Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1988, Page 31
FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1988.
31
Lífsstm.
Hreindýrakjötsmarkaður yfirfullur:
Ólöglegt kjöt í umferð?
Svo virðist sem mest af því hrein-
dýrakjöti, sem á markaðnum er, sé
af ólöglega veiddum dýrum. Sam-
kvæmt upplýsingum frá aðilum á
Austfjörðum, sem hafa leyfi ráðu-
neytisins til hreindýraveiða, hefur
gengið erfiðlega að losna við kjötið.
Markaðurinn varð yfirfullur strax í
haust þrátt fyrir að kvótinn væri
skertur um helming.
Ólöglega veidd hreindýr hafa ekki
fengið neina skoðun heilbrigðisyfir-
valda og neytandinn hefur því enga
tryggingu fyrir því að kjötið hafi
fengið rétta meðferð.
Kaupmaður í stórri verslun í
Reykjavík sagði í samtali við DV að
kaupmönnum þætti hreindýrakjöt
vera of dýrt. Verðið til verslana er
um 1.200 krónur á kílóið. Margar
verslanir eiga hreindýrakjöt frá
fyrra ári og bíða því með frekari inn-
kaup í von um að verðið lækki.
Löglega fengið og meðhöndlað kjöt
hefur stimpil dýralæknis og ættu
kaupendur að ganga úr skugga um
hvaða kjöt þeir kaupa. Að öðru leyti
er erfitt að vita nákvæmlega hvaðan
kjötið kemur.
-JJ
Þegar harðnar á dalnum leita hreindýrin oft í byggð.
Hreindýrakjöt er
herramannsmatur
Rétt unnið hreindýrakjöt undir
eftirhti dýralæknis er afar gott.
Hins vegar verður að vara við því
kjöti sem ekki hefur fengið rétta
meðhöndlun því ómögulegt er að
tryggja árangur við matreiðslu.
Her á eftir fara nokkrar upp-
skriftir að safaríkum hreindýra-
steikum.
Hreindýrakjötsoð
1.5 kg bein (af hálsi eða hrygg)
100 g gulrætur
100 g laukur
1 lárviðarlauf
'/2 tsk. blóðberg (timian)
steinselja og blaðlaukur (eftir
smekk)
2.5 1 vatn
Matur
Hlutið beinin í smá-bita. Setjið
beinin í ofnskúffuna og inn í 180”
heitan ofn. Steikið beinin í 1—114
klukkustund. Meðan beinin brún-
ast verður að snúa þeim af og til
því þau þurfa að brúnast vel á öll-
um hhðum. Þegar helmingurinn
af tímanum er liðinn eru settir 3
dl af vatni í pönnuna til að vama
þyí að beinin brenni við. Þegar
beinin eru steikt eru þau sett í pott.
Hellið vatninu yfir beinin, látið
suðuna koma upp og íleytið ofan
af. Skerið grænmetið í bita og setjið
út í pottinn ásamt kryddinu. Látið
sjóða við vægan hita í 3-A klukku-
stundir. Fleytið ofan af öðru
hveiju.
Úr þessari uppskrift næst um 1 'A
1 af soði. Soðið má síðan frysta í
mátulegum einingum og þíða síðan
í súpur og sósur.
Hreindýrapottréttur
Ætlaður íjórum
1 kg hreindýrakjöt (háls eða bógur)
salt og pipar
smjör th steikingar
'A 1 soð
'A laukur
1 lárviðarlauf
'A tsk. blóðberg (timian)
1 msk. franskt sinnep
30 g hveiti
30 g mjólk
3 dl rjómi
250 g grænmeti'sblanda (gulrætiu-,
seherí, sveppir o.fl. eftir smekk)
Skerið kjötið í hæfilega bita (ca.
40 g hver). Kryddið kjötið og steikið
það á öllum hhðum úr smjöri í
potti. Setjið soðið saman við, lauk-
inn í heilu, lárviðarlauf og blóð-
berg. Látið sjóða við vægan hita þar
til kjötið verður vel meyrt. Fjarlæg-
ið laukinn og lárviðarlaufið.
Hristið saman mjólkina og hveit-
ið og jafnið soðið. Helhð ijómanum
saman við og bragðbætið með sinn-
epi. Setjið grænmetið saman við í
þunnum strimlum og látið það
hitna vel í gegn.
Berið fram með rósakáh, soðnum
kartöflum og títu- eða rifsbeija-
sultu.
Hreindýrslundir í púrtvíns-
sósu
600 g hreindýrslundir
salt og pipar
smjör til steikingar
300 g sveppir
Sósan:
4 dl soð
2 tsk. maísmjöl
Hreindýrakássa með grænmeti.
Rétt unnið hreindýrakjöt er herramannsmatur.
2 dl rjómi
60 g smjör
1 staup púrtvín
Sjóðið soðið niður um 'A. Hrærið
maismjöhð út í 1 msk. af vatni og
jafniö soðið. Hrærið ijómann S£un-
an við. Sjóðið nú grænmetið og
kartöflumar sem bera á með.
Hreinsið sveppina og skerið í frem-
ur stóra hluta.
Þar sem ekki tekur nema um tíu
mínútur að steikja lundimar er það
gert rétt áður en rétturinn er bor-
inn fram. Skerið kjötið í sneiðar
og kryddið. Bræðið smjörið á
pönnu og steikið kjötið báðum
megin. Kjötið á ekki að vera gegn-
steikt. Takið kjötið af pönnunni og
haldið heitu. Steikið sveppina á
pönnunni í ca. 2 mínútur og hehið
sósunni yfir. Látið suðuna koma
upp og sjóðið við vægan hita í
nokkrar mínútur. Hrærið afgang-
inum af smjörinu (60 g) saman við
og bragðbætið sósuna með salti.
Púrtvíninu er hrært saman við í
lokin.
Deihð grænmeti og kjöti á fjóra
vel heita diska. Berið fram með
soðnum kartöflum og sósu.
Ávaxtamauk á vel við.
Hreindýralundir eru sælkeramatur.