Morgunblaðið - 07.04.1994, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1994
45
Samviskuspuming-
ar til blaðamanna
eftir Sigurð Þór
Guðjónsson
Agnes Bragadóttir blaðamaður
ritaði grein í Lesbók Morgunblaðs-
ins þann 19. mars undir fyrirsögn-
inni „Fórnarlömb nauðgara vegin
og léttvæg fundin“.
Hún gerir það að umtalsefni að
enginn var í Hæstarétti til að taka
á móti áskorun frá göngu „gegn
kynferðisofbeldi", á alþjóðlegum
baráttudegi kvenna. Staðhæfir
Agnes, að með þessari fjarveru
ásamt tilteknum ummælum for-
seta réttarins, sem hann hefur
reyndar borið til baka opinberlega,
sýni hann „fórnarlömbum kynferð-
isofbeldis takmarkalítinn dónaskap
og slíka fyrirlitningu, að það hlýtur
að hafa vakið athygli alþjóðar“.
Agnes vísar síðan til máls í Eng-
landi þegar dómari felldi vægan
dóm í nauðgunarmáli gegn barni
og segir að sá dómur, er vakið
hafi mikla reiði, kunni að verða til
þess þar í landi að „reglum um
hæfi og val dómara yrði breytt“.
Og hún telur full efni til að sams-
konar umræða hefjist hér.
Ég virði réttlætiskennd Agnesar
Bragadóttur. Og eins og fyrri dag-
inn þorir hún að segja meiningu
sína.
En fordómar gegn þolendum
kynferðisofbeldis eru síður en svo
bundnir við dómstóla. Þeir koma
fram miklu víðar og oft enn þá
verri og smita þaðan út frá sér,
jafnvel inn í réttarkerfið. Slíkir for-
dómar eru því alveg jafn skaðlegir
og ætlaðir fordómar dómstólanna.
Þess vegna er nauðsynlegt að taka
á þeim hvar sem þeir koma fram.
Og það þarf ekki að leita langt
yfir skammt til annarra landa.
Þeir blasa við fyrir framan nefið á
okkur hér heima.
Aðeins fimm dögum fyrir
gönguna birti Morgunblaðið eftir
mig grein sem hét „Síðbúin máls-
vörn fýrir siðanefnd BÍ“. Þar leiddi
ég að því rök, að í niðurstöðu sinni
um tiltekið kærumál gegn blaða-
manni fyrir _ siðanefnd Blaða-
mannafélags íslands vegna tíma-
ritsfrásagnar um kynferðisofbeldi,
hafi nefndin fjórum sinnum brotið
á mér sem einstaklingi siðareglur
blaðamanna og var ég þó ekki
formlegur aðili kærumálsins. Að-
eins þolandi ofbeldisins er skipti
sköpum í lífi mínu. Auk þess færði
ég rök að því að tilteknar hug-
myndir nefndarinnar um æskileg
vinnubrögð blaðamanna stuðluðu
almennt að fordómum, mismunun
og stimplunum á þolendum kyn-
ferðislegs ofbeldis. Grein mín var
algjörlega málefnaleg og hvert at-
riði fyrir sig rökstutt ítarlega. Rök
mín verða því aðeins ómerkt með
því að hrekja þau með öðrum gild-
um rökum. Það hefur enn ekki
verið gert.
Sigurður Þór Guðjónsson
„Ætlar Blaðamannafé-
lag íslands að bjóða
hinum almenna borg-
ara, sem telur að blaða-
maður hafi brotið á sér
siðareglur, upp á það
að leita réttar síns fyrir
siðanefnd, er sjálf hef-
ur nánast verið staðin
að verki á almannafæri
við brot á siðareglum
blaðamanna og hvatt
óbeint að auki til mis-
mununar á þolendum
kynferðisofbeldis og
stuðlað að fordómum
gegn þeim?“
Óhjákvæmilegar spurningar
í framhaldi af því eru eftirfar-
andi spumingar óhjákvæmilega
rökrétt framhald:
Ætlar Blaðamannafélag íslands
að bjóða hinum almenna borgara,
sem telur að blaðamaður hafi brot-
ið á sér siðareglur, upp á það að
leita réttar síns fyrir siðanefnd, er
sjálf hefur nánast verið staðin að
verki á almannafæri við brot á
siðareglum blaðamanna og hvatt
óbeint að auki til mismununar á
þolendum kynferðisofbeldis og
stuðlað að fordómum gegn þeim?
Er nokkurt siðvit í því? Getur fólk
treyst slíkri nefnd? Og samræmist
hún virðingu blaðamannastéttar-
innar fyrir sjálfri sér og almenn-
ingi?
Siðanefnd blaðamanna er að
vísu enginn hæstiréttur, hvorki að
valdi né virðingu. En hún er eigi
Fjölbreytt starf Viiinu-
skólans í Kópavogi
^ Á BÆJARRÁÐSFUNDI í Kópavogi 24. mars sl. var samþykkt til-
laga íþróttaráðs um nýjung í starfi Vinnuskólans í Kópavogi. Til-
lagan felst í því að unglingum í Kópavogi, sem starfa munu við
Vinnuskólann, verði boðið upp á ýmis námskeið meðan á störfum
þeirra í Vinnuskólanum stendur.
Markmiðið með sumarnám-
skeiðum þessum er að virkja ungl-
( inga í uppbyggjandi leik og námi
þann tíma sem þeir eru ekki við
í vinnu á tímabilinu. Þannig verður
| unglingum boðið upp á námskeið
í siglingum, hokkí, götukörfu,
tennis, silungsveiði, reiðnámskeið
og golfi svo nokkuð sé nefnt þann
, hluta starfstíma Vinnuskólans
þegar unglingar eiga sína frístund.
