Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 120
124
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
tvær gerðir af höfðaletri, á hinni tveir upphleyptir bókstafir, líkj-
ast mest stórum latneskum skrifstöfum með jurtahlutum. Á miðju
loki eru þrír upphleyptir bókstafir, sem líkjast höfðaletri. Yfir
þeim og undir eru láréttar rákir. Á hvora hlið er S-laga skreyti með
hnúðum og blaðaoddum. — Fremur stirðlega unnið.
4. Hvorki dagsetning né ártal.
5. GG dA egs (Safnskýrslan: ags.)
6. Safnskýrslan: Brúará, Islandi.
7. Safnskýrslan: Um 1800, keyptur á kr. 0.50.
1. 0. 360. (X 229). Kistill úr furu. Trénegldur. Járnhjarir. Leif-
ar af járnlæsingu. Ferstrent skráarlauf úr messing. Okar undir
lokbrúnunum, þar sem þær ná fram yfir skammhliðarnar. L. 35.5.
Br. 24.5. H. um 23.
2. Brestir, sumir stórir. Gliðnar dálítið við samskeytin. Göt
eftir læsinguna. Brúnbæsaður.
3. Útskurður á öllum hliðunum fjórum, ofan á lokinu og á okun-
um. Báðar skammhliðar þaktar bandfléttumunstri (hornalínuvefur).
Á báðum langhliðum er höfðaleturslína meðfram efri og neðri brún.
Upphleypt jurtaskreyti á miðreit langhliðar og á lokinu. Skurðar-
dýpt um 5—6 mm. Alls staðar eins og S á hlið. Einkennileg niður-
röðun með tvöföldum stönglum. Á lokinu e.r S-liður endurtekinn í
hverjum aðalundningi. Annars blöð með fleiri flipum, sem hvelft
er upp úr eða strikaðir eru rúðum, og smástilkar, sem enda á fleir-
flipa blöðum úti við hornin. Greina má óljóst innri útlínur á stöngl-
unum. Eru þeir 6—7 mm breiðir á kistilhliðunum, en allt að 1 1,4
sm á br. á loki. Boglínur og tungur á neðri brún okanna, sem annars
eru skreyttir með naglskurði, skipaskurði og rúðustrikun. — Dálítið
grófur skurður, en handbragðið öruggt og kunnáttusamlegt (að vísu
fremur klunnalegt á lokinu).
4. Hvorki dagsetning né ártal.
5. gudrun|hösk r|a|þessa|kis
ölldar|dotte tu|med|riettu
6. Safnskýrslan: Reykjavík, Islandi.
1. O. 361. Kistill úr furu. Trénegldur. Ummerki eftir hjarir, læs-
ingu, skráargat og handraða. Okar undir lokbrúnunum, þar sem þær
ná fram yfir skammhliðarnar. L. 32. Br. 17. H. 15.8.