Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1989, Blaðsíða 24
24
MÁNUDAGUR 23. JANÚAR 1989.
MÁNUDAGUR 23. JANÚAR 1989.
25
Iþróttir dv i>v
Góður leikur Framkvenna á föstudag en lakari á sunnudag:
Hrammur bimu
reyndist of þungur
- sovésku valkyrjumar úr Kænugarði komnar áfram eftir tvo sigra á Fram
Magnús
lokar
HenrnmclurSigraundæon, DV, Noregi
Magnús Stefánsson er mark-
vörður hjá Oppsal sem leikur í
annarri deildinni. Liðið, sera er
fornfrægt, átti lítilli velgengni að
fagna framan af vetri en hefur
heldur betur tekið við sér síðustu
vikurnar.
Af síðustu 8 leikjum hefur liðið
unnið 5, skipt hlut einu sinni og
tapað í tvígang.
Magnús hefur varið eins og ber-
serkur í síðustu ieikjum og að
auki hefúr þjálfarinn, Jon Rein-
ertsen, sem var besti leikmaður
Noregs á sinni tíð, tekið fram
skóna og bundið saman vörnina.
Oppsal er núna í fjórða neðsta
sæti en er á örri uppieið.
Hneyksli
I Noregi?
Heiraundur Sigraundaaon, DV, Noregi
Sven Ture Jakobsen, þjálfari
kvennaliðs Norðmanna sem
vann siifúr á ólyrapíuleikunum í
Seoul, hefur gert nýjan samning
við norska handknattleikssam-
bandið og hafa margir fagnaö þ vl
Þó er næsta víst aö kona hans
fagnar ekki þeirri tilhögun því
karl ku vera kominn meö einn
leikmanna sinna upp á arminn.
Er það hin 23 ára garala Karen
Pettersen sem sljórnar sóknar-
leik norska liðsins.
Mikið hefur veriö skrifaö. um
þetta mál í norsku pressunni upp
á síðkastið en sjálfúr hefur Sven
ekki viljað tjá sig um málið.
Tvo top
norskra
Heiroandur Sgraundsscn, DV, Noregi;
Norska landsliðið lék við
Frakka í síðustu viku i tvigang
og tapaöi báðum. Fyrst með 22-18
en síöan 23-21.
Norðmenn voru mjög ósáttir
viö gengi liösins í þessum tveim-
ur leikjum og munu því leggja
allt kapp á aö vinna sigur gegn
Dönum í þessari viku.
Viö þá spila þeir þrjá leiki en
síðan í tvígang við Islendinga, 2.
og 3. febrúar, og jafnoft viö Svía
skömmu síöar.
Fyrsti leikur Norðmanna á
heimsmeistaramótinu í Frakk-
landi er gegn V-Þjóðverjum 15.
febrúar.
Sovésku meistararnir í kvenna-
flokki í handknattleik, Spartak Kiev
frá Sovétríkjunum, eru komnir í átta
liða úrslit Evrópukeppni meistara-
liða eftir tvo sigra á Islandsmeistur-
um Fram um helgina. Fyrri leiknum,
sem fram fór á fostudag, lauk með
22 mörkum gegn 16 og þeim síðari
35-14. Samanlögð markatala Kiev er
því 57-30.
Þetta eru úrslit sem Fram þarf ekki
að skammast sín fyrir því að Spartak
Kiev er talið besta félagslið heims og
hefur 11 sinnum hampað Evrópu-
meistaratithnum. Auk þess leika 9
leikmenn úr silfurliði Sovétríkjanna
frá síðustu ólympíuleikum með lið-
inu. Framhðið náði að sýna ahar sín-
ar bestu hliðar á föstudaginn og náði
úrslitum sem enginn þorði að gera
sér vonir um. Vamarleikur hösins,
drifinn áfram af Sigrúnu Blomster-
berg, var sem múr og áttu sovésku
meistararnir í miklum vandræðum
að brjóta hann á bak aftur. í sókn-
inni var það svo Guðríður Guðjóns-
dóttir sem fór á kostum og gerði ahs
átta mörk. Hún var allt í öhu hjá lið-
inu og átti þama sinn albesta leik í
vetur og munar um minna þegar
Guðríður er í þessum ham. Annars
á hðið allt hrós skihð fyrir góðan leik
og frábæra baráttu.
