huga þyrfti fyrst að
ýmsum öryggismálum því viðvíkjandi.
á
Snjóflóðið
TTungudal var eina
Seljalandsdal
málið á
og i
fundi
bæjarstjórnar í gær. Fundurinn hófst
með því að forseti bæjarstjórnar,
Einar Garðar Hjaitason, flutti minn-
ingarorð um Kristján K. Jónasson,
fyrrverandi forseta. Rakti hann ævi
og störf Kristjáns og sagði m.a. að
hann hafi alla tíð verið vel liðinn og
þekktur borgari á ísafirði og væri
því mikill sjónarsviptir við fráfall
hans. Fyrir hönd bæjarstjórnarinnar
óskaði Einar Garðar Hansínu Einars-
dóttur, eiginkonu Kristjáns, góðs
bata. Bað forseti bæjarfulltrúa og
aðra viðstadda að rísa úr sætum og
votta hinum látna virðingu og þökk
fyrir unnin störf og aðstandendum
samúð.
Boð um aðstoð
Á fundinum sögðu Smári Haralds-
son bæjarstjóri, Eyjólfur Bjarnason
forstöðumaður tæknideildar og Þor-
bjöm Sveinsson slökkviliðsstjóri frá
snjóflóðunum, aðdraganda þeirra og
störfum Almannavarnanefndar. Eins
og fram hefur komið varð mikið tjón
á skíðamannvirkjum á Seljalandsdal,
sumarbústöðum og sumarbústaða-
landi og skógrækt og snertir flest
af þessu bæjarsjóð. Flestir sumarbú-
staðirnir eru tryggðir ásamt húsum
á skíðasvæðinu, einnig rafkerfið í
lyftunum en vafi leikur á um trygg-
ingu annarra hluta skíðalyftanna.
Einar Garðar Hjaltason sagði frá
því að bæjaryfirvöld hefðu fengið
margar kveðjur síðustu daga og boð
um aðstoð vegna snjóflóðsins, meðal
annars frá Davíð Oddssyni forsætis-
ráðherra, Sighvati Björgvinssyni við-
skiptaráðherra, Árna Sigfússyni
borgarstjóra í Reykjavík og þing-
mönnum kjördæmisins.
Bæjarstjórnin samþykkti að fela
forseta og bæjarstjóra að koma á
framfæri þakklæti til björgunarsveit-
armanna, Almannavarna og annarra
sem tekið hafa þátt í. starfinu eftir
snjóflóðin fyrir þeirra framlag.
Þarf að læra af reynslunni
Einar Garðar sagði í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi að hugur
manna stæði til þess að endurbyggja
skíðasvæðið á Seljalandsdal. Þar
væri tvímælalaust besta svæðið sem
völ væri á og erfitt að fínna gott
skíðasvæði þar sem aldrei væri hætta
á snjóflóðum. Hins vegar þyrfti að
læra af fenginni reynslu og reyna
að byggja upp öruggari aðstöðu.
Nefndi hann í því sambandi að Veð-
urstofan ætlaði að setja upp sjálf-
virka snjómæla á Dalnum til að afla
upplýsinga um snjóþykkt til að hafa
til hliðsjónar við mat á snjóflóða-
hættu. Þá þyrfti að setja upp snjó-
flóðavarnir og styrkja mannvirkin.
Varðandi uppbyggingu á sumar-
bústaðasvæðinu sagði Einar Garðar
að erfitt væri að setja sig upp á
móti því ef fólk vildi endurbyggja
bústaði sína. Hins vegar þyrfti að
athuga ýmis mál, eins og til dæmis
hvort fólk fengi bústaði sína tryggða.
Fundur Viðlagatryggingar
Margir eigendur sumarhúsa fóru
á flóðasvæðið í góða veðrinu síðdeg-
is í gær til að skoða sig um og leita
að eigum sínum.
Liðlega 60 manns kom á fund
Geirs Zoega, framkvæmdastjóra Við-
lagatryggingar íslands, á Isafírði í
gærkvöldi. Geir gaf upplýsingar um
Viðlagatrygginguna og svaraði fyrir-
spurnum sumarbústaðaeigenda. Af-
henti hann fólki eyðublöð til að gera
grein fyrir tjóni sínu og sagðist
reikna með að koma aftur eftir um
það bil mánuð til að gera upp. Þau
hús sem eru brunatryggð eru með
hamfaratryggingu hjá Viðlagatrygg-
ingu. Hins vegar verður fólk að
tryggja sérstaklega innbú og taldi
Geir að ekki væru allir með slíka
tryggingu.
legir að hættuástand verði flautað
af.
Ástandið nú svipað og fyrir
fjórum árum
Ekki er hægt að segja að menn
hafi kippt sér sérstaklega upp við
þessar aðgerðir, því samskonar
ástand skapaðist árið 1990 þegar
fólk úr sömu húsum var í viku frá
heimilum sínum, vegna snjóflóða-
hættu.
