Morgunblaðið - 07.04.1994, Page 50
T
50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1994
+
Elskuleg eiginkona mín,
BJÖRG SVEINSDÓTTIR,
Hofsvallagötu 15,
Reykjavík,
lést í Borgarspítalanum 5. apríl sl.
Halldór Guðmundsson.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
STEIIMÞÓR HELGASON,
lést í St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, þriðjudaginn 5. apríl.
Guðríður Brynjólfsdóttir,
Skúli Br. Steinþórsson, Olöf Sigurðardóttir,
Hugrún Steinþórsdóttir,
Helgi H. Steinþórsson,
Hrafnkell Steinþórsson.
+
Eiginkona mín og móðir okkar,
ÁSTRÚN JÓNSDÓTTIR
(RÚNA),
lést að kvöldi föstudagsins langa í sjúkrahúsi í Danmörku.
Útförin mun fara fram á íslandi og verður auglýst síðar.
Haukur Dór Sturluson,
Tinna Hauksdóttir, Tanja Hauksdóttir.
Bróðir okkar,
BJÖRN ÞÓRÐARSON
frá Fagrafelli,
Vestmannaeyjum,
lést 31. mars sl.
Útförin fer fram frá kapellunni í Foss-
vogi mánudaginn 11. apríl kl. 15.00.
Rut Þórðardóttir,
Þóra Þórðardóttir,
Ásta Þórðardóttir.
+
Elskulegur eiginmaður minn,
HANS PEDERSEN
iðnverkamaður
Þingvallastræti 42,
Akureyri,
sem lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fimmtudaginn
31. mars sl., verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn
8. apríl kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu
minnast hins látna, er bent á Krabbameinsfélag Akureyrar og
nágrennis.
Rósa Pedersen
og ástvinir hins iátna.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
HÓLMFRÍÐUR EINARSDÓTTIR
frá Hofi,
Mjóafirði,
sem lést 28. mars sl., verður jarðsungin frá Mjóafjarðarkirkju
laugardaginn 9. apríl kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu
minnast hinnar látnu, er bent á hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÍÐUR EINARSDÓTTIR,
Austurvegi 53,
Selfossi,
er lést í Sjúkrahúsi Suðurlands 2. apríl, verður jarðsungin frá
Selfosskirkju föstudaginn 8. apríl kl. 15.00.
Sigurður Ólafsson,
Einar Þorbjörnsson, Sigrún Erlendsdóttir,
GuðmundurSigurðsson, Bergljót Þorsteinsdóttir,
Ólafur Sigurðsson, Kristin Björnsdóttir,
Guðrún I. Sigurðardóttir, Sigurjón Þórðarson,
»< ■nitmwintniBo barnabörn og barnabarnabörn.
Immmmmmmmmmmmmmmmmmmm^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Skjöldur Eiríks-
son — Minning
Fæddur 4. apríl 1917
Dáinn 20. mars 1994
Skörð hafa verið rofin í frænd-
garð okkar systkina með stuttu
millibili. Fimmtudaginn 24. mars
sl. var Stefán Björnsson, föðurbróð-
ir okkar, kvaddur og lagður til
hinstu hvílu. Með honum er genginn
mætur maður. Hans hefur verið
minnst með þökk og virðingu.
Þremur dögum eftir lát Stefáns
20. mars sl. lést móðurbróðir okkar
Skjöldur Eiríksson á Vífilsstaða-
spítala eftir erfið veikindi. Skjöldur
var fæddur á Skjöldólfsstöðum á
Jökuidal 4. apríl 1917. Foreldrar
hans voru Eiríkur Sigfússon ættað-
ur frá Egilsstöðum á Völlum og
Ragnhildur Stefánsdóttir, fædd í
Kvertártungu á Langanesströnd.
Þau hjón hófu búskap á Skjöldólfs-
stöðum 1906. Skjöldur var yngstur
fímm systkina en auk þeirra ólst
fóstursystirin Hulda Jónsdóttir upp
með þeim systkinum. Hulda er nú
ein eftirlifandi, búsett á Akranesi.
Hin systkinin voru Sigfús, Anna,
Ingveldur og Þórdís.