Eftir að hafa staðið í Kiev mestahan
fyrri hálfleik kom slæmur kafli hjá
Fram undir lok hálfleiksins og
breyttist þá staðan úr 11-6 í 16-7 sem
vom hálfleikstölur. En Framhðið
náði að hrista af sér slenið og með
frábæmm kafla um miðbik síðari
hálfleiks breyttu þær stöðunni úr
20-9 í 20-13. Lokatölur leiksins urðu
svo 22-16 og vann Fram því síðari
hálfleikinn með þremur mörkum.
Mörk Fram: Guðríður Guðjóns-
dóttir 8/2, Ingunn Bernódusdóttir og
Sigrún Blomsterberg, 3 hvor, Margr-
ét Blöndal og Ósk Víðisdóttir, 1 hvor.
Mörk Spartak Kiev: Garnusova 6,
Bazanova 4/2, Gorb, Oleksiuk og
Semenova 3 hver, Poliakh 2, Sheve-
henco 1.
Fram - Spartak Kiev 14-35
Hinn skapmikh þjálfari Spartak
Kiev hefur lesið vel yfir leikmönnum
hðsins eftir leikinn á föstudag því að
allt annað var að sjá th liðsins í gær
og leikmenn Fram ekki öfundsverðir
að spha á móti því í þessum ham þar
sem hvert glæsimarkið af öðm leit
dagsins ljós. Vörn rússnesku stúlkn-
anna var nú mun þéttari og höföu
þær góðar gætur á Guðríði sem þrátt
fyrir það skoraði átta mörk eins og
í leiknum á föstudag. En sóknarleik-
ur Fram var ahs ekki nægilega beitt-
ur. Hornamennimir voru ekkert
ógnandi og voru því skyttum Fram
htil hjálp. Það virtist sem ahir biðu
eftir því að Guðríður gerði eitthvað.
En vörn Spartak var þétt fyrir og ófá
skotin sem enduðu í vamarmúr
þeirra. Þær vom síðan eldsnöggar
upp og skoraðu mörg mörk úr vel
útfærðum hraðaupphlaupum. Vörn
Fram var ágæt í leiknum en augljós
múnur á hkamsstyrk liðanna gerði
gæfumuninn. Þær sovésku munaði
ekkert um að hafa einn Framara á
bakinu þegar þær stukku inn úr
teignum. Athygh vakti að Fram gerði
aðeins eitt mark úr hraðaupphlaupi
í þessum tveim leikjum en þær em
vanar að gera um helming marka
sinna úr hraðaupphlaupum hér
heima.
Það er auðséð að í hði Spartak Kiev
er hvergi veikan hlekk að finna og
frábærar handknattleikskonur þar á
ferð. Boltameðferð þeirra er stór-
kostleg og virðist sem þær geti gert
hvað sem þær vhja með knöttinn.
Að sögn talsmanns þeirra ætla þær
sér ekkert minna en Evrópumeist-
aratitihnn í ár og þessi sigur á Fram
er aðeins eitt skref í þá átt.
Mörk Fram: Guðríður Guðjónsdóttir
8/2, Ingunn Bernódusdóttir 2, Jó-
hanna Hahdórsdóttir, Margrét Blön-
dal, Ósk Víðisdóttir og Hafdís Guö-
jónsdóttir, eitt mark hver.
Mörk Spartak Kiev: Shevchenco 10,
Garnusova 7, Semenova 6, Gorb 5,
Oleksiuk og Shavaikoskaia 2 hvor,
Pohakh, Bazanova og Turchina eitt
hver.
