Morgunblaðið - 07.04.1994, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRIL 1994
Geng ekki með neina
landsmótsdrauma
- segir Anne Sofie Nielsen sem stundar tamningar á íslandi
Hestar
Valdimar Kristinsson
FRÁ ÞVÍ íslenski hesturinn fór
að hasla sér völl á meginlandi
Evrópu hafa samskipti hesta-
manna þar og hériendis aukist
stöðugt og er nú mjög algengt að
ungir íslenskir hestamenn fari
utan og vinni um lengri eða
skemmri tíma og svo öfugt að
erlend ungmenni með áhuga fyrir
íslenska hestinum komi hingað til
lands i sömu erindagjörðum.
Talsvert hefur verið fjallað um
íslandshestamennskuna erlendis hér
í hestaþætti Morgunblaðsins en aldr-
ei þó um þá sem koma hingað að
utan til starfa. Af því tilefni var brun-
að austur á Selfossi en þar starfar
dönsk stúlka Anne Sofíe Nielsen við
tamningar hjá þeim Einari Öder
Magnússyni og Svanhvíti Kristjáns-
dóttur sem eru þar með umfangsmik-
inn tamningarekstur. Var hún af
þessu tilefni tekin tali og beðin að
segja frá sinni hestamennsku og veru
sinni hér á landi.
Hestar voru bara hestar
„Mín fyrstu kynni af íslenskum
hestum voru í reiðskóla í Danmörku
þar sem voru eingöngu slíkir hestar.
Það að ég skyldi hrífast af íslenskum
hestum var að sjálfsögðu tilviljun.
Skólasystir mín hafði sótt reiðtíma í
þessum reiðskóla og dró mig með
sér. Þá var lítið spáð í hvort hestarn-
ir væru íslenskir eða ekki, hestar
voru bara hestar og hvaðan þeir voru
gilti einu hjá átta ára stúlkum. En
þarna sótti ég reiðtíma í ein átta ár
fyrst einu sinni í viku en tímunum
fjölgaði með árunum auk þess sem
ég var mikið að hjálpa til við hirð-
ingu og annað, allt í sjálfboðastarfi.
Hreifst ég af hestamennskunni og
má segja að hún hafi heltekið mig
strax og engin breyting hefur orðið
þar á síðan,“ byijar Fia frásögn sína.
Glókollur fyrir HM ’91
Sextán ára kaupir Fia sinn fyrsta
hest, að sjálfsögðu íslenskan eftir
að hafa unnið um skeið í bakaríi til
að afla fjár til kaupanna. Sá hestur,
sem var danskfæddur, reyndist ekki
sérlega vel og seldi hún hann. „Hann
var að heita má ótaminn þegar ég
fékk hann en ég tamdi hann sjálf.
Hann var geðgóður en latur og seldi
ég hann til Svíþjóðar þar sem hann
er barnahestur. Þá keypti ég Glókoll
frá Brekkukoti sem var talsvert betri
hestur. Keppti ég töluvert á honum,
meðal annars á heimsmeistaramót-
inu í Svíþjóð 1991. Ég keppti í fímm-
gangi tölti, gæðingaskeiði og 250
metra skeiði. Ég varð í áttunda sæti
í gæðingaskeiði sem ég var bara
nokkuð ánægð með. Að komast á
heimsmeistaramót var mjög spenn-
andi, það var að sjálfsögðu mikil
taugaspenna í kringum úrtöku-
keppnimar en þetta færði mér mikla
reynslu. Ég keypti þennan hest ein-
vörðungu með það fyrir augum að
komast í danska liðið þannig að það
hefðu verið talsverð vonbrigði ef
þetta hefði ekki gengið upp hjá mér.“
Rikke Schultz, sem nú er starfandi
dýralæknir hér á íslandi, átti Gió-
koll og hafði hún keppt nokkuð á
honum. Var meðal annars með hann
sem varahest á HM í Danmörku ’89.
í pílagrímsferð til íslands
Fljótlega fór að örla á áhuga fyrir
að heimsækja fyrirheitna landið ís-
land ef svo má að orði komast því
það er draumur allra útlendinga sem
hrífast af íslenska hestinum að kom-
ast þangað og helst að fá vinnu við
hesta. 1988 lét Anna drauminn ræt-
ast og var um mánaðartíma á Sig-
mundarstöðum hjá Reyni Aðalsteins-
syni og fjölskyldu og svo aftur árið
eftir. „Við fórum þijár stelpur úr
reiðslkólanum saman í þessar ferðir,
þetta voru svona pílagrímsferðir hjá
okkur. Þetta var mikil upplifun fyrir
okkur. Landið fallegt og hestamir
góðir. ísland kom mér kannski ekki
á óvart, það var nokkum veginn eins
og ég hafði hugsað mér, það gat
eiginlega ekki verið öðruvísi. Það var
meiri alvara á ferðinni þegar ég kom
næst til íslands, búin með skólann
og hægt að hella sér óhindrað í hesta-
mennskuna. Veturinn ’92 réð ég mig
í tamningar í Miðsitju hjá Jóhanni
Þorsteinssyni og Sólveigu Stefáns-
dóttur. Það var lærdómsríkur vetur,
þarna breyttist hestamennskan úr
frístundagamni í atvinnumennsku. í
Miðsitju tók ég fmmtamningarpróf
„Við Stormsker látum okkur í léttu rúmi liggja þótt við förum ekki
saman á landsmótið en vissulega myndum við njóta þess vel ef svo
færi“, segir Fia, sem bíður landsmótsins með eftirvæntingu.
