Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1988, Page 4
4
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1988.
Fréttir
Skoðanakönnun DV:
Meirihlutinn styður
niðurfærsluleið
Meirihluti landsmanna er því
fylgjandi aö niðurfærsluleiðin
verði farin. Þetta kom í ljós í skoð-
anakönnun sem DV gerði um síð-
ustu helgi. Meirihlutinn er ekki
mikill.
Úrtakið í skoðanakönnuninni var
600 manns. Jafnt var skipt milli
kynja og jafnt milli höfuðborgar-
svæðisins og landsbyggðarinnar.
Spurt var: Ertu fylgjandi eða and-
vígur því að niðurfærsluleiðin
verði farin?
Af öllu úrtakinu sögðust 40,3 pró-
sent vera fylgjandi því að niður-
færsluleiðin yröi farin. 35 prósent
voru því andvíg. 23,2 prósent voru
óákveðin og 1,5 prósent vildu ekki
svara spurningunni.
Þetta þýðir að 53,5 prósent þeirra
sem tóku afstöðu vildu að niður-
færsluleiðin yrði farin. 46,5 prósent
voru því andvíg.
Meiri andstöðu .gætti meðal
kvenna en karla en þó ekki svo að
afgerandi væri. -HK
A myndinni má sjá fyrsta samráðsfund ríkisstjórnarinnar og forseta Alþýðusambandsins um niðurfærsluleið-
ina. Samkvæmt skoðanakönnun DV vill rétt rúmur helmingur þjóðarinnar að þessi leið verði farin.
DV-mynd S
ádag
„Það hringja 50-60 manns i okk-
ur á dag. Þetta eru bæði neytend-
ur og fyrirtæki, kaupmenn og
fleiri. Eins er töluvert um aö
spurt sé um skólagjöld og náms-
bækur. Það sem við erum um-
fram allt að gera er aö koma því
inn 1 höfuðið á fólki að um algera
verðstöðvun er að ræða. Það má
ekki hækka verð neinnar vöru,“
sagði Guömundur Á. Sigurðsson,
yfirviðskiptafræðingur Verðlags-
stofnunar, við DV.
Tðluvert er um að kaupmenn,
sem keypt hafa vöru frá heildsala
á hærra verði, hækki smásölu-
verð hennar í góðri trú að þaö sé
í lagi. Segir Guðmundur að marg-
ir haldi að um álagningarstöðvun
sé að ræöa og þvi megi verð-
hækkun frá heildsala fara út í
verðlagið. En svo er ekki.
„f tilvikum þar sem heildsalar
hafa tekiö inn vöru i ágúst á nýju
verði og kaupmaður kaupir ekki
inn fyrr en eftir siðustu mánaða-
mót má kaupmaðurinn ekki
hækka verð vörunnar. Heildsal-
inn er þama í fullum rétti en
kaupmaðurinn veröur að viröa
verðstöðvunina. Vandamálið er
að kaupmenn eru í góðri trú að
hægt sé að veröleggja eins og
venjulega. Þetta er algengasta
vandamálið.“ -hlh
Niðurstöður
skoðanakönnunarinnar
urðu þessar:
Af úrtaki Afþeim semtóku afstöðu
F/lgjandi
níðurfærslu 40,3% 53,5%
Andvígir niðurfærslu 35,0% 46,5%
Óákveðnir 23,2%
Svaraekki 1,5%
Af beimsem
tóku afstöðu
■ Fylgjandi
5 Andvfgir
Ummæli fólks í könnuninni
„Ég er fylgjandi þeirri leið sefn ber
árangur, sama hvað hún heitir,“
sagði karl á Vesturlandi. „Það er fjar-
stæðukennt siðleysi að klípa af laun-
um þeirra sem minnst hafa,“ sagði
kona á suðvesturhorninu. „Ég held
að það sé ekki annarra kosta völ en
aö fara niðurfærsluleiðina. Gengis-
fellingarleiðin hefur gengið sér til
húðar,“ sagði karl á höfuðborgar-
svæðinu. „Ég tek á mig skerðingu
ef allir gera það,“ sagði kona á Aust-
urlandi. „Mér er eiginlega alveg
sama hvaö þeir gera. Ég fæ örugglega
minn skerf af því,“ sagði kona á
Reykjanesi. „Ég er algerlega á móti
því að innleiða hér haftastefnu,"
sagði karl á höfuðborgarsvæðinu.
„Ég er fylgjandi niðurfærsluleiðinni
ef hún verður framkvæmd á réttan
hátt, ekki byrjað á þeim aumustu
heldur breiðu bökunum," sagði kona
í Reykjavík. „Ég er fremur fylgjandi
niðurfærslunni. Hún er skömminni
skárri en gengisfelling þótt ég vilji
auðvitað hvorugt sjá,“ sagði kona á
Norðurlandi. „Maður veit of lítið um
hvernig þessi niðurfærsluleið kemur
til með að verða,“ sagði kona á Vest-
fjörðum. „Ég er andvíg þeirri leið
sem lækkár lægstu launin,“ sagði
kona í Reykjavík. „Ég er svo sannar-
lega fylgjandi niðurfærsluleiðinni ef
rétt ér að henni staðið en ef hún á
einungis að koma niður á launafólki
vil ég ekki sjá hana,“ sagði karl á
landsbyggðinni. „Ef hún er farin alls
staðar jafnt og helst eftir prósentum
en ekki bara hjá hinum lægst laun-
uðu eins og 1959,“ sagði karl á höfuð-
borgarsvæðinu. „Ég er óánægð meö
aö Asmundur Stefánsson skuli vera
að ræða þessa vitleysu við ríkis-
stjórnina," sagði kona á landsbyggð-
inni. -gse
í dag mælir Dagfari
Þetta fór allt eins og Ólafur Ragn-
ar hafði spáð. Ávöxtun sf. lagði upp
laupana í fyrradag og sannaði þar
með þá kenningu spámannsins úr
Alþýöubandalaginu að grái mark-
aðurinn væri með allt niður um
sig. Þar að auki hefur Ólafur Ragn-
ar sannað að hann er spámaður í
sínu föðurlandi, en það er meira
heldur en hægt er aö segja um
ýmsa kollega hans. Þeim hefði ver-
ið nær að taka mark á Ólafi. Hann
var fyrir löngu búinn aö vara ríkis-
stjómina við ástandinu hjá Ávöxt-
un. Var meira að segja búinn að
skrifa þeim bréf. Hann sá þetta allt
fyrir. Aö vísu nefndi hann ekki
Ávöxtun á nafn, enda óþarfi að
nefna nöfn þegar spádómar eru
annars vegar. Spákerlingar nefna
aldrei nein nöfh þegar þær spá ást-
um eða áfóllum. Það gerir Ólafur
Ragnar ekki heldur. En af góð-
mennsku sinni og greiðasemi við
ríkisstjómina hafði hann varað
ráöherrana alvarlega við. Ólafur
ber umhyggju fyrir bágstöddum
sparifjáreigendum sem eiga pen-
ingana sína inni hjá vafasömum
verðbréfasölum. Honum þykir þó
enn vænna um verðbréfasalana
sjálfa þótt hann hafi ekki viljað
nefna þá á nafti.
Ný Vetrarfijálp
Ármann Reynisson og Pétur
Bjömsson vissu ekki sjálfir hvað
þeir stóðu illa. Þeir héldu að bis-
nessinn væri í lagi og fyrirtækið
stöndugt. Þeir hafa verið uppeknir
við að bjarga atvinnufyrirtæKjun-
um frá gjaldþroti og greiðsluerfið-
leikum. Ávöxtun sf. vissi ekki bet-
ur en að hjá þeim væri unnið þjóð-
þrifastarf þar 'sem allir graeddu.
Þeir höfðu ekki hugmynd um vin-
áttu Ólafs Ragnars og aUa hans til-
litssemi við sig.
Ávöxtun sf. var besta og göfug-
asta fyrirtækið í bænum. í marga
mánuði hafa þeir auglýst hærri
vexti og betri arð heldur en npkkur
annar aðili í þessum bransa. í raun
og vem vom mikil áhöld um það
hvort ávöxtunin mundi bera sig,
en bæði Ármann og Pétur eru vin-
ir fólksins eins og Ólafur Ragnar
og vilja því vel. Þess vegna borguðu
þeir betri vexti en aðrir og betri
vexti en þeir gátu borgað eöa áttu
fyrir. Þetta vissu ekki nærri allir.
Olafur Ragnar gekk hins vegar feti
framar en þeir Ármann og Pétur
og sagði fólki frá því hvað þeir hjá
Ávöxtun væra miklir mannvinir.
Þegar fólkið gerði sér grein fyrir
þessari mannúð hópaöist það inn á
skrifstofumar hjá Ávöxtun og baö
um peningana sína á vöxtunum
sem í boði vora. Og þeir hjá Ávöxt-
un borguðu meðan þeir gátu og
þegar þeir gátu ekki meir fóra þeir
til Seðlabankans og báöu um að
aðrir tækju við. Ekki það að þeir
vildu ekki borga meira. Þeir áttu
bara ekki meir af því Ólafur Ragn-
ar hafði komið upp um mann-
gæsku þeirra með því að segja frá
henni.
Nú er búið að loka þessu göfuga
fyrirtæki og Ólafur Ragnar hefur
haft erindi sem erfiði við að loka
því, eins og hann var aUan tímann
búinn að spá. En Ólafur Ragnar og
félagar hans í Alþýðubandalaginu
láta ekki við það sitja og fullyrða
að það séu miklu fleiri fyrirtæki í
bransanum sem hafi verið of góð
við fólkið og lánað því á betri kjör-
um en fyrirtækin ráði viö. Nú
hvetja þeir allaballar aðra sparifj-
áreigendur að drífa sig í að rífa út
peningana sína og leysa til sín vext-
ina, svo loka megi fleiri fyrirtækj-
um. Þessi góðmennska og fyrir-
hyggja gagnvart fólkinu í landinu
er alveg dæmalaus, enda hefur Al-
þýðubandalagið verið aö tapa fylgi
síðustu misserin og verður að
halda því áfram. Það er best gert
með því að setja bæði verðbréfasal-
ana og viðskiptamenn þeirra á
hausinn.
Þeir Ármann og Pétur hjá Ávöxt-
un sf. hljóta að vera Ólafi Ragnári
þakklátir fyrir að bjarga sér undan
öllu álaginu sem fylgir því að
ávaxta peninga fyrir ókunnugt fólk
án þess að eiga fyrir.því. Vetrar-
hjálpin var lengi starfrækt í þeim
tilgangi að hjálpa bágstöddu fólki.
Einnig má minna á Thorvaldsens-
félagið og Fangahjálpina og seinna
kom Hermann Björgvinsson til
skjalanna. Nú hefur Alþýðubanda-
lagið tekið upp þráðinn og vinnur
þaö þjóðþrifaverk að hjálpa bág-
stöddum til að komast á hausinn.
Segið svo að ekkert gagn sé aö
stjómmálaflokkum og stjórnmála-
mönnum á borð viö Olaf Ragnar!
Dagfari