Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 118
122
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
2. Hjarirnar brotnar. Krókinn vantar. Lítið eitt sprunginn.
Brúnbæsaður (og líklega glærlakkaður).
3. Útskurður á lokinu og öllum hliðunum fjórum. Upphleypt
verkan. Skurðdýpt allt að 5 mm. Á lokinu er hringur úr mjög ein-
földum kaðalsnúningi. Er í honum stórt A, skreytt blöðum, hnúðum
og kílskurðarröðum. Utan hringsins e.ru nokkrir stönglar með upp-
undningum. Hinir áfestu listar eru með tennta neðri brún. Langhlið-
arnar eru hér um bil eins. Samhverf munstur úr jurtahlutum. Stöngl-
arnir liðlega 1 sm á br., ávalir að ofan. Byrja þeir við eins konar
lykkju neðst á miðri hlið. Teygjast upp frá henni tveir samhliða
stönglar til hvorrar handar og vefjast upp í endana. Stilkur með
lítilli pálmettu sprettur frá þeim á framhliðinni og stefnir að efri
hornum reitsins. Efstu aðalstönglar prýddir kílskurðarröðum. Lóð-
réttar perluraðir yzt á öllum hliðum. Langhliðin að aftan er nokkuð
einfaldari. Skammhliðarnar líkjast einnig hvor annarri. Mynda
stönglarnir hjarta. Þeir eru flatir ofan, með innri útlínu, misbreiðir,
en aldrei breiðari en 1 sm. í neðri hornum er stór kólfur og á honum
þverband með perluröð. — Skorið vej og af kunnáttu, en verkið frem-
ur gróft. (Fram- og bakhlið mjög líkar og á smákistli á Þjóðminja-
safni íslands, Þjms. 3144, og öðrum stærri, nr. 59, 228 í Nordiska
Museet, Stokkhólmi. Munstrið á lokinu er einnig hér um bil eins.)
4. Á botninum er rist Ano 1840 (auk þess óskiljanlegt tákn).
5. Áðurnefnt A.
6. Safnskýrslan: Staðarhraun, íslandi.
1. 0. 35U. (X 177). Kistill úr furu. Sexhyrnd grunnmynd. Er
kistillinn sjálfur ferhyrndur, en út frá þessum miðhluta ganga tvær
hliðar við hvorn gafl og mynda hvasst horn. Þær eru negldar við
miðhlutann, en hornin geirnegld. Hinn sexhyrndi botn festur með
tré- og járnnöglum. Messingarhjarir. Lykkja og krókur úr messing.
í miðhlutanum er aukabotn, ofar. Er undir honum skúffa, sem opn-
ast frá framhlið, hefur snærislykkju. L. 32.3. Br. 15.1. H. 10.1.
2. Maðksmoginn. Brúnbæsaður. (Fáeinar ljósar málningarrákir
á bakhlið.)
3. Utskurður á öllum hliðum og ofan á loki. Alls staðar rist
jurtaskreyti, og myndast allir stönglar af einfaldri, ristri línu. Undn-
ingar með blöðum í enda, einstökum eða tengdum. Öll smáblöðin hæst
í miðju. Sneidd frá miðju niður að báðum brúnum. Sum stöku blöð-
in hafa heila rönd öðrum megin, en djúpt skarð í röndina hinum