Félags tamningarmanna. Voru tekin
út hjá mér fímm trippi í byijun, öll
ótamin en í lokin var metin tamning
þriggja þeirra sem ég valdi sjálf úr
þessum hópi. í prófínu þurfa trippin
að teymast vel bæði með manni og
hesti, síðan eru þau sýnd í reið og
prófdómaramir fara á bak. í júní fór
ég aftur heim að þjálfa Glókoll og
tók þátt síðar í Norðurlandamótinu
sem haldið var í Noregi. Eftir mótið
fór ég að vinna á búgarð skammt
frá Hamborg í Þýskalandi þar sem
voru íslenskir hestar. Það er mikill
munur á að vinna hér og í Þýska-
landi. Ég fyrir mitt leyti kann betur
við mig hér, þetta er allt náttúru-
legra hér og eðlilegra. Einnig var ég
á annan mánuð í Canada hjá Robin
Hood sem er rnörgum íslendingum
að góðu kunn. I fyrravetur réð ég
mig svo til Einars Öder og Svönu
hér á Selfossi og var ég hér á landi
alveg fram að heimsmeistaramótinu
Hrossaræktarsamband Suðurlands
29 hestar í boði í sumar
SENN LÍÐUR að því að stóðhestarnir hefji skyldustörf sín og fari
að gagnast hryssum vítt og breitt um Iandið. Hrossaræktarsamböndin
eru nú flest hver að leggja síðsutu hönd á eða nýbúin að raða niður
hestum sínum og leiguhestum í girðingar á svæði hvers sambands.
Hestaþættinum hefur nú borist listi yfir stóðhestanotkun á vegum
Hrossaræktarsambands Suðurlands.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Meðal leiguhesta sem verða í boði á vegum deilda Hrossaræktarsam-
bands Suðurlands er glæsihesturinn Stormur frá Stórhóli sem er að
margra mati undrabarn í íslenskri hrossarækt hvað varðar háls, herð-
ar og bóga sem hann fékk 9,5 fyrir og þykir verðmæti í hrossaræktinni.
Listinn er á þessa leið:
Hrafn 802 frá Holtsmúla verður
á húsi og fyrra gangmál að Tóftum
hjá Bjarkari Snorrasyni formanni
sambandsins.
Kveikur frá Miðsitju verður á
húsi í Mýrdalnum en fyrra gangmál
í Heysholti.
Gáski 920 frá Hofsstöðum verð-
ur á húsi í Kjarri í Olfusi hjá Helga
Eggertssyni, fyrra gangmál í Vest-
ur-Landeyjum og seinna gangmál í
Biskupstungum.
Viðar 979 frá Viðvík verður á
húsi að Hrafnkelsstöðum, fyrra
gangmál í Austur-Landeyjum og
seinna gangmál í Holta og Land-
sveit.
Sörli frá Búllandi verður á húsi
að Kjarri í Ölfusi, fyrra gangmál
vestur í Dölum, seinna gangmál í
Gnúpveijahreppi.
Reykur frá Hoftúnum verður á
húsi í Árbæjarhjáleigu, fyrra gang-
mál á Skeiðunum og seinna gang-
mál í Dölunum.
Kópur frá Kvistum sem sam-
bandið hefur nýverið keypt verður á
húsi í Árbæjarhjáleigu, fyrra gang-
mál í Rangárvallahreppi.
Angi frá Laugarvatni verður
fyrra gangmál í Villingaholtshreppi,
seinna gangmál í Hrunamanna-
hreppi en á húsi í Dölunum.
