Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1988, Síða 3
ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1988.
3
Fréttir
Synjað um kennarastöðu í Vestur-Landeyjum:
Ætlar í mál við
menntamálaráðherra
- segir Eggert Haukdal hafa beitt pólitískum áhrifum
„Birgir ísleifur menntamálaráð-
herra hefur synjaö mér um kennslu-
starfið. Ég hef verið beittur órétti og
ætla því að fara í mál við ráðherr-
ann. Einnig mun ég vísa málinu til
umboðsmanns Alþingis jafnhliða
málaferlunum," sagði Vigfús Andr-
ésson, frá Berjanesi í Rangárvalla-
sýslu, í viðtali við DV.
Vigfús sótti um kennslustarf í Vest-
ur-Landeyjum í lok marsmánaðar sl.
Aðeins einn sótti um á móti Vigfúsi.
Það var kennslukonan sem gegnt
hefur starfmu sl. þrjú ár. Hún er
réttindalaus en Vigfús hefur réttindi
og fjögurra ára starfsreynslu. „Engu
að síður hefur menntamálaráðherra
nú synjað mér um starfið," segir
hann. Umsókn kennslukonunnar
var hins vegar ekki hafnað, eins og
umsókn Vigfúsar, heldur var hún
send til undanþágunefndar.
Vigfús kvaöst í samtali við DV álíta
að pólitík hefði ráðið ákvörðun Birg-
is ísleifs menntamálaráðherra.
Kennslukonan væri frænka Eggerts
Haukdal og hann hefði „allar nefndir
þarna í vasanum.“ Vigfús sagði aö
skólanefndin hefði mælt gegn sér.
„Raunar sendi hún bréf með óhróðri
og lygum um mig í ráðuneytið. Hþis
vegar mælti fræðslustjórinn í um-
dæminu, Jón R. Hjálmarsson, með
mér,“ sagði Vigfús.
Hann hefur þegar vísaö málinu til
Kennarasambands íslands og Kenn-
arasambands Suðurlands.
-JSS
Átak í snyrtingu er í gangi í Reykjavík þessa dagana. Víða má finna rusi og annan óþverra í borginni. Ökumenn
og farþegar i bilum virðast oft gripa til þess ráðs að henda rusli út um bílgluggana. Meðfram Ártúnsbrekkunni
má glögglega sjá afleiðingu þessa sóðaskapar. DV-mynd S
Menntamálaráðuneytið:
Vigfös hafði
engin meðmæli
„Samkvæmt 13. grein í lögum nr.
48/1986 er gert ráð fyrir að hægt sé
að hafna manni meö réttindl Haíi
hann ekki meðmæli skólastjóra,
skólaneötdar eða fræðslustjóra
getur skólastjóri leitað til undan-
þágunefndar og fengið að lausráða
mann sem ekki er með réttindi og
Vigfús hafði engin af þeim með-
mælum sem talin eru hér að fram-
an,“ sagði Sigurður Guðmundsson,
deildarstjóri í menntamálaráðu-
neytinu, um málefni Vigfúsar
Andréssonar.
„Ráðherra vildi láta reyna á þetta
og ákvaö að skjóta máli Guðrúnar
til undanþágunefndarinnar en ég
tel að þrátt fyrir það sé ekki búið
að hafna umsókn Vigfúsar."
-JSS
75 ára kona slasaðist 1 bil á Reykjavegi:
Tvær háskaiegar
hraðahindranir
„Ég er með kraga um hálsinn þar
sem ég tognaði báðum megin við
efsta hálslið. Ég var í bíl með syni
mínum. Hann ók ekki hratt en þar
sem hraðahindranirnar eru ekki
merktar og háar kom mikill skellur
á bíhnn þegar hann ók yfir fyrri
hindrunina. Ég sat í afursætinu og
höfuðið á mér skall upp í þak bíls-
ins,“ sagði sjötíu og fimm ára gömul
kona sem varð fyrir óhappi á Reykja-
vegi um síðustu helgi.
Konan var flutt á slysadeild þar
sem kragi var settur um háls henn-
ar. Hún veit ekki með vissu hvenær
hún losnar viö hann en hún hefur
haft þrautir í hálsi öðru hverju frá
því að hún varð fyrir óhappinu.
Konunni þótti hryllilegt til þess að
hugsa að þessar hraöahindranir, sem
væru mjög brattar, væru ekki betur
merktar. Hún segist vera viss um að
hún sé ekki eina manneskjan sem
slasast hefur vegna þessa.
-sme
Fáskrúðsíjörður:
Sprúttsali hefur
játað vínsölu
Leigubílstjóri á Fáskrúðsfiröi hef-
ur við yfirheyrslur játað ólöglega
vínsölu. Erfitt er að henda reiður á
hversu mikið magn og í hve langan
tíma maðurinn hefur stundað sprútt-
söluna. Grunur leikur á að maðurinn
hafi stundað þessa ólöglegu starf-
semi í áraraðir.
Sigurður Eiríksson sýslumaður
sagði að afbrot af þessu tagi væri
erfitt að sanna. Helst yrði að standa
menn að verki. Þótt það tækist sann-
aði það ekki eldri brot. Mál sprúttsal-
ans er hjá ríkissaksóknara sem tekur
ákvörðun um framhald málsins.
-sme
Frímúrarareglan:
Indriði Pálsson kosinn æðsti maður
Indriði Pálsson, forstjóri olíufé- íslandi. Gunnar J. Möller gegndi
lagsins Skeljungs, hefur verið kosinn þessari stöðu á undan Indriða, en
æðsti maður Frímúrarareglunnar á hannléstfyrráþessuári. -hlh
• Þú leikur annað hvort á móti tölv-
unni eða við annan mótherja.
• Tilheyrandi sprengjuhljóð.
• Gengur fyrir rafhlöðu.
• íslenskar leiðbeiningar.
• Frábært verð.
Soluaðilar úti á landi óskast
Marco hf.
Langholtsvegi 111, 104 Rvk. Sími 680690
Útsölustaðir:
Reykjavík: Hjá Magna, Genus, Leik-
bær, Hagkaup. Leikbcer, Hafnarfirði.
Vöruh. Hólmkjör, Stykkishólmi.
Amaró, Akureyri.