Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Page 24
28
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
hafa verið steinar í röð, sennilega undirlag undir afturbrún bekks-
ins og ef til vill stoðir, og má bera þetta saman við stofuna á Þórar-
insstöðum á Hrunamannaafrétti, en allmjög voru steinar þessir úr
lagi færðir, þegar rannsóknin var gerð. Breidd bekkjanna er 50—75
sm, norðurbekkur hærri en hinn, um 50 sm. Bekkirnir hafa eflaust
18. mijml. Slofa, séS fram (austur) eflir. — The living-room, looking oul
(easl); note the silting-benches on botli sides.
verið úr timbri, enda mikið um maukfúnar viðarleifar víða á stofu-
gólfi eins og annars staðar í þessum rústum.
Hvorugur bekkurinn nær alveg inn aS gafli. Innan við norður-
bekkinn er eins og þró, að framan afmörkuð með mjög langri og
þykkri hellu, sem fremur hvílir á gólfinu en er grafin niður í það,
en við enda hennar er stór steinn rekinn á endann niður í gólfið (19.
mynd). Einhver salli eins og torf eða þess háttar var í botni þessarar
þróar, og mun hún að líkindum hafa verið undir eldivið ætluð. And-
spænis þessari þró, innan við suðurbekkinn, eru hlóðir, fóðraðar á