Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1988, Qupperneq 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER. 1988.
Spurningin
Heldurðu að Jón Páll
myndi vinna Mike Tyson?
Hjörtur Guðmundsson: Nei.
Theodór Söebech: Ég held að hann
geti það ef hann kemst nálægt hon-
um og nær góðu taki.
örnólfur Lárusson: Já, alveg örugg-
lega.
Linda Aðalbjörnsdóttir: Já, hann er
miklu sterkari.
Símon A. Haraldsson: Já, það held égi
Hjalti „Úrsus“ Árnason: Já, ef það
yrðu engar reglur.
Lesendur
DV
Fiskvinnsla og fasteignir:
Verðhrun í sjávarplássum?
Þórdis Sigurðardóttir hringdi:
Það er sífellt verið að tala um af-
komumöguleika okkar landsmanna
i einu eða öðru samhengi. Þó finnst
mér þess gæta upp á síðkastið að
meira sé farið aö tengja aíkomu-
möguleikana við hinar og þessar at-
vinnugreinar en ekki fólkið sjálft.
Þannig er mikið rætt um afkomu
fiskvinnslunnar, stundum í einum
pakka (þ.e. fiskvinnslunnar), stund-
um í pörtum, eins og t.d. afkomu
frystingarinnar, saltfiskvinnslunn-
ar, loðnubræðslunnar, ferskfisksöl-
unnar, o.s.frv. - Og nú á að tengja
lélega afkomu fiskvinnslunnar í
svjávarplássum því hvort sanngjarnt
verð fáist fyrir húseignir þar eða
ekki.
Þannig las ég í frétt í DV hinn 18.
ágúst um verðhrun á fasteignum í
sjávarplássunum - ef afkoma hinnar
margumtöluðu fiskvinnslu yrði ekki
bætt verulega. Viðmælandi í frétt-
inni lét þau orð falla að ef fiskvinnsl-
an yrði skilin eftir í tapi núna, og
fyrirtækin færu á hausinn, þá hlyti
verð á eignum fyrirtækjanna og öll-
um fasteignum í viðkomandi byggð-
arlagi að hrapa niður og þær yrðu
óseljanlegar. - Einu eignirnar sem
hægt yrði að selja væru skipin, húsin
yrðu einskis virði!
Þetta finnst mér kyndugt. í fyrsta
lagi veit ég ekki annað en að hús í
sjávarplássum og á landsbyggðinni
yfirleitt hafi veriö verðlítil og það
breyti því ekki miklu hvort afkoma
fiskvinnslunnar verður bætt eða
ekki. Hús í þessum plássum seljast
yfirleitt ekki, þótt boðin séu til sölu.
Að vísu eru undantekningar eins og
í sumum stærstu bæjunum, t.d. Vest-
mannaeyjum og álíka stöðum. Ann-
að er að skipin eru jafnlítils viröi og
húsin ef afkoma fiskvinnslunnar
batnar ekki, þannig að þau seljast
ekkert frekar en húsin ef út í það er
farið. Eða hver ætti að kaupa skipin?
Það er því engra verulegra breytinga
að vænta í sjávarplássunum hvort
sem úr rætist með frekari aðstoö við
fiskvinnsluna eða ekki. Annað hvort
ber hún sig eða ekki. Verðhrun á
húsum í þessum plássum getur ekki
orðið meira en þegar er orðið.
Veröhrun á húsum í sjávarplássum getur varla orðiö meira en þegar er
orðið, segir hér. - Undantekningar eru í stærri bæjum eins og Vestmanna-
eyjum.
Mömmusulta blönduð
E 11 og E 330?
Neytandi skrifar:
Rabarbarasultan hefur löngum
verið gómsæt og eftirsótt á mínu
heimili. Seinnihluta ársins 1984
keypti ég plastfótu með þessari sultu
og hugðist gera glaðan pönnuköku-
dag. Einhvern veginn æxlaðist svo
til að þessi sulta var ekki notuð
meira, þótti einum of sæt eða
kannski fremur beisk.
Þessi fata varð því eftir í hillu í
geymslunni, sem ekki er köld. Þegar,
nú um 4 árum síðar, lokið er tekið
af þessari plastfótu, áleit ég að sultan
væri orðin mygluð eins og eðlilegt
væri. En viti menn.engin mygla til,
fremur en sultan í fötunni hefði ver-
iö djúpfryst!
Segir þessi saga matvælaeftirlitinu
eitthvað? Hvernig er með notkun á E
11 og E 330? Var slumpað á skammt-
inn í sultuna, eða var hún ef til vill
óæt í upphafi vegna þessara efna?
Þetta dæmi er e.t.v. lýsandi um
notkun eiturefna í matvælum hér á
landi, þar sem hver og einn getur
slumpað á skammtinn, sýnist honum
svo. Það er hrikalegt, ef rétt er, að
allt of stór skammtur af þessu eitri
sé settur í matvæli til þess að þau
geymist lengur í hillum verslana.
Vonandi eru eiturefni af þessu tagi
eða líku, ekki notuð í mjólkurvörur.
Ég hef veitt því athygli að mjólk
súrnar ekki fyrr en eftir langan tíma,
en fær óbragð af öðru tagi. Óskað er
svars við þessu frá forráðamönnum
matvælaeftirlitsins og Mjólkursam-
sölunnar.
