Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1988, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1988.
Fréttir
Birgir isteifur Gunnarsson menntamálaráöherra tók á móti konungi og forseta við komuna til Reykholts.
DV-mynd Brynjar Gauti.
. mm t
Konungur
fer í Viðey
og veisla í Þingholti
Ólafur fimmti Noregskonungur
heldur í dag í Ámasafn þar sem hann
htur á forn handrit og nýtur til þess
leiðsagnar dr. Ólafs Halldórssonar.
Frá Árnasafni verður haldið yfir göt-
una í Norræna húsið þar sem for-
stöðumaður hússins, Knud Ödega-
ard, tekur á móti gestum og sýnir
þeim húsið. Kóngurinn fer því næst
í Listasafn íslands og mun Hrafn-
hildur Schram sýna honum safnið.
Ólafur fer úr listasafninu um borð
í bát og sighr út í Viðey þar sem
Davíð Oddsson borgarstjóri mun
leiða konung um eyjuna og bjóða upp
á hádegisverð. SíðdegiskafSð drekk-
ur konungur í Höfða en seinna í eftir-
miðdaginn verður móttaka utanrík-
isráðherra í Ráðherrabústaðnum.
Þangað munu mæta erlendir sendi-
herrar sem hérlendis dvelja.
Heimsókn Ólafs Noregskonungs:
Olafur myndaði lagn-
ingu homsteins með
vasamyndavél
Dagurinn hjá Ólafi flmmta Nor-
egskonungi hófst með skoðunar-
ferð í Skógræktarstöð ríkisins á
Mógilsá í Kollafirði, í fylgd með
Vigdísi Finnbogadóttur, forseta ís-
lands. Þar sýndi Siguröur Blöndal
konungi stööina og fræddi hann
um starfsemi hennar. Eftir um það
bil klukkutíma skoöunarferö um
skógræktarstöðina var haldið í átt
til Þingvalla þar sem Þorsteinn
Pálsson forsætisráðherra og eigin-
kona hans, Ingibjörg Rafnar, tóku
á móti Ólafi. Séra Heimir Steins-
son, þjóðgarðsvöröur og sóknar-
prestur, sagði konungi frá sögu
staöarins. Hádegisverður var síðan
snæddur að Hótel Valhöll en í aðal-
rétt var Ólafi bóðið upp á glóðaðan
Þingvallasilung með ristuðum
möndlum og drottningarsósu.
Frá Þingvöllum flaug konungur
síðan, ásamt forseta íslands, í þyrlu
Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, til
Reykholts í Borgarflrði. Þar tóku á
móti þeim Birgir ísleifur Gunnars-
son menntamálaráðherra og eigin-
kona hans, Sonja Bachmann,
ásamt Steingrími Hermannssyni
utanríkisráðherra og eiginkonu
hans, Eddu Guðmundsdóttur.
Einnig tóku á móti konungi Jón
Sigurðsson dómsmálaráðherra,
Rúnar Guðjónsson sýslumaöur,
Þór Magnússon þjóðminjavöröur
og fleiri.
Leiöin lá beint að Snorralaug þar
sem konungur dvaldist dágóða
stund og skoðaði en síðan var hon-
um sýndur fomleifauppgröftur
skammt frá. Eftir fornminjarnar
var farið í nýbyggingu en búið er
að steypa grunn að Snorrastofu.
Þar blessaði séra Geir Waage sókn-
arprestur húsin en síðan lagöi for-
seti íslands, frú Vigdís Finnboga-
dóttir, homsteininn að bygging-
unni. Á meðan myndaði Olafur
konungur viðburðinn meö vasa-
myndavél.
Vigdís Finnbogadóttir hélt stutta
tölu og blessaði húsin og sagöist
vonast til þess að minning Snorra
liföi því þá lifði íslensk tunga. Jón-
as Jónsson, skólastjóri að Reykjum
og sóknamefndarformaður, bauð
Ólaf velkominn og færði konungi
Helgastaöabók aö gjöf. Ólafur kon-
ungur, sté næstur á stokk og fór
fogrum orðum um Snorra og tengsl
þjóðanna tveggja. Því næst afhenti
hann Birgi Isleifi Gunnarssyni
menntamálaráðherra eina milljón
norskra króna (6,7 milijónir ísl.
krónur) til frekari uppbyggingar
Snorrastofu. Birgir þakkaði kon-
ungi fyrir og færði Jónasi Jónssyni
sóknamefndarformanni gjöfina.