Þá er ennfremur lagt til að farið
verði í gönguferðir og unglingum
kynnt náttúran og unnið verði hin
ýmsu verkefni samfara og í sam-
vinnu við Náttúrufræðistofu Kópa-
vogs. Hugmyndirnar eru settar
fram með þeim fyrirvara um að
þær verði unnar í samvinnu við
unglinga og samþykktar af þeim.
að síður opinber úrkurðarnefnd
fjölmiðla til að fjalla um meintar
misgjörðir blaðamanna og þar með
hugsanlegt ranglæti. Og Mörður
Árnason, varaformaður nefndar-
innar, hefur einmitt bent á það að
úrskurðir hennar eru í vaxandi
mæli notaðir sem kærugögn fyrir
dómstólum. Það er því áríðandi að
nefndin gæti sömu tillitssemi og
varkárni gagnvart meintum þo-
lendum kynferðisofbeldis og siða-
reglur ætlast til að blaðamenn sýni
öðru fólki. Það er afar ólíklegt að
dómstólar, saksóknari eða rann-
sóknarlögregla, hafi nokkru sinni
sýnt meintum eða sönnuðum þo-
lendum kynferðisofbeldis aðra eins
lítilsvirðingu og ég þykist haf
sýnt fram á með rökum, sem ekl
hafa verið hrakin, að siðanefn
blaðamanna gerði í Mannlífsmál
inu.
Agnes Bragadóttur virðist ekk
hafa hnotið um þetta óvenju skýra
íslenska dæmi um „dónaskap og
fyrirlitningu" á þolendum kynferð-
islegs ofbeldis. Hvers vegna? Hún
er þó blaðamaður og ætti því siða-
nefnd þeirra að standa henni jafn-
vel enn þá nær en dómstólamir til
að krefjast af nefndinni sanngirni
og virðingar í garð þolenda. Þetta
mál hefur heldur ekki raskað ró
nokkurs annars blaðamanns. Dag-
blöðin og aðrir fjölmiðlar hafa leitt
það hjá sér. Það hafa samtökin
Stígamót einnig gert, þó þau séu
í vitund þjóðarinnar helstu mál-
svarar þolenda kynferðisofbeldis.
En Jóna Rúna Kvaran lét þess
reyndar nýlega getið, í umræðu-
þætti í sjónvarpi um skrif blaða-
manna um einstaklinga, að það
þyrfti hugrekki til að styðja við
bakið á öðrum. Það eru orð að
sönnu.
Þó vel meint og að ýmsu leyti
réttmæt skrif Agnesar Bragadótt-
ur séu tilefni þessarar ábendingar
minnar, tala ég til allra blaða-
manna. Fáeinar skýrar og einfald-
ar grundvallarspumingar, sem
orðaðar eru hér að framan undir
millifyrirsögninni, bíða svars fyrir
þeirra samvisku, sem stundum
verður til allrar hamingju hávær í
gagnrýni á spillingu og ranglæti í
íslensku samfélagi. Og svörin
munu ekki fara framhjá neinum.
Allra síst sú þögn sem ærir.
Höfundur er ríthöfundur.
Iðnlánasjóður auglýsir til sölu eða leigu fasteignirnar
Suðurhraun 2 og 2A, Garðabæ. Um er að ræða
u.þ.b. 6.000 fm byggingar sem skiptast þannig:
1. Skrifstofubygging 420 fm.
Vinnusalur I 2.450 fm.
Starfsmannaaðstaða/skrifstofa 198 fm.
Fimm þjónusturými með innkeyrsludyrum 990 fm.
2. í útleigu til 1996:
Vinnusalur II 1.365 fm.
Starfsmannaaðstaða 140 fm.
Stöðvarhús 438 fm.
Fasteignin er byggð á árunum 1984 til 1987. Lóðin
er um 47.500 fm og fylgir henni töluverður bygginga-
réttur. Til greina kemur að selja eignina í hlutum.
Upplýsingar veittar hjá Iðnlánasjóði í síma 680400.
VIÐEYJARSTOFA |
fyrir smærri og stærri hópa
<Ú(S>
Eftirminnileg ferð fyrir stórfjölskylduna,
starfsmannafélögin, niðjamótin, átthagasamtökin,
félagssamtökin og alla hina hópana.
q)(9
í hinni sögufrægu Viðeyjarstofu „Slotinu", er rekinn vandaður
veitingastaður. Par svigna borðin undan krásunum,
rétt eins og þau gerðu fyrir 200 árum.
Matseðillinn og matreiðslan er þó með öðrum hætti en þá var.
€>(£> »
ts
d>
Má freista ykkar með ævintýralegri ferð
og sælkeramáltíð á góðu verði!
Sigling út í Viðey tekur aðeins 5 mínútur á afar geðþekkum báti.
q)(9
Upplýsingar og borðapantanir í símum 6219 34 og 6810 45
MODELSAMTOKIN
Skemmtilegt og þroskandi
námskeið fyrir ungar stúlkur
13-16 áraog 17 ára og eldri.
Sviðsframkoma, ganga, snyrting, hárgreiðsla
og framkoma.
Myndatökur— pósur.
Helgarnámskeið - kennt fjórar helgar.
í lokin verður tískusýning og afhent
viðurkenningaskjöl.
Upplýsingar í síma 643340 eða 37878
milli kl. 17-19.
Uuuur Arngrímsdðttir
M unið
gjafakortin