Heimilistíminn - 14.10.1976, Blaðsíða 9
„1 Hallormsstaöaskógi er angan engu Hk og dögg á grasi glóir, sem gull I Atiavik,” lir
Nótt i Atiavik.
Senn er okkar samvist lokiö,
sól, þig eina lofa ég.
Þakka fylgd um furöulanda
farinn veg.
Og vegna þin var þessi ganga
þolanleg.
Ljóöiö, þér til sæmdar samiö
sendi ég um geislabrú, '
gert i þeirri gamalmennis
góöu trú,
aö framlag mitt gegn myrkri jaröar
metir þú.
Sólin hnattför hraöar vestur,
hugsar stolt um áform sin,
þvi aö breiöa grænt og gulliö
gróöurlin
út viö sjó og inn til heiöa
yfir sporin min.”
Og á þessum timamótum I llfi skáldsins
óska ég þess, aö því megi auönast aö gefa
þjóö sinni enn mörg fögur ljóö um andleg-
ar sýnir sinar og landiö okkar fagra, öll-
um til yndisauka og umhugsunar.
HÍ^IÐ
Yngsti sonur nágrannans, hann
Kalli, er mjög tilfinninganæmur.
Ýmist er hann ofsakátur eöa niöur-
dreginn, og svo var þegar ég hitti
hann úti á götu um daginn. Ég
spuröi hann þvi um ástæöuna.
— Bróöir minn er búinn aö
drekkja öllum kettlingunum, sagöi
Kalli snöktandi.
— En sorglegt, sagöi ég meö
samúö.
— Já, þvi pabbi var búinn aö lofa,
aö ég fengi aö gera þaö!
Tíminn
fyrir
40
árum
Utan úr heimi
Uppreisnarher Francos situr nú um
Madrid og grimmir bardagar hafa
staöiö um borgina undanfarna daga.
Flugvélar sveima yfir borginni og
varpa niöur sprengikúlum eöa skjóta
úr vélbyssum. Miklar skemmdir hafa
þevar oröiö á húsum og mannvirkjum
og fjöldi manna látiö llfiö. Spánska
ráöuneytiö hefur flutt sig til brogar-
innar Va,encia viö Miöjaröarhaf.
Taliö er, aö I hersveitum upp-
reisnarmanna i nágrenni Madrid séu
um 50 þúsund manns. í Márahersveit-
unum frá Afrlku, sem aöallega er beitt
fyrir til árásanna, er sagt aö séu 15.000
manns. Standa orusturnar nú viö
Manzanaresfljót, sem fellur rétt
vestan viö borgina, og hefir upp-
reisnarherinn enn sem komiö er veriö
stöövaöur vestan megin fljótsins....
Thálmann saklaus, en fær
ævilanga fangavist
Samkv. áreiöanlegum heimildum,
sem sænsk blöö telja sig hafa frá
Þýzkalandi, hefir stjórnin ákveöiö, aö
kommúnistaforinginn Thálmann skuli
vera haföu ævilangt I fangabúöum.
Málsóknin, sem hefur veriö boöuö
gegn honum I mörg undanfarin ár,
veröur látin falla niöur. Astæöan til
þess er talin sú, aö ítrakaöar tilraunir
hinna fundvlsustu málflutningsmanna
nazista til aö finna eitthvaö saknæmt
gegn honum, hafa ekki boriö neinn
árangur.
Bezta munntóbakið
er frá brödrerne Braun Kaupmanna-
höfn.
Biöjiö kaupmann yöar um
B.B. munntóbakið.
Fæst alls staöar.
9