Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 99
ÍSLENZKUR TRÉSKURÐUR 1 ERLENDUM SÖFNUM
103
Rist: HIER|SOOMA|BE
RED|VMM|ALLD
ER|ANNO|1788
6. Safnskýrslan: Frá Hjarðarholti, Islandi.
7. Safnskýrslan:---------Gerð hafa verið lítil, kringlótt göt
gegnum umgjörðina til að festa brugðna setu. 1 efri brún bakfjalar
hennar eru þröngar, ílangar holur,-----hafa flatir, skrautsniðnir
rimlar auðsjáanlega gengið niður í þær, en þeir eru með öllu horfnir.
Voru þeir ekki tappaðir í bakslána, sem hefur alslétta neðri brún,
heldur í láréttan, sívalan rimil, rétt undir bakslánni. Hann hefur
brotnað frá, en endar hans sjást ennþá, tappaðir í afturstuðlana.
1. I 350. Stóll úr beyki, eik og furu. Fjórir ferstrendir fætur,
sem hinar ýmsu þverfjalir eru tappaðar í. Bakfæturnir eru fram-
lengdir upp og svigna lítið eitt á efsta kaflanum. Framfæturnir ná
upp að efri brún bríkarinnar báðum megin. Fjórir þverrimlar milli
fóta. Göt á setuumgjörðinni til að festa setunni, en hana vantar.
Fremur breiðir, skrautsniðnir og gagnskornir rimlar milli setuum-
gjörðar og bríka á báðar hliðar og milli umgjörðar og þverrimils í
baki. I bakinu eru auk þess þrír gildir rimlar. Ásamt bakstuðlunum
eru þeir tappaðir í bakslána. Breidd (um bakslá) 55.1. Hæð 78.9.
Dýpt 51.5.
2. Setu vantar. Einn fótarimill nýr og ef til vill tveir af efri
rimlum í baki. Seinni viðbót neðan á öllum fótum. Dálítið maðk-
smoginn. Brúnbæsaður.
3. Útskurður einungis framan á bakslá og miðrimli í baki. Upp-
hleypt teinungaskraut, fáeinir mm á hæð. Hin eiginlega rót teinungs-
ins er neðst á rimlinum, þar sem stöngull sprettur af öðrum stöngli
bogadregnum (eða bandi). Teinungsstofninn gengur í bylgjum upp
á við. Tveir stönglar liggja frá efstu bylgjunni í rimlinum og
mynda hjarta á miðri bakslánni. Frá því teygjast samhverfir vafn-
ingar til beggja handa. Kringlóttir fletir, stönglar og blöð, sums
staðar saman í stórum skúfum, fylla hverja bylgju. Fjöldi greina
og blaða sker aðalstöngulinn og gengur út að brúnum, en þar er
þyrping sívafinna smágreina. Hvergi auður blettur. Stönglarnir
eru flatir, um 1 sm á br., hafa innri útlínur og mörg þverbönd. Odd-
hvöss og sveigð blöð, mörg með ristri miðtaug, og taugar frá henni
markaðar með lítilli skoru fyrir innan ytri útlínuna. Skoruskrautið
í blöðunum er annars dálítið breytilegt. Hinir stóru fyllingafle.tir