Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Page 5
BÆR 1 GJÁSKÓGUM 1 ÞJÓRSÁRDAL
9
Staðhættir og öskulög í Gjáskógum.
Gjáskógar heita suð-austan í Stangarf jalli frá Gjánni að Hólaklifi,
sem er idjúpt gil með sandbrekku að austanverðu. Svæði þetta e,r all-
mjög sundurskorið af giljum, en á milli þeirra er hálfblásið land með
stórum grasi- og víðivöxnum torfum. Öll hlíðin veit móti suð-austri.
Inn eftir Gjáskógum liggja gamlar götur, sem fé var áður rekið
eftir á fjall og af fjalli og liggja um Hólaskóg og inn á Hreppa-
1. mynd. AfstöSiimynd frá Gjáskógum, sýnir bæ, fjós og túngarö. Uppdrállur
eftir Gísla Geslsson. — The lay-out of the farm at Gjáslcógar showing dwel-
ling, byre and part of fence surrounding homefield.
mannaafrétt; sjást göturnar liggja upp í Stangarfjall rétt fyrir norð-
an Stöng.
Innst í Gjáskógum, rétt ofan við göturnar á blásnum mel uppi
undir brekkum, hefur um nokkurn tíma séð allvel til rústa (1. mynd).
Gísli Gestsson og Jóhann Briem kveða svo á, að rústirnar megi finna
,,með því að ganga upp með læk í djúpu gili, sem fellur í Rauðá
neðan við Hólaklif. Tæpan 1 km frá ánni liggja gamlar rekstrar-
götur yfir gilið, og eru rústirnar ofan við göturnar í brekkurótunum