Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Page 19
BÆR 1 GJÁSKÓGUM 1 ÞJÓRSÁRDAL
23
í fjárhúsinu á Þórarinsstöðum. Ekki virðist sennilegt, að kindur hafi
verið hafðar þarna í skálanum, enda ekkert annað, sem til þess
bendir. Fremur verður að telja, að steinaraðir þessar standi á ein-
hvern hátt í sambandi við svefnrúm, því að ekki kemur til mála
annað en að sofið hafi verið í skálanum. Gólfskán var líka miklu
óverulegri til hliðanna en á miðju gólfi, sums staðar til hliðanna
13. rnynd. Norðurveggur skála, séSur austur eftir; franmn viS vegginn sjást
steinar í röS, reistir upp á rönd, en framan viS þá aftur helluflekkur og
gólfhola í honum miöjum. — North wall of the hall, looking east.
jafnvel engin gólfskán, og sýnir þetta, að lítið eða ekki hefur verið
þar um gengið.
Framan við steinaröðina (,,jötuna“) við norðurvegg var 100x150
sm svæði með smáum hellum í gólfinu, og í miðri þessari grjótdreif
var djúp hola eins og stoðarhola (13. mynd). Ekki verður þetta fyrir-
brigði skýrt að svo stöddu.
Eins og þegar er sagt, var austurendi skála allmjög skaddaður af
vatnsrennsli, og á þetta þó einkum við um suðurvegginn. Þessi rösk-