Jökuldalur ber kuldalegt nafn og
eftir honum fellur mórauð og svip-
þung Jökulsá á Dal. Mun mörgum
virðast þessi dalur lítt fýsilegur til
búsetu er um hann fara. Löngum
stóð þó búskapur á Jökuldal traust-
um fótum. Bændur áttu stóra hópa
lagðprúðra sauða, lönd voru víðf-
eðm, vetrarbeit góð. Heimili voru
fjölmenn en langt var milli bæja.
í minningargrein um Ragnhildi,
móður Skjaldar, frá 1952 ritaðri
af Birni Þorkelssyni stendur m.a.:
„í búskapartíð þeirra Eiríks og
Ragnhildar á Skjöldólfsstöðum, var
það sannmæli að segja og hugsa,
heim að Skjöldólfsstöðum. Þangað
lágu leiðirnar, þangað þótti sjálf-
sagt að skreppa til gistingar." Enn-
fremur segir í sömu grein: „Það var
vandséð hvort þeirra hjóna átti
meiri þátt í að draga gesti að garði,
fórnarlund, gestrisni og greiðvikni
húsbóndans eða heimilisstjóm hús-
freyju. Þar sem aldrei virtist þurrð
í búri hvað sem á gekk og hvemig
sem á stóð og aldrei sást asi eða
vanstilling, aðeins hlýja og um-
hyggja fyrir mönnum og skepnum."
I þessu umhverfí átti Skjöldur
rætur, rætur sem voru djúpar og
sterkar og má rekja marga þætti
úr persónugerð hans til þeirra.
Skjöldur stundaði nám við Mennta-
skólann á Akureyri og varð stúdent
þaðan 1940. Hann lauk fyrrihluta-
prófí í lögfræði 1944. Kennaraprófí
1951 og rúmum 20 ámm síðar hóf
hann nám í sagnfræði við Háskóla
íslands og lauk BA-prófí í þeirri
grein. Skjöldur sneri aftur til æsku-
stöðvanna í lok síðari heimsstyijald-
arinnar og settist þar að.
Hann bjó lengst á Skjöldólfsstöð-
um þar sem hann var skólastjóri
barnaskóla Jökuldalshrepps.
Skjöldur kvæntist eftirlifandi konu
sinni Sesselju Níelsdóttur sjúkraliða
árið 1946.
Sesselja er ættuð frá Húsey í
Ilróarstungu, frændkona föður
okkar, hin mætasta kona.
Mun í huga margra er sóttu þau
Slqold og Sellu heim, áfram hafa
verið sagt heim að Skjöldólfsstöðum.
Til þeirra lágu margra leiðir og
margir nutu gestrisni þeirra. Börn
Skjaldar og Sesselju eru: Ragnhild-
ur, skólastjóri, búsett á Akureyri,
hún á tvo syni; Níels, kerfísforrit-
ari, kvæntur Elínu Ág. Ingimundar-
dóttur, þau eiga tvo syni og búa í
Reykjavík; Eiríkur bóndi, kvæntur
Huldu Hrafnkelsdóttur, þau búa á
nýbýli í landi Skjöldólfsstaða, eiga
dreng og stúlku; Stefán stjórnmála-
og mannfræðingur, kvæntur Birgit
Nyborg, þau eiga tvo syni og eru
búsett í Reykjavík.
Skjöldur var mikill hugsjónamað-
ur, vildi sjá betra líf í betri heimi.
Hann var mjög pólitískur maður og
sat ekki fastur í meðalmennsku
stjórnmálaskoðana sinna. Hann var
sannur fræðimaður, tvinnaði verk
sín ljóðrænum þáttum og kímni.
Sturlunga var honum einkar hug-
leikin. Skáldmæltur var hann sem
hann átti kyn til. Árið 1975 fluttu
þau Skjöldur og Sesselja til Reykja-
víkur og vann Skjöldur síðustu
starfsár sín á Þjóðskjalasafni ís-
lands og undi sér þar vel meðal
manna og fræða.
Með Skildi er genginn mætur
maður, maður sem fór ekki ætíð
troðnar slóðir, en lagði allt kapp á
að gera heiminn fegurri og betri.