EL/ÁBS
Sænska knattspyman:
Hafþór byrjar
vel hjá Kalmar
- átti þrumuskot í stöng Trelleborg
Gunnai Guunaisson, DV, Svíþjóð:
Hafþór Sveinjónsson byrjaði vel með Kalmar í sænsku knattspyrnunni síð-
astliðiö föstudagskvöld.
Hann sphaði þá sinn fyrsta leik með félaginu, gegn Trelleborg í „Hall-
svenskan" en það er dehdakeppni innanhúss, leikin á yfirbyggöum gervigras-
völlum í fuhri stærð.
Kalmar tapaði leiknum 1-3 en Hafþór fékk góða dóma fyrir sína frammi-
stöðu og átti skot í stöngina á marki Treheborg.
Koma Hafþórs th þessa kunna sænska félags hefur vakið nokkra athygli
og daginn eftir að hann kom til félagsins birtist th dæmis stór htmynd af
honum á forsíðu dagblaðs sem gefið er út í borginni.
„Mér líkar mjög vel hér í Kalmar en æfingamar hjá hðinu um þessar
mundir em þær erfiðustu sem ég hef lent í, ég hef aldrei kynnst öðm eins,“
sagði Hafþór í spjahi viö DV í gær en hann er bjartsýnn á framhaldið.
Við þurfum ekkert
dð skdwiwtdstt okksr
„Við þurfum ekkert að skamra-
ast okkar fyrir þessi úrsht þótt
þau hefðu mátt vera betri í síðari
leiknum,“ sagði Guðríöur Guð-
jónsdóttir við DV en hún var besti
leikmaður Fram í báðum leikjun-
um við sovésku valkyijumar.
„Þarna sést munurinn á áhuga-
og atvinnumönnum. Við náðum
toppleik á föstudaginn og það er
ahtaf erfitt að ná tveim toppleikj-
um í röð. Við höfum sjálfsagt lifaö
á þeim leik og ekki lagt okkur
eins mikið fram í dag. En þær
sphuðu jú mun betur í síöari
leiknum og hvað líkamsstyrk
snertir þá eigum viö ekki mögu-
leika í þær. En ég held að viö
getum bara verið ánægðar og þaö
var reglulega gaman að fá að spha
Arna Steinsen.
gegn þessum stórsfjöraum,“
sagöi Guðríðm- við DV. Hún skor-
aði 16 mörk í leikjunum báðum
og er það frábær árangur gegn
einhverri þéttustu vöm í hand-
knattleiksheiminum.
Aldrei ánægð eftir tapleik
„Maður verður að sætta sig við
þessi úrsht en ég er aldrei ánsegð
eftir tapleik,“ sagði Ama Stein-
sen, homamaðurinn kviki í hði
íslandsmeistaranna.
„Þessar stelpur eru í algerum
heimsklassa og við áttum hrein-
lega ekki möguleika gegn þeim.
Þær eru það líkamlega sterkar,“
sagði Ama við DV.
EL/ÁBS
Iþróttir
.
í,- < v>
„Davíð andspænis Golíat.“ Guðríður Guðjónsdóttir átti tvo stjörnuleiki með Fram um helgina gegn hinu firnasterka liði Spörtu frá Kænugarði. Guðriður skoraði
átta mörk í fyrri leiknum og jafnmörg í þeim seinni þrátt fyrir að sovésku stúlkurnar hefðu lagt þunga á að stöðva hana.
DV-mynd Brynjar Gauti
HÁDEGISHLAÐBORÐ alla daga vikunnar.
Hefðbundinn þorramatur fyrir þá sem það vilja, ásamt öðrum
gómsætum íslenskum réttum í nútímabúningi.
Nú finna allir mat við sitt hæfí á Þorranum.
Þorrahlaðborð fyrir hópa á kvöldin, nema um helgar.
ÞORSGOTU1 -S.: 25090
Stærri hópar (20 manns og fleiri) geta
pantað Þorraborð í Viðeyjarstofú.
Borðpantanir í símum 681045
og 28470.