Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 39
BÆR I GJÁSKÓGUM I ÞJÓRSÁRDAL
43
Sýnishorn af gráu efni úr sá í búri (Þjms. 15207).
Sýnishorn af stærstu vikurmolunum í hvíta laginu ofan á bæjar-
tóftunum (Þjms. 15209).
Bein úr húsdýrum, þar á meðal ein tönn úr hesti, ennisbein af
fullorðnum hrút með slónum (fannst undir hvíta laginu í stofu),
kindatennur, hornstikill af nautgrip, kjúkur úr nautgripafótum o. fl.
smávegis. (Sumt í Þjms. 15208 og 15210, en sumt kom 1. 10. 1960,
þar á meðal nautakjúkurnar, sem fundust á gólfi undir stofugólfi,
sumar niðri í stoðarholu við vesturstafn.)
Niðurlagsorð.
Ef bærinn í Stöng hefur eyðzt í Heklugosinu 1104 og Gjáskóga-
bærinn farið í eyði nokkrum áratugum eða jafnvel 50 árum fyrr, eins
og afstaða öskulaga bendir til, hefur eyðing þessa bæjar orðið um
eða rétt eftir miðja 11. öld. Þunnleiki gólfskána og fæð forngripa
benda til þess, að bærinn hafi ekki verið lengi í byggð, jafnvel ekki
lengur en 10 ár, en varla lengur e,n í hæsta lagi 25 ár. Hér er vitan-
lega gizkað á, en að öllu athuguðu verður að telja líklegt, að bærinn
sé byggður á öðrum fjórðungi 11. aldar. Hann kann þá að vera eitt-
hvað eldri en Stöng, en hitt getur vel verið, að bæir þessir séu byggðir
um líkt leyti, þótt annar færi í eyði fyrr en hinn og af öðrum ástæð-
um. Víst er, að Gjáskógabærinn er af nákvæmlega sömu megingerð
og bærinn í Stöng og nokkrir aðrir Þjórsárdalsbæir, svo og bærinn á
Þórarinsstöðum á Hrunamannaafrétti. Hefur þessi bæjargerð stund-
um á seinni árum verið nefnd Þjórsárdalsgerð. Skáli og stofa byggð
hvort við annars enda, útidyr framan á skálavegg, búr að baki og
þvert á aðalhúsin, stundum einnig kamar, svo sem í Stöng og nú
einnig í Gjáskógum. En það væri að bera í bakkafullan lækinn að
fjölyrða hér um þetta þróunarstig íslenzkra bæja, þar sem það hef-
ur oft verið gert á undanförnum árum, síðast í ritgerð Gísla Gests-
sonar um bæinn í Gröf í öræfum hér í Árbók 1959. Gjáskóga-
bærinn stendur einmitt á þessu stigi, um margt líkur Stöng, t. d.
skáli, búr og kamar, þótt allt sé hér smærra í sniðum, en stofan er
líkari stofunni á Þórarinsstöðum en í Stöng, hlóðir innst í horni fyrir
bekksenda, en ekkert eldstæði á miðju gólfi.
Þess hefur verið getið til hér, að upphaflega hafi rauðablásturs-
menn hafzt við í Gjáskógum, en síðan hafi fólk setzt þar að, hafið
búskap og byggt bæ. Eru mörg dæmi þess bæði fyrr og síðar, að menn