Framundan er páskahátíðin, há-
tíð upprisu og gróanda. Framundan
er vorið. Fannirnar á Jökuldal
bráðna senn, með fossanið fljóta
þær út í Jöklu. Hvergi á landinu
er eins hlýtt á sólríkum sumardegi
og á Jökuldal, hlýtt var einnig
hjartalag Skjaldar Eiríkssonar.
Stefán Benediktsson, Merki Jök-
uldal, orti við andlátsfregn Eiríks
föður Skjaldar 1936 ljóð sem birtist
í bók hans Ljóð. Vel er við hæfí
að ljúka þessum skrifum með erindi
úr því:
Saknar byggð
brapings alda
þess er góðmálum
gladdi huga.
Lék á als oddi
þá yfir tók
gestkvæmt í garði
og gjöfull veitti.
Innilega samúð vottum við systk-
inin þér, kæra Sella, börnum ykk-
ar, tengdabörnum og barnabörnum.
Fyrir hönd okkar systkinanna,
Önnu og Þorkelsbarna,
Anna Þrúður Þorkelsdóttir.
Skjöldur Eiríksson, starfsmaður
Landsbókasafns um árabil, átti sér
allfjölbreyttan feril. Hann lauk
stúdentsprófí á Akureyri 1940,
stundaði síðan nám í íslenzkum
fræðum í tvö ár og önnur tvö í lög-
fræði og lauk þar fyrrihlutaprófi
1944. Þá hvarf hann austur á
heimaslóðir, hóf búskap á Skjöld-
ólfsstöðum á Jökuldal, og síðar í
Húsey á Hróarstungu, þar sem
hann gekk að eiga eina heimasæt-
una, Sesselju Níelsdóttur 1946.
Hann var settur skólastjóri við
heimavistarbarnaskólann á Skjöld-
ólfsstöðum 1950 og gegndi því
starfi og ýmsum félagsmálum í
sveitinni til 1974, er hann hóf á
nýjan leik nám við Háskóla íslands,
hafði raunar á skólastjóraskeiði
sínu brugðið sér suður og lokið
kennaraprófi 1951. Meðal kennara
hans þar var Ásmundur Guðmunds-
son, síðar biskup. Hef ég heyrt, að
hann hafi hvatt hann til frekara
náms og þá helzt í guðfræði, þótt
maðurinn prestlega vaxinn, enda
kominn í ættir fram af austfírzkum
prestum og skáldum, niðjum Einars
í Heydölum.
En Skjöldur hallaði sér fremur
að fræðunum íslenzku, er hann hafði
ungur hafíð nám í. Það var á átt-
unda tugnum, er ég kynntist fyrst
Skildi, hann var í hópi stúdenta að
norðan 1940, sama árgangi og
Kristjana kona mín að sunnan, og
hafði hann og fleiri skólafélagar
verið á námsárunum tíðir gestir á
heimili foreldra hennar í Hafnar-
fírði. Við komu Skjaldar að austan
til frekara náms riQuðust upp hin
fýrri kynni. Og því var það eitt sinn,
er hann leit inn til mín á Landsbóka-
safnið, að ég réð hann í hlutastarf,
er hann síðan hélt um alllangt ára-
bil. Var það mest fólgið í að sækja
bækur í bókageymslur utan safns,
jafnframt því að annast bókageymsl-
ur í safninu sjálfu, sjá um uppröðun
bóka og tilfærslur ýmislegar, er
mjög reyndi á í öllum þrengslunum.
Var Skjöldur mjög ótrauður til allra
verka og átti áður en lauk mörg
þörf handtök í safninu.
Skjöldur var góður félagi, glað-
vær og skemmtilegur, og snerust
umræður ekki sjaldan um verkofni
■þau, er hann var, að fásL við í Aá-
skólanum, en prófritgerð sína til
BA-prófs í sögu skrifaði hann um
Sturlu Sighvatsson og var mjög
heillaður af því verkefni. Skjöldur
var vel hagmæltur, enda systurson-
ur Magnúsar Stefánssonar (Arnar
Arnar) skálds og kominn sem fyrr
segir af miklu skáldakyni.
Við samstarfsfólkið í Safnahús-
inu við Hverfísgötu minnumst
Skjaldar Eiríkssonar með söknuði
og ég minnist að lokum starfa hans
með mikilli þökk og votta Sesselju
ekkju hans og börnum þeirra inni-
lega samúð.