Því næst gengu menn til stofu í
Reykholtsskóla, drukku kaffi og
ávörp vora flutt en aö því loknu
flaug þyrla Landhelgisgæslunnar
með Noregskonung og forseta ís-
lands til ReyKjavíkur.
-JFJ
Noregskonungur við Snorralaug. Með konungi á myndinni eru Vigdfs
Finnbogadóttir forseti og Þór Magnússon þjóðminjavörður. Að baki
þeirra má meðal annarra sjá ráðherrana Blrgi ísleif Gunnarsson, Jón
Sigurðsson og Steingrím Hermannsson. DV-mynd Brynjar Gauti.
Drekkur
Ólafur fimmti Noregskonungur
heldur út í Viðey í dag þar sem borg-
arstjórinn í Reykjavík, Davíð Odds-
son, mun taka á móti honum og sýna
honum eyjuna. Eftir aö konungur
hefur barið eyjuna augum verður
sest aö snæöingi í nýuppgeröri Við-
eyjarstofu sem tekin var í notkun
Konungur í Vlðey:
einn kampavín með matnum
þann 18. ágúst.
Á boðstólum verða gimilegar
kræsingar sem fyrr. í forrétt veröur
boriö fram humarragú í smjördeigs-
sósu og hvítvín drukkiö með. í aöal-
rétt verður léttsteiktur lambavöðvi
með flóra íslands og kryddaður með
vallhumli. Með þessu verður til-
heyrandi grænmeti og ijómasósa
meö vallhumli og frönsku krydd-
smjöri. Gestir munu skola þessu nið-
ur með rauðvíni en Ólafur konungur
mun einn drekka kampavín með
matnum. Það er víniö Brat Intemal
sem verður fyrir valinu, mode Chan-
don. í eftirrétt veröa síðan veittir
ferskir ávextir í kramarhúsi.
Um 60 gestir verða í mat í Viðeyjar-
stofu en matreiöslumeistari er Vil-
hjálmur Hafberg. Auk Vilhjálms
verða þrír aðrir matreiðslumeistarar
við vinnu og tíu manns munu þjóna
gestum til borös.
JFJ
í kvöld heldur konungur síðan
veislu til heiðurs frú Vigdísi Finn-
bogadóttur. Veislan fer fram í Þing-
holti, á Hótel Holti. Fram verða
reiddar dýrindis kræsingar. í forrétt
verður boðið upp á þrjár tegimdir af
laxi, reyktur, grafinn og sítrónumar-
ineraður. Með þessu verður boðið
upp á tilheyrandi sósur. í aöalrétt
fær Noregskonungur hreindýrakjöt
á norskan máta með vilhbráðarsósu
en í eftirrétt verður reiddur fram
ávaxtaís með heitri aprikósusósu.
,,Það leggst vel í mig að elda fyrir
Olaf Noregskonung. Hingaö hafa
komiö nokkrir stórhöfðingjar og
borðað þannig að ég er ekkert stress-
aðri en venjulega. Þetta er ábyggilega
öndvegismaður sem gaman er að
elda ofan í,“ sagði Eiríkur Ingi Friö-
geirsson, matreiðslumeistari á Hótel
Holti.
JFJ
Andarneflu var hjálpað úr vest-
urhöfninni í Reykjavík í gær-
kvöldi. Andamefjan var villt inn
við Danfelsslipp. Félagar ur
Björgunarsveitinni Ingólfi aö-
stoöuðu hana. Fyrr um kvöldiö
hafði sést til hennar í Sundahöfn.
Taliö er að sama andarnefjan
hafi lent f vandræðum við Akra-
nes á sunnudag og mánudag.
Björgunarsveitinni Hjálpinni á
Akranesi tókst aö aöstoöa hana
og koma henni til sjávar á ný.
-sme
vesturhöfninni í Reykjavik i g»r-
kvöldl. DV-mynd Sigurgeir