Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 111
ÍSLENZKUR TRÉSKURÐUR í ERLENDUM SÖFNUM
115
Böndin dálítið ávöl að ofan. Gaflar kistilsins: Á öðrum er hjörtur
í stökki, einstaklega lifandi og eðlilegur, og auk þess jurtif; á hin-
um er Ijón með skrýtinn, hnöttóttan haus, horfir fram. Vinstra
megin við það situr í tré fugl með útbreidda vængi. Til hægri og
ofan við bakið á Ijóninu er skipaskurðarstjarna, sexblaðarós, og að
auki ganga blöð út frá miðju og milli armanna, verða þau tólf alls,
inni í hring. Útskorið skreyti er einnig á smálokinu neðan á kistil-
lokinu. Sex stilkar liggja í allar áttir út frá miðju og enda á skraut-
henglum eins og þeim, sem eru utan á lokinu. Lágt upphleypt. —
Þokkalega gert. Málningin verkar dálítið truflandi. (Rákir þær, sem
liggja eftir grunninum milli fléttuðu kaflanna á hinum lóðréttu hlið-
um loksins eru í rauninni bönd, sem tengja hina einstöku hnúta, en
þær eru ekki málaðar eins og böndin.)
4. Hvorki dagsetning né ártal.
5. Áletrun engin.
6. Safnskýrslan: Keypt á sínum tíma til Oldnordisk Museum á
2 krónur (1858).
7. Safnskýrslan: Um 1800.
1. 0. 31U. (X 285). Kistill úr furu. Trénegldur. Stálvírshjörur.
Ummerki eftir lás. Þríhyrnt koparlauf utan um skráargatið. Okar
settir undir lokið og á skammhliðunum ná þeir út fyrir það báðum
megin. L. 26. Br. 20. H. 14.
2. Einar hjörur lausar. Lás vantar. Einn okanna í lokinu vantar.
Brúnbæsaður.
3. Útskurður á öllum hliðum og ofan á loki. Tvær höfðaleturs-
línur á hverri hlið. Lágt upphleypt skreyti á lokinu. I miðjunni stór
hringur (ávalur að ofan). í honum þrír bókstafir, ihs, myndaðir úr
stönglum, sem líkjast böndum. Skreyttir með innri útlínum, höftum,
smágerðum skipaskurði og rúðustrikun. Auk þess prýða þá blaðflipar,
sem hvelft er upp úr. Strikheflun meðfram báðum langhliðum. Við
skammhliðarnar er á báðum stöðum bekkur með einföldum rósett-
um, lágt upphleyptum (eiginlega eru þær ferhyrningar með skarð
í allar hliðar). — Þokkalegur frágangur.
4. Hvorki dagsetning né ártal.
5. halla|ion a [kistil giofefjf æjfatæ
sdotter in|litla usþierf kur|þin
6. Á miða í kistlinum stendur: Kassi með áletrun á íslenzku,
sem vantar í. Merkingin er þessi: Halla Jonsdatter ejer Kassen.