Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1988, Síða 20
20
FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1988.
íþróttir
Eyjamenn
auðveld
bráð Víkinga
- Víkingar sigruðu Eyjamenn, 29-19
„Þaö verður að segjast eins og er
að við lékum þennan leik mjög illa.
Víkingsliðið er sterkt enda eru í því
fjórir leikmenn sem klæðst hafa
landsliðspeysunni. Ég held að of mik-
il bjartsýni leikmanna liðsins fyrir
þennan leik hafi orðið því að falli í
kjölfar sigursins gegn Gróttu á dög-
unum. Við vitum raunar lítið um
hvar liðið stendur en það sýndi mun
betri leik gegn Gróttu í fyrsta leik
mótsins. Það er hins vegar ljóst að
við' eigum undir högg að sækja í
deildinni í vetur," sagði Sigurður
Gunnarsson, þjálfari og leikmaður
ÍBV, í samtali við DV eftir ósigur liðs-
ins gegn Vikingum, 29-19, á íslands-
mótinu í handknattleik í gærkvöldi.
Víkingar höfðu forystu í hálíleik,
13-9.
Leikur Víkingsliðsins var allur
annar og betri en í fyrsta leik móts-
ins þegar það tapaði stórt á Akur-
eyri. Á þessari braut geta Víkingar
gert mun betri hluti en búist hafði
verið við af þeim fyrir keppnistima-
bilið. Hins vegar er ljóst að á bratt-
ann verður að sækja fyrir Eyjamenn
í vetur. Þeir eiga að geta gert miklu
betur. Ekki var laust við að þeir
bæru of mikla virðingu fyrir Vík-
ingshðinu. Sigurður Gunnarsson er
greinilega allt í öllu í leik hðsins.
Sigurður átti til að mynda fjölmargar
hnusendingar sem línumenn gripu
ekki af óskiljanlegum ástæðum.
Ástæðan gæti legið í því að leik-
menn, sem alltaf hafa gott auga fyrir
línuspili, kunna ekki ennþá inn á
leikstíl Sigurðar.
Víkingar höfðu ávallt forystu í
leiknum og náðu Eyjamenn aldrei
að ógna sem neinu næmi. Það var
aðeins í fyrri hluta fyrri hálfleiks
sem lítill munar var á liðunum en
eftir þvi sem leið á hálfleikinn skhdi
leiðir. Hið reynslumikla lið Víkings
hafði leikinn í öruggum höndum.
Þrátt fyrir að liðið hafi misst nokkra
sterka leikmenn býr margt í því og
geta lið sem tahn eru sterkari í deild-
inni ekki bókað sigur gegn því. Vörn
liðsins var sterk og Sigurður Jensson
markvörður varði oft vel, er þar upp-
rennandi sterkur markvörður.
Sigmar Þröstur Óskarsson, mark-
vörður Eyjamanna, varði 15 skot í
leiknum og ef hans heföi ekki notið
við hefðu Eyjamenn fengið stærri
skell. Vörn Víkings haföi góðar gæt-
ur á Sigurði Gunnarssyni og fyrir
\ikið hafði hann sig ekki mikið í
frammi.
• Hákon Sigurjónsson og Guðjón
Sigurðsson dæmdu leikinn ágætlega.
Mörk Víkings: Árni Friðleifsson
9/1, Karl Þráinsson 7/3, Bjarki Sig-
urðsson 6, Siggeir Magnússon 3, Guð-
mundur Guðmundsson 2, Einar Jó-
hannesson 1, Jóhann Samúelsson 1.
Mörk ÍBV: Sigurður Gunnarsson
7/3, Sigurbjörn Oskarsson 5/2, Óskar
Freyr Brynjarsson 4, Sigurður Frið-
riksson 2, Jóhann Pétursson 1.
-JKS
Góður sigur
hjá Seltirningum
- unnu UBK, 20-17, í Digranesi
Grótta hreppti sín fyrstu stig á
íslandsmótinu í handknattleik á
þessu tímabili með óvæntum en
dýrmætum sigri á Blikum í Kópa-
vogi, 20-17. Seltimingar höfðu
yfir í hléi, 11-10.
Leikurinn var bráðfiörugur
þótt handknattleikurinn væri
ekki alltaf eins og best verður á
kosið. Mikil barátta var í hði
Gróttu frá upphafi og fór Stefán
Arnarsson í fylkingarbrjósti.
Hann skoraði sex mörk og var
óstöðvandi í vörninni. Stal Stefán
þar mörgum sendingum Blika
þótt ekki tækist honum síðan allt-
af vel upp í hraðaupphlaupunum,
Ef á heildina er litiö var viður-
eignin kaflaskipt en hún var í
járnum framan af en síðan tóku
Seltirningar ráðin og höfðu yfir
fram aö hléi í upphafi síöari hálf-
leiks gekk síöan flest miður hjá
Gróttu og gerði hðið ekki mark í
tæpar 9 mínútur. Á móti skoruðu
Bhkar og fóru yfir. Höfðu þeir
grænklæddu meira að segja góð
fiæri á aö gera út um leikinn en
Seltimingar léku um hríð 3 gegn
fullskipuðu liði Blika. En allt kom
fyrir ekki og er Grótta tefldi fram
fúllskipuðu hði á ný fór hún aftur
yfir og lét ekki forystuna af hendi.
Bestir í liöi Gróttu voru Stefán
og markvörðurinn Sigtryggur
Albertsson sem varði með stór-
merkjum á lokamínútunura. Þá
var Sverrir Sverrisson skeinu-
hættur í fyrri hálfleiknum.
í liði Bhka varði Guðmundur
Hrafnkelsson vel á köflum og Jón
Þórir var frískur annað slagið en
datt niður þess á milh. Mörk
Breiðabliks: Hans Guðmundsson
8/3, Jón Þórir Jónsson 5/1, Kristj-
án Halldórsson 2, Andrés Magn-
ússon 1, Magnús Magnússon 1.
Guðmundur Hrafnkelsson
varði 13 skot, 2 víti.
Mörk Gróttu: Stefán Amarsson
6, Sverrir Sverrisson 5, Páll
Björgvinsson 2, Willum Þórsson
2, Davíð Gíslason 2, Gunnar
Gislason 1, Svavar Magnússon 1,
Halldór Ingólfsson 1.
Sigtryggur Alberteson varði 13
skot,2víti. -JÖG
Kristján fór í markið
Kristján Sigmundsson, sem verður aðstoðarmaður Páls Björgvinssonar við
þjálfunina hjá Víkingum í vetur, brá undir sér betri fætinum í leiknum gegn
Eyjamönnum í gærkvöldi og skellti sér í markið. Kristján hafði sem kunn-
ugt er ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir síðasta keppnistímabil. Kristján
fór í markið í gærkvöldi til að veija vítakast en hafði ekki erindi sem erfiði.
Engu að síður var gaman að sjá Kristján á nýjan leik í markinu.
-JKS
Valsmenn héldu sýningu að Hlíðarenda í gærkvöldi en mótherjar þeirra voru Framarar. Á myndinni má líta Sigurð Sv
Birgi Sigurðsson í valnum og þá Geir Sveinsson, Agnar Sigurðsson og Egil Jóhannesson.
Ovæntur K
- KA-menn unnu FH-inga, 25-24, á síðustu
„Þetta var spennandi og skemmtileg-
ur leikur og ég er mjög ánægður með
sigurinn. Lið mitt lék af 100% krafti
allan tímann og ég held að við höfum
uppskorið eftir því. Þetta hefur byrjað
vel hjá okkur og ég held að við getum
unnið hvaða lið sem er með svona
áframhaldi,“ sagði Ivan Duranec, þjálf-
ari KA, eftir að hð hans haföi unnið
óvæntan sigur á FH, 25-24, í Hafnar-
firði í gærkvöldi.
Þaö stefndi lengi í að leiknum yröi
frestað vegna deilumáls milh dómara
og Viggós Sigurðssonar, þjálfara FH,
en á síðustu stundu var ákveðið að
þeir Kjartan Steinbach og Gunnlaugur
Hjálmarsson mundu dæma leikinn sem
þeir og gerðu. Var þeim ákaft fagnað
þegar þeir gengu inn á völlinn fyrir
leikinn.
