Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1968, Side 48
52
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSÍNS
alin 62,7 sm löng, henni er skipt með þverstriki með X merki á í 2 fet 1. 31,0 sm og
31,7 sm. Fetunum er skipt 1 kvartil með þverstrikum og 2 þríhyrningum hjá, þau
eru að 1. 15,2 sm—15,9 sm. Tveimur fremri kvartilunum er skipt í þumlunga með
einföldum þverstrikum, 12 í fetinu, þeir eru að 1. 2,4 sm — 3,0 sm. Úr eigu Arnlaugar
Tómasdóttur i Vallnatúni undir Eyjafjöllum, en er úr Holtahreppi.
Sk. 567. Tommustokkur með venjulegu lagi, einum hjörum úr látúni á hlið, á
báðum endum hafa verið látúnshlifar, en önnur er nú glötuð. L. 62,95 sm (63,0
sm áður), br. 1,45 sm og þ. 0,7 sm. Stokknum er skipt á báðum hliðum i 24 þumlunga
með einföldum þverstrikum og standa tölurnar 1—24 á þumlungabilunum, nema
tölurnar 11, 12 og 13 hafa lent undir spönginni sem hjarirnar eru hluti af. öllum
þumlungunum er skipt í % þumlunga og % þumlunga með mislöngum deilistrik-
um. Þumlungarnir eru að 1. 2,57 sm — 2,70 sm, % þumlungarnir 1,25 sm —1,37 sm
og Vi þumlungarnir 0,6 sm — 0,7 sm. Frá Miðskála undir Eyjafjöllum.
Sk. 966. Rekakvarði Snorra Grímssonar i Skipagerði í Landeyjum, úr eik, fer-
strendur, flatur. Handfang hefir áður verið á honum, en nú er aðeins eftir lítili
tangi. L. 64,6 sm, br. 2,6 sm, þ. 1,0 sm. Á kvarða þennan er mörkuð alin, 1. 63,1 sm,
en henni er skipt í hálfkvartil með skorum, sem ná þvert yfir aðra hlið kvarðans og
síðan er honum öllum skipt í 24 þumlunga á sömu hlið með skorum, sem ná tæp-
lega inn á miðjan kvarða. Tölurnar 1 — 24 eru skornar ofan við þumlungabilin.
Lengd hálfkvartilanna er 7,75 sm — 8,05 sm (efsta kvartili er ekki skipt í tvennt,
það kvartil er að 1. 15,7 sm), 1. þumlunganna er 2,5 sm — 2,7 sm. Kvarða þennan
notaði Snorri til að mæla rekavið, sem hann seldi á fjörunni.
Sk. 1780. Kvarði úr furu, ferstrendur, telgt á hann handfang og í efri enda þess er
rekin járnlykkja 1,2 sm i þvm., lengd kvarðans án lykkju 74,6 sm, fremst er br.
og þ. 1,2 sm og efst er br. 2,15 sm, þ. 1,9 sm, handíang um miðju br. 2,2 sm, þ. 2,0 sm.
Á aðra hlið kvarðans er mörkuð alin með 3 látúnsnöglum samhliða 1,3 sm framan
við handfangsstallinn, 62,72 sm að lengd, henni er skipt I 4 kvartil með sams
konar látúnsnöglum, 1. 15,55 sm —15,80 sm, þeim er aftur skipt i hálfkvartil, 1. 7,60
sm — 7,95 sm. Á gagnstæða hlið er mörkuð alin á svipaðan hátt, en í stað látúns-
naglanna eru hér skorur, sem ná þó ekki þvert yfir kvarðann, en eru í laginu eins og
stórt i: I, á kvartilamótum eru teknir úr þríhyrningar sitt hvorum megin við
strikið svo að fram koma eins konar krossar. Lengd álnarinnar er 62,7 sm, kvartil-
anna 15,5 sm —15,7 sm og hálfkvartila 7,7 sm — 7,9 sm. Úr eigu frú Ingunnar Hall-
dórsdóttur á Velli í Hvolhreppi.
Sk. 1807. Kvarði úr mahogný og handfangi úr ljósari laufviði. Handfangið séð
frá hlið er eins og laufagrein, en nokkuð er brotið af aftari enda, en þó hefir kvarð-
inn ekki stytzt við það. Mælikvarðinn sjálfur er næstum sem sporbaugur í þverskurð
og þannig skorinn, sem á mjóu enda sporbaugsins væru festir tveir grannir borðar,
koma þar fram tveir sléttir fletir og á þá eru merktar álnir og kvartil með einföldum
látúnsnöglum. Á aðra hlið kvarðans er skorið upp við handfangið rneð stórum upp-
hafsskrifstöfum ANNO og beint á móti með latínuleturs upphafsstöfum MABRI (M=
1000, A = 500, B = 300, R = 80, 1 = 1, 1881). Álnirnar eru mislangar, sú lengri nær
upp á sjálft handfangið og þar endar hún við látúnsnagla og er að I. 62,95 sm.
Henni er skipt í kvartil 1. 15,65 sm —15,80 sm. Á gagnstæðri brún er enn merkt
alin á sama hátt, 1. 58,95 sm. Henni er skipt í kvartil, 1. 14,65 —14,95 sm. Filippus
Bjarnason á Efri-Hömrum hefir smiðað þennan kvarða.
Sk. 1919. Kvarði úr eik, sívalur án handfangs. Þvm. 1,3 sm —1,6 sm, 1. 62,25 sm.
Með þremur samhliða látúnsnöglum er kvarða þessum skipt í kvartil, 1. 15,3 sm—15,8
sm og er kvartilið við gildari enda 0,4 sm styttra en næsta kvartil. Þá er kvarðan-