Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1988, Blaðsíða 37
FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1988.
37
Sviðsljós
Skilnaðurmn
reynist
Spielberg
dýr
Hjónabandið er búið að vera. Steven Spielberg með konu sinni Amy Irving
sem vill fá litlar 100 milljónir dollara i skilnaðarbætur.
Steven Spielberg með leikkonunni Kate Capshaw en hún er aðaláhugamál
hans um þessar mundir.
Hjónabandi kvikmyndaframleið-
andans Stevens Spielberg og leikkon-
unnar Amy Irving er lokið. Þau búa
ekki lengur saman og kunnugir segja
að lögfræðingar Amy beijist nú fyrir
því að hún fái 100 milljón dollara í
skilnaðarbætur sem er nýtt met þar
fyrir vestan. Fyrra met Johnnys Car-
son er hlægilegt við hliðina á þessari
upphæð en hann þurfti að greiða
fyrrverandi konu sinni litlar 32 milij-
ónir.
Amy Irving og Spielberg hafa reynt
í allt sumar að bjarga hjónabandinu
en gáfust loks upp í lok september
og fluttu hvort frá öðru. Þau eru
búin að sætta sig við að hjónabandið
getur ekki gengið. Spielberg finnst
kona sín ganga fulllangt í kröfum
sínum en þorir ekki að andmæla af
ótta viö að það muni bitna á þriggja
og hálfs árs syni þeirra, Max. Jafnvel
þó að Spielberg sé það mjög á móti
skapi að greiða konu sinni 100 millj-
ónir er mjög líklegt að hann láti und-
an bara til að geta haldið góðu sam-
bandi við son sinn. Ekki hefur verið
ákveðið hvernig greiðslurnar munu
fara fram en lögfræðingar eru enn
að vinna að þeim málum.
Spielberg eyðir nú miklum tíma
með leikkonunni Kate Capshaw sem
lék í myndum hans um Indiana Jo-
nes og Musteri óttans. Spielberg
sagði við náinn vin sinn að þrátt fyr-
ir mikinn kostnað við skiinaðinn þá
skiptu peningarnir ekki máli ef hann
fyndi hamingju eftir skilnaðinn.
Hvað er á seyði?
- í Stykkishólmi
Róbett Jörgensen, DV, Stykkishólntí:
Það var mikið að gera hjá fjölda
manns þegar sjónvarpsþátturinn
Hvað er á seyði? var tekinn upp í
Stykkishólmi á dögunum. Kristín
Björg Þorsteinsdóttir dagskrárgerð-
armaður og Skúli Gautason, umsjón-
armaöur þáttarins, spáðu í og skoð-
uðu alla hugsanlega aðila sem komu
til greina í þáttinn. Á Snæfellsnesi
er af nógu að taka enda mikið menn-
ingarlíf á svæðinu og árangurinn
kom síðan í Ijós sl. sunnudag
Upptaka á söng kórs Stykkishólmskirkju, stjórnandi Ronald Turner.
DV-mynd Róbert
Ungir og hressir listamenn i Stykkishólmi tóku sér fri frá störfum til aö sitja
fyrir hjá Ijósmyndaranum.
DV-mynd Róbert
Það er leikur að læra
Róbert Jöigensen, DV, Stykkishóliití:
í Stykkishólmi er rekinn leikskóli,
sem St. Franciskussystur reka ásamt
Stykkishólmsbæ. Fréttaritari DV leit
þar inn einn daginn og þar var sko
líf og flör.
Fyrir valinu varð 4-5 ára deildin.
Þar eru 18 hressir krakkar ásamt
tveimur starfsmönnum. Starfsgleðin
var mikil og má mikið læra af því
að fylgjast með svo ungu en lífsglöðu
fólki.
Foreldrar tala um að það hafist
vart undan við að taka á móti og
koma fyrir öllum þeim listaverkum
sem þessir listamenn skapa. Vonandi
helst þessi sköpunargleði áfrám fram
á fullorðinsárin.
Hellissandur:
Falleg perla
í náttúnmni
Róbeit Jöigensen, DV, Stykkishólntí:
Rétt við þjóðveginn, þegar ekið er
inn í sveitarfélagið HelÚssand, er lít-
ið landsvæði sem einstaklingur hef-
ur ræktað upp og er nú oröið að fall-
egri pérlu í náttúrunni.
Þetta er landskiki, sem nefndur
hefur verið „Tröð“ og er að mestu
leyti verk eins manns, Kristjáns
Jónssonar, sem kénndur var við Gil-
bakka á Hellissandi.
Þarna sannast rétt einu sinni hvað
hægt er að gera ef hugur fylgir máh.
Landskikinn Tröö.
Ólyginn
sagði. . .
Gul Mohammad
heitir minnsti maður í heimi, að
því er áreiðanlegar heimildir
herma. Hann er 32 ára sælgætis-
sali í konuleit. Kappinn er aðeins
60 sentímetra hár, en þrátt fyrir
það segist hann þurfa konu af
eðlilegri'stærð. Konan þarf jú að
geta boriö hann með sér hvert
sem hún fer, fætt hann og baöað.
Mohammad, sem er frægur i
heimaborg sinni Nýju Delhi á
Indlandi, segir að það sé erfitt að
vera dvergur. Hann borgar
krökkum 15 krónur á dag fyrir
aö bera sig um bæinn, þar sem
hann er of lítill til að komast upp
á reiðhjól.
StevieWonder
á í dálitlum vandræðum þessa
dagana. Hann er trúlofaður
tveimur stúlkum og getur
ómögulega gert upp við sig hvora
hann vill fá upp að altarinu með
sér. Önnur stúlkan býr í Los
Angeles og hin í New York og það
var ekki fyrr en nýlega að þær
komust að sannleikanum í mál-
inu. Hvorug er tilbúin til að gefa
sig fyrir hinni, en nánir vinir
söngstjörnunnar segja að hann
hallist nú frekar að Lencolu Sulli-
van, fyrrum fegurðardrottningu
frá Arkansas. Hver lokaákvörð-
un Stevie verður er erfitt að geta
sér til um. Eitt er víst: hann fær
ekki að giftast nema annarri
stúlkunni.
Joan Collins
hefur sett allt á annan endann í
Hollywood með fyrstu skáldsög-
unni sinni, Prime Time. Einkum
er það þó Elísabet Taylor sem
hefur mikinn áhuga á að komast
að því hvort hugsast geti að hún
sé fyrirmynd aðalsöguhetju Coll-
ins. Hetjan er fræg leikkona sem
muna má sinn fifil fegri. En
kunnugir sjá ekki bara Taylor í
persónum bókarinnar, heldur má
þar þekkja Kate OMara sem leik-
ur með Joan í Dynasty, að
ógleymdri Lindu Evans. Svo er
Jackie, systir Jónu og fræg skáld-
kona, orðin afbrýðisöm yfir vel-
gengni stóru systur á ritvellinum.
I hefndarskyni ætlar hún að leika
í Dallas, erkifjanda Dynasty.