Snjóalög í hlíðum Önundarfjarð-
ar eru með mesta móti og bætti
hressilega í um páskahelgina. Má
sjá snjóspýjur á víð og dreif um
fjallshlíðina fyrir ofan Hvilftar-
strönd, sem er fyrir innan bæinn.
Var veginum um hana lokað á
tímabili vegna snjóflóðahættu, en
hefur hann verið opnaður aftur. í
ljósaskiptunum á þriðjudagskvöld
féll snjóflóð úr bæjargilinu fyrir
ofan Flateyri, en staðnæmdist í
öruggri fjarlægð frá byggð. Urðu
nokkrir vitni að því þegar það flóð
féll og er óhætt að segja að það
hafi verið hrikaleg sjón að sjá
þegar snjórinn steyptist niður gilið
og breiddist út í hlíðinni rétt fyrir
innan bæinn.
Besta veður var í Önundarfirði
í gær og sólbráð nokkur.
Skíðasvæðið á Ólafsfirði lokað
ALMANNAVARNANEFND Ólafsfjarðar ákvað í gærmorgun að loka
skíðasvæði Olafsfirðinga vegna yfirvofandi snjóflóðahættu. íbúða-
byggðin á Ólafsfirði var aldrei í neinni hættu og var hættuástandi
aflétt aftur í gærkvöldi.
Að sögn Hálfdáns Kristjánssonar,
bæjarstjóra á Óiafsfirði, var ákveðið
að loka skíðasvæðinu eftir að snjóa-
lög höfðu verið könnuð og með tilliti
til veðurspár en Veðurstofan spáði
hlýnandi í gærdag. íbúðabyggðin var
ekki í hættu en að sögn Hálfdáns
er lítill snjór fyrir ofan hana. Viðvör-
un almannavarnanefndar höfðu eng-
in áhrif á umferð.
Viðvörunin var dregin til baka í
gærkvöldi þegar búið var að kanna
ástandið á skíðasvæðinu til hlítar.
Að sögn Hálfdáns var hættan þó
aldrei mikil vegna þess að það hlýn-
aði aldrei neitt að marki og í gær-
kvöldi ákvað almannavarnanefndin
að aflétta hættuástandi.
„Við gáfum út viðvörun til að fólk
væri meðvitað um ástandið almennt,
sem er mun verra núna en það er
að öllu jöfnu,“ sagði Hálfdán. Þetta
var í fyrsta skipti í vetur sem nefnd-
in gefur út viðvörun vegna yfírvof-
andi snjóflóðahættu.
Siglfirðingar var-
aðir við að vera
á ferli í fialllendi
Siglufirði.
ALMANNAVARNANEFND Siglufjarðar kom saman kl. 14.00 í gær
og fór yfir nýjar athuganir á snjóalögunum í fjöllunum við bæinn. í
Uósi þeirra er ekki talin ástæða til að óttast snjóflóð þar að svo stöddu.
Þó telur nefndin rétt að vara fólk við að vera á ferli í fjalllendi í Siglu-
firði að óþörfu og varar foreldra eindregið við að börn þeirra séu að
leik við snjóhengjur sem víða hafa myndast.
Almannavarnanefnd Siglufjarðar til þess að spáin sé að batna og eru
SIEMENS
=5
CC
LLI
NY ÞVOTTAVÉL Á NÝJU VERÐI!
mun áfram fylgjast grannt með, en
sem betur fer hefur komið í ljós við
síðustu athuganir að betri binding
er nú í snjónum en undanfarna daga
og samkvæmt nýjustu fréttum frá
Veðurstofunni ér margt sem bendir
menn því bjartsýnni en áður.
Gífurlegu snjómagni hefur kyngt
niður í bænum undanfarna daga.
Nokkur smáflóð hafa fallið á veginn
við Ströndina nálægt Strákagöngum,
en engin frá því í fyrradag. SI
• 11 kerfisinnstillingar fyrir suðuþvott,
mislitan þvott, straufrítt og ull
• Vinduhraði 500 - 800 sn./mín.
• Tekur mest 4,5 kg
• Sparnaðarhnappur (1/2)
• Hagkvæmnihnappur (e)
• Skolstöðvunarhnappur
• Sérstakt ullarkerfi
• (slenskir leiðarvísar
Og verðið er ótrúlega gott.
Siemens þvottavél á aðeins
kr. 59.430 stgr.
SMITH & NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 628300
Viljir þú endingu og gædi -
Akranes:
Rafþjónusta Sigurdórs
Borgarnes:
Glitnir
Borgarfjörður:
Rafstofan Hvitárskála
Hellissandur:
Blómsturvellir
Grundarfjörður:
Guðni Hallgrímsson
Stykkishólmur.
Skipavík
Búðardalur:
Ásubúð
ísafjörður
Pólfinn
Hvammstangi:
Skjanni
Blönduós:
Hjörleifur Júlíusson
Sauðárkrókur
Rafsjá
Sigluhörður:
Torgið
Akureyri:
Ljósgjafinn
Oryggi
Þórshöfn: