Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Síða 91
ÍSLENZKUR TRÉSKURÐUR 1 ERLENDUM SÖFNUM
95
og skiptist í tvær greinar, sem hvor um sig hefur rista miðlínu. Önn-
ur endar á sporbaugslaga blaði, sem séð er frá hlið (tunguröð eftir
miðju), hin gengur gegnum glufu á einum hinna stærri stöngla og
endar á blaði með „uggum“. Fleiri blöð eru séð frá hlið. Önnur eru
skreytt ýmsum öðrum tegundum af ristskurði. — Þokkalega unnið.
4. Hvorki dags. né ártal.
5. Firer þin dauda og dreira foss drottin min Jesu godi haf þu
og vernda æ/tid oss af þvo med þinu Blodi sinda Brot hætt so Böl sie
Bætt Biod þinum eingla/skara um hueria nott so oss sie rott ævenlega
Bevara.
(Áletrunin óljós. Lesið úr henni með hliðsjón af miða á bakhlið.
Ber hann númerið 60. Eins lesið í safnskýrslunni),
6. Brúará, fslandi. Keypt á 1 kr.
7. 18. öld.
0. 0. U87 a. (X 195). Rúmfjöl úr furu. L. 110.1. Br. 18. Þ. um 1.
2. Fáeinar sprungur. Smáflísar dottnar úr. Brúnbæsuð á fram-
hlið.
3. Strikheflun meðfram efri og neðri brún. En að innan upp-
hleypt skreyti allt að 5 mm á hæð u. þ. b. f miðju er stórt spegil-
fangamark. Gætu stafirnir í því verið SCO. Vafteinungur liggur
til beggja handa sem framhald af stafnum S. Ekki samhverfur. Á
vinstri hönd er munstrið fremur skýrt og með greinilegum bylgj-
um, til hægri virðist það flóknara. Margar greinar eru á stofninum
og margir skúfar úr löngum blaðflipum, ýmist oddhvössum eða
tungumynduðum. Bæði bókstafir og stönglar eru hæstir á miðlínu og
halla til beggja hliða út frá henni. Útlínur eru engar. Hvössu flip-
arnir eru oft með samskonar hallandi hliðum, en á þeim tungu-
mynduðu er aðeins einn skáhallur flötur. Eru þeir flipar heilir, en
oddhvössu fliparnir hafa iðulega ristar æðar og skorur. Einnig sjást
perluraðir, og litlar, upphleyptar rósettur (á grunni, sem grafinn
er niður í blaðið). Á stórum kólfi, sem skýtur út fáeinum stönglum,
liggur haft með perluröð og auk þess krákustígur. — Ágætlega unnið.
4. Hvorki dagsetning né ártal.
5. Stafirnir í spegilmerkinu gætu verið SCO (í safnskýrslunni
er þeirra aðeins getið sem „samhverfs fléttuskrauts").
6. Safnskýrslan: „Skógarströnd", íslandi. Keypt á 2 kr.
7. Safnskýrslan: 18. öld.