Kólfur frá Kjarnholtum verður
seinna gangmál á Stokkseyri en all-
ir þessir hestar eru í eigu sambands-
ins. Auk þeirra verða leigðir Baldur
frá Bakka sem verður á húsi á
Skeiðunum og Kolgrímur frá
Kjarnholtum sem verður fyrra
gangmál í Gaulveijabæ og seinna í
Austur-Landeyjum en báðir þessir
hestar eru fengnir í skiptum frá
Dalamönnum fyrir Sörla frá Búl-
iandi og Reyk frá Hoftúnum. Aðrir
leiguhestar eru Kolbeinn frá
Hraunbæ sem verður fyrra gang-
mál í Skaftárhreppi. Mímir frá
Ytra-Skörðugili fyrra gangmál í
Fljótshlíðinni. Ljúfur frá Torfunesi
fyrra gangmál í Hvolhreppi. Tandur
frá Kjartansstöðum fyira gangmál
í Holta og Landsveit. Páfi frá
Kirkjubæ fyrra gangmál í Ása-
hreppi. Heiðar frá Ási fyrra gang-
mál í Ásahreppi. Hjörvar frá Arn-
arstöðum fyrra gangmál að Eyrar-
bakka. Sveipur frá Skáney fyrra
gangmál í Sandvíkur og Hraungerð-
ishreppi. Gustur frá Grund fyrra
gangmál í Hrunamannahreppi.
Hrynjandi frá Hrepphólum fyrra
gangmál í Grímsnesi og Laugardal.
Svartur frá Unalæk fyrra gangmál
í Súluholti og seinna gangmál í
Heysholti og Stormur frá Stórhóli
verður fyrra gangmál í Kjósinni.
Stígur 1017 frá Kjartansstöðum
seinna gangmál undir Eyjafjöllum.
Hrannar frá Kýrholti seinna gang-
mál í Holta og Landsveit. Stígandi
frá Hvolsvelli seinna gangmál í
Holta og Landsveit. Þorri frá Þúfu
seinna gangmál í Sandvíkur og
Hraungerðishreppum og Kjarval
frá Sauðárkróki seinna gangmál í
Djúpárhreppi. Alls eru þetta 29 hest-
ar sem standa Sunnlendingum til
boða að þessu sinni. Satnbland af
eldri og reyndum hestum og ungum
vel ættuðum og efnilegum hestum.
stoppistöð
Útiá
eftirJóhann G.
Gunnarsson
X
Eru sjálfstæðismenn í Reykjavík
að missa af strætó? Þeirri spurningu
fæst iíklega ekki svarað fyrr en í vor
er borgarstjómarkosningar verða
yfírstaðnar. Einhvem veginn fínnst
manni nú samt að í ljósi atburða síð-
ustu vikna séu sumir smeykir um
sig. Satt að segja fínnst mér, hægris-
> innuðum manninum, það ekki skrýt-
ið. Ég, sem starfsmaður SVR hf.,
hef þurft að sitja undir þvílíkum vit-
„Nú spyr ég: Er SYR
hf. í samkeppni við
aðra? Engan í fljótu
bragði séð, eða hvað? “
leysisgangi undanfarna mánuði
vegna breytinga á SVR að maður
hlýtur að spyija: Hvað á ég að kjósa
núna?
Fúið timbur
.Mér. verðpr, æ ljósara. að timbrið
sem Sveinn Andri og félagar notuðu
í uppsláttinn á SVR hf. er svikið.
Það er svo fúið og gegnsósa af hrá-
slagalegum og illa kokkuðum hug-
myndum að hver einasti maður sem
ég þekki snýr sér undan ef minnst er
á SVR hf. Þessa staðreynd sá fjöldinn
ailur af flokksbundnu sjálfstæðisfólki
í Reykjavík og felldi Svein Andra með
eftirminnilegum hætti í prófkjöri ný-
lega. Eftir margra mánaða baráttu
vagnstjóra SVR hf. fyrir gefnum lof-
orðum, gekk Markús Orn til samninga
og tryggði okkur þau kjör og réttindi
sem okkur bar. Þessi samningur hefði
Jóhann G. Gunnarsson
að öllu jöfnu átt að vera gjörsamlega
óþarfur ef uppsláttartimbrið hefði
verið betra í bytjun.
Samkeppnin
Nú er Markús Örn hættur og þá
vaknar sú spurning: Hvað gerir nýr
borgarstjóri? Árni Sigfússon var
spurður af blaðamanni, daginn sem
hann og Markús skiptu um stól í
beinni útsendingu, hvort hann myndi
fylgja yfirlýstri stefnu flokksins
varðandi einkavæðingu borgarfyrir-
tækja. Svar hans var á þá leið að
hann sæi ekki ástæðu til að einka-
væða borgarfyrirtæki sem ekki væri
í samkeppni við aðra. Nú spyr ég:
Er SVR hf. í samkeppni við aðra?
Engan í fljótu bragði séð, eða hvað?
Þau rök hafa óspart heyrst að þetta
sé ekkert sem við þurfum að hræð-
ast, þar sem enginn hafí nauðsynleg-
an vagnakost til rekstrar leiðanna.
En ,ef við hinsyegar skoðum skýrslu