Lesendasíða DV hafði samband við
Hollustuvernd ríkisins og ræddi við
Jón Gíslason deildarráðunaut. Hann
segir m.a. í svari sínu: „Aukefni sem
notuð eru í matvælum eru ekki eitur-
efni og þess má geta að aukefni sem
auðkennd eru með númerum, hafa
verið metin með tilliti til eiturefna-
fræðilegra þátta. Aukefnum eru
þannig gefin E-númer, þegar sér-
fræðinefnd á vegum Evrópubanda-
lagsins (EB) hefur viðurkennt efnin
til notkunar í matvælum. - Bókstaf-
urinn E er því fyrsti stafurinn í heiti
bandalags Evrópuþjóða, en ekki
fyrsti bókstafurinn í íslenska orðinu
„eiturefni".
Með númerinu E 11 mun bréfritari
eiga við natríumsalt af rotvarnar-
efni, sem ber heitiö bensónsýra (E
211). Efni þetta er notað til að rot-
veija sultur, en algengara er að nota
kalíumsalt af rotvamarefni, sem ber
heitið sorbínsýra (E 202) til aö koma
í veg fyrir myglu. - Ekki er heldur
óalgengt að bæði efnin séu notuð í
sömu vörutegund. Rotvarnarefnin E
202 og E 211 má nota í sultur í ákveðnu
magni.
Eftirlit með efnainnihaldi er hins
vegar ekki fullnægjandi, þar sem
fjármagn og aðstöðu skortir hjá eftir-
litsaðilum. Sultur innihalda mikinn
sykur og auk þess í mörgum tilvikum
rotvarnarefni. Vörurnar hafa því
langt geymsluþol í óopnuðum um-
búðum. - Aukaefnið E 330 er sítrónu-
sýra sem notuð er í sultur til að koma
í veg fyrir litarbreytingar í vörunni
og hafa áhrif á sýrustig hennar. Sítr-
ónusýra er ekki skaðleg heilbrigði
og það sama gildir um rotvamarefn-
in í því magni sem leyft er til notkun-
ar. Rotvarnarefnin geta hins vegar
valdið ofnæmi eða óþoli hjá vissum
einstaklingum. - Að lokum má geta
þess að ekki er heimilt að nota auk-
efni eða önnur efni við framleiðslu á
mjólk og neytendur þurfa ekki að
óttast að það sé gert.
Saga af
símamálum
Martial Nardeau hringdi:
Ég var á ferð um bæinn eins og
gengur og var staddur 'nálægt nýja
pósthúsinu við Rauðarárstíg. Þá
mundi ég allt i einu eftir að ég þurfti
aö nota síma og fór því inn á pósthús-
ið til að hringja.
Þegar til kom reyndist almennings-
síminn þar bilaður. Ég var búinn að
reyna og missti þann lausa pening
sem ég var með á mér. Ég fór því til
næstu afgreiðslustúlku og ræddi viö
hana og sagði henni frá þessu. Hún
ráðlagði mér að reyna aftur sem ég
og gerði. Allt í allt reyndi ég þrisvar,
en án árangurs.
Þá fór ég enn til stúlkunnar og bað
um leyfi til að fá að hringja úr síma
sem var innan við afgreiðsluborðið.
Hún svaraði og sagði: „Það get ég
ekki leyft því þú mátt ekki fara inn
fyrir borðið.“ - Þetta fannst mér
klaufaleg þjónusta, ekki síst á þeirri
stofnun, sem hvað mest tengist sam-
göngu- og símamálum, sjálfum Pósti
og síma.
Sjónvarpsfréttum
hjá RÚV hrakar
Ámi Björnsson hringdi: varpsins og þjónustu þess við slíkt í RÚV. Aðeins léleg íslensk
Fréttaflutningur ríkissjónvarps- landsbyggðina! En þótt fréttunum kvikmynd og endursýnd (áður á
ins er ekki svipur hjá sjón þjá þvi í sjónvarpi RÚV hafi hrakað, höf- dagskrá 1986), ekkert annað en eit-
sem hann áður var. Þetta kemur um við sem betur fer val á öðrum urlyf, uppvask, uppáferðir og fyl-
fram í ýmsum myndum, bæði upp- fréttum, þ.e. á Stöð 2. lerí, eins og tíðast í íslenskum
tökum, klippingum og lestri frét- Þeir sem ekki hafa myndlykil myndum.
tanna sjálfra. hafa hins vegar ekki aögang að Varla geta umræðuþættir verið
Laugardagskvöldiö 10. þ.m. var td. nema takmörkuðu efhi á þeirri stöö dýrt sjónvarpsefni, en mun áhuga-
klippt á viötal tveggja manna (ann- og veröa aö sætta sig við RÚV og verðara en nokkur „tilbúinn"
ar var Sverrir Hermannsson bank- það sem þar er fram borið. En satt skemmti-eða leikþáttur sem ku
astj.) og það var svo óhönduglega að segja er dagskráin orðin svo rýr kosta morð fjár. Enda engin ástæða
gert, að mennirnir voru í miðri að það er ekki þess virði að binda til aö eyða fé í þá. Sjónvarpiö verð-
setningu eða nýbyijaöir á henni. - sigyfirhenni.Þaöeruengirliíandi ur að taka sig á í þessum efhum,
Þegar svona er gert verður manni umræðuþættir lengur, rabb um áður en almenn krafa kemur fram
alltaf á að hugsa; hvað var þaö sem dægurmál eöa þess háttar. um að því verði lokað að fullu eða
maðurinn mátti ekki segja? Á miðvikudagskvöldiö var Stöð 2 bjóði myndlykla og fólk geti þá
Eg held aö þetta sama kvöld hafi með umræöuþátt undir stjórn valið hvað það vill horfa á.
svo uppistaðan í fréttiun sjón- Hannesar Hólmsteins. Þetta var aö
varpsins verið um ágæti ríkissjón- sjálfsögöu lokuö dagskrá. Ekkert