Finnbogi Guðmundsson.
Horfinn er af heimi hollvinur
góður, horskur drengur og dáðrík-
ur, djarfur í hverju því sem til heilla
mátti horfa hag þjóðar.
Við áttum góða samleið, allt frá
1991, þar sem Skjöldur var hinn
skeleggi baráttumaður fyrir óskor-
uðu frelsi lands og lýðs, því lævi
blandið þótti honum loft orðið og
full ástæða til að efla fornar dyggð-
ir gegn útlendri óáran og útsendur-
um hennar.
Ég kynntist Skildi lítillega í
Kennaraskólanum á sinni tíð, þar
sem hann var að heyja sér réttindi
til þess starfs sem átti eftir að verða
hans um áratugaskeið og það fór
ekki framhjá neinum að þar fór
glöggur maður og gerhugull, fastur
fyrir í öllum skoðunum, en alltaf
tilbúinn að taka nýjum rökum, nýj-
um hugmyndum, sem veitt gætu
vekjandi kröftum inn í þjóðlífið.
Við áttum stundum samleið á
vettvangi skólamála eystra og þeg-
ar Skjöldur flutti þar mál sitt af
festu, rökvísi og hógværð fóru
menn að hlusta grannt, því að baki
lá greinilega mikil hugsun, þar sem
allir möguleikar voru í myndinni
og síðan valið af kunnáttu og kost-
gæfni það sem kjarnanum heyrði
til, en hisminu fleygt.
Og svo var þessi greindi atgervis-
maður allt í einu kominn í framboð
eystra, fór fyrir Samtökum fijáls-
lyndra og vinstri manna á Austur-
landi 1971 og lágum rómi en skýr-
um talaði hann til fólks, höfðaði til
eigin hugsunar þess, bað það sjálft
að glöggva málefnin og greina að
rétt og rangt. Hann talaði af glögg-
skyggni um innanlandasmál, en
ekki síður utanríkismál, og þegar
ræða hans barst að þjóðfrelsismál-
um í víðustu merkingu var orð-
kynngi hans oft mögnuð og mikil
og heit sannfæring greinilega að
baki.
Síðar gekk Skjöldur til liðs við
okkur í Alþýðubandalaginu en enn
er mér í minni vaskleg og árangurs-
rík framganga hans fyrir okkur í
kosningunum, þar sem hann eyddi
ómældum tíma í að heimsækja fólk
og tala við það, án allrar ágengni,
nema þá við þess eigin samvizku.
Fyrir þá og aðra liðsemd hans, heil-
indi og skelegga baráttu ber að
þakka nú við leiðarlok og ég veit
þar mæli ég fyrir munn margra
samheija okkar.
Á þingdögum mínum þótti mér
afar vænt um, þegar Skjöldur kom
á kvöldfundina í heimsókn og við
settumst ásamt góðu fólki inn á
kaffistofu þingsins og áttum
ánægjulega samverustund, þar sem
Skjöldur fór oft á kostum í skil-
greiningu sinni á ástandi og horf-
um, og ekki var sagnamaðurinn
síðri, sem dró upp margræðar
mannlífsmyndir svo ljóslifandi urðu
og oftar en ekki með ívafi kátbros-
legrar kímni.
Einn stærsti hluti lífsláns okkar
er að hafa mátt eiga mætagott
samferðafólk, samheija um leið.
Þar var Skjöldur vinur minn í fylk-
ing framarlega og fyrir það er þakk-
að í dag.
Æviatriðum Skjaldar hafa verið
gerð hin beztu skil af mágkonu
hans og skal ekkert af því endurtek-
ið hér. Ég sendi eftirlifandi eigin-
konu hans, börnum og aðstandend-
um öðrum vinhlýjar samúðarkveðj-
ur. Með Skildi féll í valinn fróð-
leiks- og hugsjónarmaður, sem átti
hið sanna Islendingseðli. Það var
mikils virði að eiga Skjöld Eiríksson
að í þeirri þjóðfrelsisbaráttu sem
ævarandi er og verður.
Blessuð sé hans merka minning.
Helgi Seljan.