Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Side 90
94
ÁRBÓK FORNLEIKAFÉLAGSIN3
ar við rúðustrikaðan ferhyrning í vinstra horni að neðan og skríður
í sérkennilegum, háum bylgjum. Úr hverri bylgju sprettur grein,
sem sker aðalstöngulinn og endar á fjórflipa blaði inni í bylgju.
Breidd stönglanna er um 11/2 sm. Höft liggja þvert yfir greinamót-
in, sem eru auðkennd með allstórum, dálítið íbjúgum skipaskurðum.
Blaðfliparnir e,ru yfirleitt skreyttir með innri útlínum, þver- og
langböndum, þríhyrndum og bátlaga stungum. Þeir eru ýmist odd-
hvassir eða tungumyndaðir (laga sig að reitnum, sem þeir fylla út
í, og er hvergi eyða nema þar sem hliðargreinin gengur út frá
aðalstofninum og myndar boga áður en hún sker hann.) Teinung-
urinn endar á blaðskúf með svipuðum blöðiun og eru í bylgjunum. —
Frágangur snyrtilegur. Skemmtileg heildaráferð.
4. 1823.
5. Höfðaleturslínurnar:
uertu | if ir | og | altum | kring | med | eilif ri | blesanþini | sitie | gud
sjeinglar|saman|i|hring|sængini|ifir |mini|iöniönssona|anno 18;2i3.
6. Safnskýrslan: Rauðimelur, íslandi. Keypt á 3 kr. af Arthur
Feddersen fiskveiðaráðunaut.
8. Safnskýrslan: Teikning eftir Rondahl í Tidsskr. f. Kunst-
industri 1887 (mynd 13). Mynd einnig í : Tidsskr. f. Industri 1903,
bls. 147 (mynd 16).
1. O. í86. (X 156.) Rúmfjöl úr furu. L. 88.7. Br. 17.5. þ. um 1.2.
2. Dálítið sprungin og maðksmogin. Slitin á bakhlið (ef til vill
notuð til að skera á?) Brúnbæsuð á framhlið.
3. Á bakhlið er áletrun í þremur línum, gerð úr ristum bókstöf-
um (líkjast gotneskum prentstöfum). Á framhlið er upphleypt jurta-
skreyti, fáeinir mm á hæð. Stendur jurt í miðju. Hún hefur grann-
an, sléttan legg, sem sprettur frá þrískiptu blaði við grunninn, skýt-
ur út nokkrum löngum, oddhvössum blaðflipum til beggja handa,
eftir samhverfri tilhögun, og endar efst á stóru „blómi“, með mörg-
um tungumynduðum krónublöðum. Á þeim eru ristar æðar. Út frá
leggnum ganga einnig breiðir vafningar, sinn hvorum megin. Enda
greinarnar á blómum og blaðskúfum. Blómin því sem næst bjöllu-
laga. Blaðskúfarpir myndaðir úr oddhvössum og tungumynduðum
blaðflipum. Stöngulbreiddin er mjög mismunandi, er allt að 2i/£ sm
u. þ. b., og hafa stönglarnir innri útlínur. Höft liggja þvert yfir
þá, þar sem þeir skiptast í greinar og skjóta blöðum. Á einum stað
gengur mjór stöngull út úr krikanum milli tveggja breiðra stöngla