Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Page 55

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Page 55
SUMTAG OG SUMTAGSSNÆLDA 59 kofanum. Á þessu gekk, þar til nóg var komið á teininn, þá var smokkað fram af honum. Þar var kominn allvænn hnykill. Þá var byrjað á nýjan leik og svo koll af kolli. Ég æfðist brátt í þessu. Ekki hef ég síðan séð þá sveif eða aðra henni líka, en hún hefur fengið verkefni á Steinsmýri, því þar voru meljarðir". Álftaver er næsta byggð fyrir vestan Meðalland, og deilir Kúða- fljótþar löndum. Mér varð að ráði að leita þaðan fregna af sumtags- vinnu, og óvæntur fróðleikur kom í leitirnar. Hannes Hjartarson bóndi á Herjólfsstöðum í Álftaveri þekkir vel til allra vinnubragða við meltekju, svo sem muna má frá kvikmynd Skaftfellingafélags- ins í Reykjavík: „1 jöklanna skjóli“. Hannes brást vel við bón minni um lýsingu á sumtagsvinnu. Fer hún hér á eftir skv. sendibréfi dags. 23. jan. 1961. „Þetta áhald, sem þú varst að tala um, var hér kallað sumtaks- spýta eða sumtaksteinn3) og var notuð til þess að vinna saumgarn úr sumtagi, til þess að sauma með meljur og dýnur, þ. e. reiðinga, og einnig notað, ef búin voru til reipi eða gjarðir úr sumtagi. Sum- tagið var vandlega greitt og þar næst búinn til úr því — maður gæti sagt — lopi, nákvæmlega eins og ullarlopi er nú. Sá, sem að því vann, hélt því áfram, þar til komin var talsverð hrúga á gólfið, og þegar nóg þótti komið af því, var spýtan tekin og byrjað að snúa upp á. Endinn á lopanum var festur um mjórri enda spýtunnar og spýtunni snúið með hægri hendi, en sumtaginu haldið með vinstri hendi. Á meðan spýtunni er snúið, er sumtagið látið fara fyrir enda spýtunn- ar, þannig, að snúningurinn komi á bandið, en bandið vef jist ekki upp á spýtuna. Þessu er haldið áfram, þar til nóg er snúið á bandið. Þá er það vafið upp á spýtuna og svo byrjað með næstu færu og áfram koll af kolli, þar til komið er hæfilega mikið á spýtuna. Þá er spýt- unni kippt úr rúllunni en rúllan látin óhreyfð að öðru. Sumtagið varð að spinna heldur fínt og jafnt, því það var haft tvöfalt í saumgarn í meljur. Það var samþættað og snúið á það með sömu aðferð og að framan greinir. Til þess að sauma meljur var höfð sérstök þar til gerð nál, kölluð meljunál, hefur hún verið hér tií fram að þessu, og er mjög auðvelt að smíða hana. Ég læt fylgja svolítið riss af spýtunni og eins af spýtu með sumtagsrúllu til frek- ari skýringar". Lýsing Hannesar á sumtagsspuna kom mér að sönnu ekki með 3) Sumtaksteinn var áþekkur hala á hrosshárssnældu að stærð og lögun.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.