Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Síða 145
RITST J ÓRAÞÆTTIR
149
palli, er gengur þvert yfir steininn. Beggja vegna eru súlur í kor-
inþiskum stíl og bogi yfir, er hvílir á þeim, en höfuð og háls mynd-
arinnar er í boganum; en uppi yfir súlunum eru til beggja handa
skjaldarmerki, tveir hangandi skildir hvorum megin. Á hinum ytri
hægra megin („heraldiskt“ séð) er skjaldarmerki Hvítanna (Hvide,
ætt Marsk Stigs), stjarna með sjö geislum; á hinum innri sömu meg-
in, sem er klofinn, er turn eða múrtindar vinstra megin, máske
merki Mur-Kaas-ættar. Á hinum innri vinstra megin er merki Torne-
krands-ættarinnar (móður Páls), stigi á ská með sjö rimum, og á
hinum ytri eru tveir fletir, hvor tveggja sléttur nú, en skjöldurinn
skiptist sýnilega þversum; máske skjaldarmerki Bild, Strangesen
eða þeirrar ættar.“
2. Grafletur Jónasar bónda Tómassonar í Hvassafelli.
I torfkirkjunni í Saurbæ í Eyjafirði er grafletur Jónasar bónda
Tómassonar í Hvassafelli, móðurafa Jónasar Hallgrímssonar skálds.
Grafletrið er úr Miklagarðskirkju, en hefur verið flutt í Saurbæj-
arkirkju, þegar kirkja var af lögð í Miklagarði. Það er skrifað á
pappír, blekið orðið mjög fölt á köflum. Stærðin innan ramma er
29x29 sm, en ramminn er mjór, strikaður, óvandaður trérammi,
svartmálaður. (Eftir að gert var við kirkjuna 1960, var grafskriftin
sett í nýjan gylltan ramma). Sjálft grafletrið er innan í nokkrum
hringum, sem dregnir eru með hringfara og nokkuð skreyttir, en
á þeim breiðasta er leturband, sem nær allt umhverfis. Stafirnir
eru flúraðir upphafsstafir og letrið á þessa lund: SÆLER ERU
FRAMLIDNER SEM I DROTTNI DEIA. Frumstæðilega gert. Vís-
um grafletursins er raðað í kross innan í hringnum, og eru þær á
þessa leið:
Hel er allrar Veralldar Vegur!
var hah því og sameginlegur,
Jafnt med aullu jardnesku Kyni,
JONASE THOMASAR SYNI.
Lengi þiádur, lúin af Elli
Líkamin á Hvassa- dó -felli,
Þar med dygd var af Haunum ádur
Akur margra Gódverka sádur.