KA-menn komu svo sannarlega á
óvart með góðum og baráttumiklum
leik og sýndu strax í byrjun að þeir
ætluðu sér ekkert annað en sigur. KA
komst í 4-2 eftir 6 mínútur og FH-ingar
áttu í miklum erfiðleikum gegn sterkri
vörn Nprðanmanna. Héðinn Gilsson og
Óskar Ármannsson voru nánast klippt-
ir út úr leiknum og viö það riðlaðist
leikur FH-inga og KA-menn gengu á
lagið. KA-menn komust í 11-7 og höfðu
síðan yfir 12-8 í leikhléi.
FH-ingar komu tvíefldir til leiks í síð-
ari hálfleik og með bættum sóknarleik
tókst þeim aö saxa á forskot gestanna.
Áhorfendur, sem fyhtu íþróttahús
Hafnarfjarðar, tóku loks við sér þegar
Héðinn Gilsson reif sig lausan og jafn-
aði, 17-17, og svo virtist sem KA-menn
væru að missa leikinn úr höndum sér.
FH-ingar komust yfir, 22-21, þegar
rúmlega 4 mínútur voru eftir en KA-
menn gáfust ekki upp og skoruðu þrjú
mörk í röð og komust yfir, 24-22. Aftur
náðu FH-ingar að jafna þegar Þorgils
Óttar skoraði af línunni en á síðustu
sekúndu leiksins fiskuðu KA-menn
vítakast og Erhngur Kristjánsson skor-
aðí af öryggi og tryggði Norðanmönn-
um kærkominn sigur. KA-menn fögn-
uðu gífurlega í leikslok enda sennilega
fáir reiknað með sigri þeirra í Hafnar-
firði. KA-menn hafa reyndar unnið FH
tvívegis í síðustu þremur viðureignum
Greiður aðgangur Stutb
Asgelr Sigurvinsson lék að nýju með liðinu og átti góðan
Asgeir Sigurvinsson og félagar hans
hjá Stuttgart komust án teljandi erfiö-
leika 13. umferð Evrópukeppni félags-
liða. Stuttgart lék gegn Ðinamo Zagreb
á heimavelh sínum, Neckar Stadion,
og varð jafntefli í leiknum, 1-1. Fyrri
leik liðanna, sem fram fór í Júgóslav-
íu, vann Stuttgart, 1-3. Ðinamo Zagreb
komst yfir í leiknum í síðari hálfleik
en Fritz Walter jafnaöi skömmu síðar.
Stuttgart óð í marktækifærum en tókst
ekki að bæta viö fleiri mörkum. Ásgeir
Sigurvinsson lék aö nýju með Stutt-
gart efhr meiðsli og var með betri leik-
mönnum hðsins í leiknum. 15 þúsund
áhorfendur fylgdust með leiknum og í
þeim hópi voru 5 þúsund júgóslavn-
eskir larandverkamenn.
• Frakklandsmeistarar Monaco,
sem lentu í sem mestum vandræðum
meö Val í 1. umferð Evrópukeppni
meistarahöa, fóru á kostum á heima-
velh sínum í gærkvöldi. Þeir fengu
Club Brugge í heimsókn og þurftu að
vinna upp 0-1 forystu belgísku meist-
aranna en voru komnir í 5-0 eftir hálf-
tíma og unnu 6-1!
Glenn Hoddle átti stórkostlegan leik
og lagði upp fimm markanna, þijú
þeirra fyrir framheijann eldfljóta frá
Fílabeinsströndinni. Mark Hateley lék
sinn fyrsta leik á tímabilinu og hafði
greinilega góð áhrif á sóknarleik
Monaco.
• Gífurleg fagnaðarlæti brutust út
um gjörvallt Tyrkland í gær þegar
meistaralið landsins, Galatasaray,
gjörsigraöi svissnesku meistarana Ne-
uchatel Xamax, 8-0, og tryggði sér
sæti í 8 liða úrshtum. Xaraax hafði
unnið fyrri leikinn, 3-0, en Tyrkirnir
skoruðu þrjú mörk á síðusta kortérinu
og tryggöu sér glæstan sigur. Tvö síð-
ustu mörkin skoraöi Tanju, sá hinn
sami og lét Friðrik Friðriksson veija
frá sér vítaspyrnu i landsleik Tyrk-
lands og íslands á dögunum.
• Tíu leikmenn Roma náöu að sigra