Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Side 115
ISLENZKUR TRÉSKURÐUR 1 ERLENDUM SÖFNUM
119
aðeins á botni. Mest útflúr á þeirri langhlið, sem hefur ummerki
eftir hjarir. Á stönglunum eru ýmist innri útlínur eða rist miðlína.
Sumir undningarnir enda á litlum krók, aðrir á margflipa blöðum.
Rúðustrikun á hluta af botninum. Á hinni langhliðinni er rist mið-
lína í stönglunum. Einnig hér eru flipuð blöð. Á annarri skammhlið
og botninum eru stönglarnir ávalir að ofan, án skrauts. Á botninum
enda allir undningar á krók. Á skammhliðunum er einstakt þríflipa
blað (myndað úr litlum oddi, stórum, strikuðum kólfi og litlum
krók). Og til beggja handa er lítill, lóðréttur vafteinungur, mjög
einfaldur að gerð. —Allsnyrtilega unnið. (Gæti kistillinn verið nokk-
uð gamall.)
4. Hvorki dagsetning né ártal.
5. Áletrun engin.
6. Safnskýrslan: 1 byggingardeildinni hjá Lyngby síðan vorið
1906 (inngangsskálinn ,,ísland“).
1. 0. 3U3. (609—1930). Kistill úr furu. Munu hliðarnar vera
geirnegldar. Botni, listum og skrautverki er fest með trénöglum.
Umgjörðarlistar ofan á lokinu, brúnalistar meðfram þremur hliðum
þess. Listar einnig meðfram neðri brúnum kistilsins á þrjá vegu.
Járnhjarir. Handraði. L. 39.5. Br. 22.7. H. 19.5.
2. Fáeinar flísar hafa dottið úr kistlinum. Hann er málaður í
ýmsum litum. Botn svartur, listar rauðir og grænir. Skreyti og
myndir í svörtu, brúnu, okkur, rauðu, grænu, hvítu og gráu. Máln-
ingin dálítið slitin.
3. 1 grennri ramma innar á lokinu er skorið út blómaker í
miðju. Upp og út frá honum sprettur fjöldi blaða og stöngla. Lóð-
rétti stöngullinn ber bjöllulaga blóm. Tveir fuglar sitja hvor á móti
öðrum í laufinu, á samhverfan hátt. Á skammhliðunum er einnig
áfest, samhverft jurtaskreyti. Til vinstri á framhliðinni er maður
á hestbaki (lítið eitt maðksmoginn). Síðhærður, með trjónuhatt, í
hnésíðum frakka og í reiðstígvélum. Blaðskraut. Til hægri er maður
og kona umlukt blaðskrauti. Maðurinn eins klæddur og hinn, en
hattlaus. Hann heldur á staupi. Konan bak við hann er í íslenzkum
búningi með krókfald. Hæð hins upphleypta skrautverks allt að 1
sm eða liðlega það. Að skreytisreitunum á hliðum kistilsins liggja
flatir listar með tungusniðinni innri útlínu. — Skammlaus frágang-
ur. (Greinilega eftir Hallgrím Jónsson bíldhöggvara).
4. Hvorki dagsetning né ártal.